Víkurfréttir - 07.05.2020, Side 6
Segir Hallgrím Helgason
særandi og tilfinningalausan
Jóhann Friðrik Friðriksson, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, sendir Hallgrími Helgasyni, rithöfundi,
tóninn í færslu á fésbókinni um helgina. Hallgrímur vill hafa Leifsstöð opna fyrir burtþyrstan landann og
leyfa honum að spranga um salina, láta leita á sér, taka einn öllara, spjalla og skella sér svo í Fríhöfnina, svo
vitnað sé í færslu Hallgríms.
Þetta skrifaði Hallgrímur:
„Hugmynd í Kófinu, um leið og
Víðir leyfir: Hafa Leifsstöð opna fyrir
burtþyrstan landann, og leyfa honum
að spranga um salina, láta leita á sér,
taka einn öllara, spjalla og skella sér
svo í Fríhöfnina. Hún væri í raun
aðal-attraksjónin í þessu dæmi, og
verðið yrði lækkað þar enn meir til
að draga að. Eða jafnast eitthvað á
við það að versla áfengi drukkinn?
Vopnaleitinni yrði breytt í lottó,
allir fengju miða í vasann við inn-
ganginn og einn af hverjum þúsund
miðum myndi svo bípa í hliðinu við
mikinn fögnuð. Stemmningin yrði
mikið stuð, allir hressir og brandar-
arnir kæmu sjálfkrafa. "Ha-æ. Hvert
eruð þið að fara?!" Á fimmtudögum
væri svo menningarveisla, tónleikar
og upplestrar. Það er reynsla mín að
Íslendingum finnst í raun fallegasti
staður landsins vera Leifsstöð, þar
líður þeim best, enda sést það, við
erum alltaf svo glöð þar. Þar er fólk
annaðhvort að koma heim til lands-
ins sem það elskar eða fara burt frá
landinu sem það hatar. Held að fólk
langi alltaf í Leifsstöð, líka þótt engin
séu flugin. Til að auka stemmningu
yrðu svo tilkynningar í kallkerfi um
að þessi eða hinn væri nú búinn með
tímann sinn, fólk væri kallað upp
úr eins og í sundinu í den. "Farþegi
á leið til Amsterdam, djók, Anna
Björk Ingimarsdóttir, gjörðu svo vel
að hafa samband við afgreiðslu." Svo
er þetta allt saman atvinnuskapandi
og íslenska kiljumarkaðnum yrði
bjargað. Þetta myndi að auki redda
rútufyrirtækjunum því enginn gæti
ekið heim... Ég er líka kominn með
nafnið á þetta: Lukkustund í Leifs-
stöð - Happy Hour in Leifsstöð.“
Forseta bæjarstjórnar Reykjanes-
bæjar var ekki skemmt yfir færslu
Hallgríms og sendir honum tóninn
og segir frumhlaupið vera Hallgrími
til skammar.
„Kæri Hallgrímur.
Mér er ekki skemmt. Hundruðum
starfsmanna hefur verið sagt upp í
FLE eða eru í skertu starfshlutfalli.
Allur húmor hefur sinn tíma og er
vandmeðfarinn. Ég verð að segja að
ég upplifi skrif þín sem særandi og
tilfinningalaus. Kannski er ég við-
kvæmur en það verður þá bara að
vera svo. Þetta frumhlaup er þér til
skammar og væri þér hollast að nýta
listamannalaunin til uppbyggilegri
skrifa,“ skrifar Jóhann Friðrik Frið-
riksson, forseti bæjarstjórnar Reykja-
nesbæjar, á fésbókina.
Rétturinn
Ljúffengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-14
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
„Endum þetta með góðri rokkveislu“
„Við höldum ótrauð áfram og
stefnum á glæsilega tónleika,”
segir Kristján Jóhannsson einn
skipuleggjanda „Með blik í auga“
sem hefur gengið fyrir fullu húsi
síðustu níu ár.
„Þetta hefur alltaf verið þema
tengt og í ár verður slegið í stór
veislu þegar við gerum upp sögu
rokksins. Já, við ákváðum að slá vel
í og ljúka Blikinu með góðri rokk
veislu.“
Einvalalið söngvara mætir til
leiks að venju, þau Stefanía Svav
ars, Stebbi Jak, Matti Matt og
Dagur Sigurðsson.
„Við Guðbrandur Einarsson og
Arnór Vilbergsson höfum rekið
þetta frá árinu 2010 þegar fyrsta
Blikið fór af stað og satt best að
segja átti bara að gera þetta einu
sinni en tónleikarnir eru allt í einu
orðnir 28.“
– Má vænta tímamóta nú, 2020?
„Já, Blikið hættir eftir þessa tón
leika. Við erum búin að vera að í
tíu ár og þetta hefur verið frábært
verkefni en nú er þetta ákveðið og
allir sáttir. Við höfum verið meira
og minna sami hópurinn allan
tímann og hann er orðinn þéttur.
Þetta eru frábærir félagar,“ segir
Kristján. „En það kemur eitthvað
í staðinn. Það kemur alltaf maður í
manns stað“
Tónleikarnir verða í Stapa í ár
eins í fyrra. Frumsýning verður
2. september og síðan verða tvær
sýningar 6. september.
„Við erum bjartsýn á að búið
verði að rýmka samkomubannið í
september og það er nú þannig að
undirbúningur tekur langan tíma.
Nú, annars verður bara tekið fullt
tillit til þeirra reglna sem munu
gilda.“
Guðbrandur, Kristján og Arnór.
6 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.