Víkurfréttir - 07.05.2020, Blaðsíða 31
„Innskot slær upphafstóninn á minni veru
hér sem safnstjóri og gefur innsýn í mínar
áherslur og það sem koma skal hér hjá Lista-
safni Reykjanesbæjar,“ sagði Helga við opnun
sýningarinnar. Hún færði öllum þeim þakkir
sem komu að sýningunni og hjálpuðu Lista-
safni Reykjanesbæjar að vinna sýninguna Inn-
skot, m.a með því að lána safninu myndverk
af heimilum sínum og öðrum söfnum fyrir að
bregðast fljótt við lánsbeiðni frá safninu.
„Hver einasta sýning hjá Listasafni Reykjanes-
bæjar verður nauðsynleg, ómissandi fyrir heims-
listina. Safnið ætlar að byggja upp alþjóðlegt orð-
spor þannig að eftir því sé tekið, t.d. með öflugu
samstarfi við erlend söfn, listamenn og sýninga-
stjóra. Allar sýningar safnsins eru og verða samtal
við samfélagið, við fortíðina, við náttúruna, við
íslenska listasögu, við heimslistina, við ætlum að
varpa fram spegli af mannlegri samvitund bæði
út frá „global“ og „local“ hugsun. Enda mjög við-
eigandi þar sem við erum stödd í gömlum fiskibæ
sem tók við kananum og gat af sér íslenska bítla-
menningu,“ sagði Helga við opnunina og bætti
við: „Í dag opnum við sýninguna Innskot sem
varpar fram því ástandi sem við höfum öll verið
að fara í gegnum sem manneskjur á heimsvísu.
Þar er að segja, við vorum kölluð inn á heimil-
inn og þurftum að horfast í augu við okkar eigið
umhverfi bæði efnislega en líka sem persónur í
okkar eigin rými. Þannig tel ég sýninguna vera
beina útsendingu á eigin samtíma sem oftast
þarf tíma til að skilja sjálfan sig. Sýninginn er
innlegg, sem vísar ákveðna leið, mat á merkingu
ástandsins. Sýningin Innskot er því sagan sjálf,
svo tengt sem hún er eilífðartímanum, hreyfing
bolta, matur í ofni, blúnda á stól. Virkni þess smáa
í líðanda hverrar mannveru.“
Listasafn Reykjanesbæjar er opið að nýju með
hefðbundnum hætti en með fjöldatakmörkunum
samkvæmt reglum sóttvarnalæknis. Á föstudag-
inn má fylgjast með umfjöllun um sýninguna
Innskot þar sem Helga Þórsdóttir, safnstjóri,
spjallar við listamenn sýningarinnar Innskot.
Logi Höskuldsson,
Helga Þórsdóttir,
safnstjóri, og
Áslaug Thorlacius.
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.
VíKuRFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR // 31