Víkurfréttir - 07.05.2020, Qupperneq 42
„Allt í lífinu hefur breyst á síðustu sex vikum“
– Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths veiktist alvarlega af COVID-19 í London.
Hún hefur náð sér af sjúkdómnum og hlakkar til að takast á við fjölbreytt verkefni
sem eiga það þó öll sameiginlegt að hafa frestast vegna heimsfaraldursins.
Sigrún Sævarsdóttir-Griffiths býr í Sydenham, Suð-austur London, með manninum sínum,
Paul Griffiths, og börnunum þeirra tveimur, Sædísi Rheu, tólf ára, og Rhys Ragnari, sextán
ára. Sigrún flutti til London 1997 til þess að stunda tónlistarnám við Guildhall School of
Music and Drama. Hún endaði svo á því að giftast kennaranum sínum og taka við rekstri
kúrsins sem hún lærði við.
Sigrún og Paul veiktust bæði alvarlega af
COVID-19 fyrir um sex vikum síðan. Sigrún
var flutt með sjúkrabíl undir læknishendur
eftir að hún hætti að anda en hresstist fljótt
aftur. Hún var þó ekki lögð inn á sjúkrahús.
Daginn eftir var hún aftur flutt með sjúkrabíl
og þá var hún komin með vatn í lungu vegna
sjúkdómsins. Hún segir að ástandið hafi verið
tæpt.
En aðeins um lífið í London. „Ég stýrði
meistaranámi við Guildhall í tólf ár en í dag
rek ég mitt eigið fyrirtæki og stýri ýmsum
sjálfstæðum verkefnum sem stjórnandi og
kenni við Guildhall innan tónlistardeildar-
innar,“ segir Sigrún í samtali við Víkurfréttir.
Hún hefur sérmenntun og yfir tuttugu
ára reynslu í því að stýra skapandi tónlistar-
verkefnum við hinar ýmsu samfélagslegu
aðstæður. „Markmiðið með verkefnunum er
að veita fólki tækifæri til þess að semja saman
nýja tónlist og öðlast með því lífsfyllingu,
aukið sjálfstraust, tengingu við náungann og
nærsamfélagið, auk þess að eiga jákvæðar, fal-
legar og skemmtilegar samverustundir. Því
ef okkur líður vel, höfum rödd og á okkur
er hlustað, eru mun meiri líkur á því að við
finnum tilgang í lífinu, orku til þess að takast
á við erfiðleika og tökum jákvæðari ákvarð-
anir,“ segir hún.
Selfie frá sumarfríi á Spáni 2019.
Á myndinni eru f.v.: Sigrún, Rhys Ragnar,
Sædís Rhea og Paul.
Norbusang kórinn í Norðurljósasal Hörpu í maí 2018:
„600 manna barna og unglingakór í þann mund að fara að
flytja verk sem við sömdum í sameiningu á þremur dögum.“
42 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.