Víkurfréttir - 07.05.2020, Blaðsíða 50
– Hvernig stóð á því að þú
fluttir til útlanda?
„Ég komst inn í flugnámsprógram
hjá Icelandair sem heitir „Flug-
menn til framtíðar“. Icelandair er í
samstarfi við flugskóla sem heitir L3
Harris Airline Academy og er með
starfsstöð á Nýja-Sjálandi og var ég
svo heppin að fá að flytja til Nýja-
Sjálands til að stunda námið.“
– Saknarðu einhvers frá Íslandi?
„Ég sakna fjölskyldunnar og vina
mikið en allra mest sakna ég þó
ömmu minnar.“
– Hve lengi hefurðu búið
erlendis?
„Ég flutti út í nóvember 2018 þannig
það er komið eitt og hálft ár síðan.“
– Hverjir eru helstu kostir þess að
búa þar sem þú býrð?
„Nýja-Sjáland er frábært land og
algjör náttúruparadís. Fólkið hérna
er virkilega almennilegt, hjálpsamt
og er ekki mikið að stressa sig á hlut-
unum. Náttúran hérna er stórkostleg
og hérna er að finna fossa, hveri og
fallegar gönguleiðir hvert sem maður
fer.“
– Hvernig er hefðbundinn
dagur í lífi þínu?
„Dagarnir hérna eru frekar óhefð-
bundnir en ég get verið bókuð í flug
hvenær sem er yfir daginn. Dagana
sem ég á bókað flug byrja ég á að
undirbúa flug dagsins. Ég þarf að
plana hvaða leið ég ætla að fljúga,
skoða veðrið, yfirfara flugvélina og
fara yfir sem ég ætla að gera í fluginu
með flugkennara. Dagarnir sem ég
er ekki bókuð í flug eru vel nýttir í
lærdóm og að njóta Nýja-Sjálands.“
– Líturðu björtum augum til
sumarsins?
„Hérna á Nýja-Sjálandi er sumarið á
enda og haustið gengið í garð en já,
ég er bara mjög spennt fyrir kom-
andi tímum þó það væri gott að geta
upplifað íslenska sumarið aðeins, þar
sem það jafnast ekkert á við það.“
– Hver eru þín áhugamál og
hefur ástandið haft áhrif á þau?
„Aðaláhugamálið mitt er að fljúga og
ástandið hefur gert það að verkum
að ég hef ekki geta flogið en ég hef
verið dugleg að stunda líkamsrækt
og spila fótbolta með skólafélög-
unum sem hefur stytt stundirnar
helling. Ég hef einnig fundið nýtt
áhugamál á þessum skrýtnu tímum
en ég hef verið að baka óspart í þessu
samkomubanni.“
FLUGNEMINN
Sólborg Guðbrandsdóttir
vf@vf.is
sem fékk áhuga á bakstri
Rut Helgadóttir er tvítug og býr á Nýja-Sjálandi
þar sem hún leggur stund á flugnám. Rut er fædd
og uppalin í Danmörku en flutti til Keflavíkur
þegar hún var tíu ára gömul. Foreldrar hennar,
ásamt tveimur yngri systrum, búa í Bretlandi.
50 // VíKuRFRÉttiR á SuÐuRNESJum í 40 áR
Fimmtudagur 7. maí 2020 // 19. tbl. // 41. árg.