Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 11
Þurfum að auka fjölbreytnina í atvinnulífinu
færi til framtíðar og þurfum að
endurmeta stöðuna til lengri tíma
litið. Það hefur verið samheldni í
bæjarstjórn um þessi mál og ég hef
fulla trú á því að við munum vinna
okkur út úr þessum vanda sem nú
er kominn upp. Við höfum upplifað
mörg áföll og höfum alltaf náð að
vinna okkur úr þeim en það hefur
auðvitað kostað sitt.“
Endurmetum stöðuna
Jóhann segir að í sveitarfélögum sem
Reykjanesbær getur borið sig saman
við, eins og til dæmis Akureyri, sé
það ljóst að þar er meiri fjölbreytni
í atvinnulífinu.
„Það eru til að mynda ekki margar
ríkisstofnanir á Suðurnesjum fyrir
utan Isavia. Það þarf að horfa til
lengri tíma hvað það varðar. Upp-
gangurinn í ferðaþjónustunni hefur
auðvitað verið ótrúlegur og um leið
frábær en við viljum samt sem áður
að vera þannig í stakk búin að ein-
staka áföll setji ekki allt á annan end-
ann eins og nú hefur gerst. Þetta áfall
mun til dæmis hafa slæm áhrif fyrir
fjárhag Reykjanesbæjar. Sem betur
fer hefur gengið mjög vel í rekstr-
inum síðustu ár, sérstaklega síðustu
tvö. Við höfum því aðeins borð fyrir
báru. Við vorum búin að hlaða vel
í framkvæmdir í upphafi árs og
reynum að fara í verkefni sem kalla
á starfsfólk og flýta einhverjum verk-
efnum. Í framhaldinu þurfum við
síðan að endurskoða fjárhagsáætlun
og sjá hvar við stöndum. Við erum í
samtali við ríkið og fleiri sveitafélög
hvernig hægt er að bregðast best við.
Öll stærri sveitarfélög hafa frestað
fasteignagjöldum og reynt að koma
til móts við skammtímaþætti sem
það hefur tækifæri til. Við munum
leggja fram plön hvað sveitarfélagið
getur gert til að bregðast við þessum
vanda á næstunni. Ef hann lengist
og við sjáum að hann verður ekki
skammvinnur er ljóst að við verðum
í stöðu sem við höfum aldrei verið í
áður og þurfum að endurmeta stöð-
una út frá því.“
Tökum þetta saman
„Ég hef alla tíð verið bjartsýnn. Ég
horfi bara á þann þrótt sem er í
starfsmönnum Reykjanesbæjar og
samfélaginu á Suðurnesjum undir
þessum kringumstæðum og ég hef
nefnt það í stól forseta bæjarstjórnar
að við Suðurnesjamenn höfum
gengið í gegnum ýmislegt en ég átti
nú ekki von á þessu. Þetta verður
áskorun sem við munum öll taka
á saman og í samheldni. Ég hef trú
á því að samfélagið hér eigi eftir að
koma sterkt til baka út úr þessum
vanda sem kom aftan að okkur svona
snöggt,“ segir Jóhann Friðrik.
Jóhann Friðrik á
bæjarstjórnarfundi í síðustu
viku. VF-mynd/pket.
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 11