Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 19
pokaseiði eru flutt í seiðastöðina frá
klakstöð fyrirtækisins að Núpum í
Ölfusi. Seiðin eru alin í seiðastöðinni
í tíu til tólf mánuði, eða þangað til
þau hafa náð 100 gr. að stærð. Þá
eru þau flutt úr seiðastöðinni yfir í
áframeldið sem er utandyra í kerjum
á landi. Þegar fiskur nær tilskilinni
stærð er hann svo fluttur lifandi í
sérútbúnum tankbílum til slátrunar
og vinnslu í Sandgerði.
Það er Ræktunarsamband Flóa og
Skeiða sem sér um boranirnar á nýju
sjóholunum og þær hafa gengið vel
þrátt fyrir að þurft hafi að breyta
verklaginu vegna núverandi ástands.
Framkvæmdir eru langt komnar og á
þeim að ljúka með virkjun nýrra hola
fyrir lok júní næstkomandi.
Eykur afköstin
„Þetta mun auka afkastagetu fisk-
eldisstöðvarinnar umtalsvert en
þetta er mikið vatnsmagn sem við
erum að dæla. Þegar framkvæmdum
lýkur mun stöðin geta dælt tveimur
og hálfum rúmmetra af vatni á
sekúndu,“ segir Hjalti Bogason,
rekstrarstjóri Samherja fiskeldis á
Suðurnesjum, á heimasíðu Sam-
herja. Nýlega fékk fiskeldisstöðin að
Stað stækkun á rekstrarleyfi sínu í
3.000 tonn og félagið er að auki með
1.600 tonna leyfi að Vatnsleysu. Að
sögn Hjalta mun fiskeldið á Suður-
nesjum geta framleitt tæplega 4.000
tonn af bleikju þegar þessum hluta
framkvæmdanna lýkur.
Tuga milljarða
útflutingsverðmæti
Samherji fiskeldi er stærsti fram-
leiðandi bleikju í heiminum með um
3.800 tonn árlega en það er tæplega
helmingur allrar eldisbleikju sem er
framleidd á heimsvísu. Radarinn,
mælaborð sjávarútvegsins sem rekið
er af SFS, greindi nýlega frá því að
útflutningsverðmæti eldisafurða hafi
verið 25 milljarðar króna á síðasta
ári. Það er 90% aukning frá fyrra ári
og hefur útflutningsverðmætið aldrei
verið meira.
Hjalti Bogason
rekstrarstjóri
Samherja fiskeldis
á Suðurnesjum.
Páll Ketilsson
pket@vf.is
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 19