Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 53
– Hvernig stóð á því að þú fluttir til
útlanda?
„Fyrst og fremst til að prófa eitthvað nýtt
og verða reiprennandi í öðru tungumáli.
Ég er mjög opin og forvitin um annað fólk
og lönd og hef lengi vitað að ég vildi prófa
að búa erlendis.“
– Saknarðu einhvers frá Íslandi?
„Auðvitað, ég sakna íslenska íssins úr vél
ekkert lítið. Fjölskyldunnar helling og
vinanna sem búa á Íslandi. Sérstaks matar
saknaði ég mest til að byrja með en hægt
og rólega leið það hjá, annars fæ ég reglu-
lega harðfisk og fleira séríslenskt.
Akkúrat þessa stundina sakna ég
mest fjölskyldunnar, sérstaklega vegna
óvissunnar um hvenær við náum að hitt-
ast aftur.“
– Hverjir eru helstu kostir þess að
búa þar sem þú býrð?
„Klárlega landamærin. Við búum í Suður-
Danmörku, innan hálftíma frá Þýskalandi.
Þar er hægt að versla mun ódýrara, sérstak-
lega matvöru. Líka gaman að geta fengið
upplifun beggja landa, t.d. að hlusta á
útvarpið bæði á þýsku og dönsku.
Fyrst áttum við heima í litlum bæ sem
heitir Gråsten en núna búum við í Rødekro,
þó er Gråsten ennþá stór partur af okkar
lífi þar sem við erum bæði að vinna þar.
Varðandi Danmörku sem kost, þá er það
kostur hversu fljótur maður er að aðlagast
hérna eins og í eigin heimalandi ásamt því
að læra tungumálið.“
– Eitthvað komið þér á óvart við að
búa erlendis?
„Mest hversu fljótt heimatilfinningin
kemur í nýja landinu.
Það hefur líka komið mér helling á óvart
hversu heitt getur orðið hérna að vori til,
hversu miklu lengri sumur eru hér miðað
við Ísland. Núna sem dæmi erum við að
skríða inn í miðjan maí en samt eru alveg
stuttbuxur búnar að vera notaðar í fimm
plús daga.
Að sakna fjalla og finnast tré út um allt
stundum of mikið er líka eitthvað sem ég
hugsaði ekki um fyrirfram.“
Heimatilfinningin kom fljótt
– Steig út fyrir þægindarammann og lærði margt um sjálfa sig
Auðvitað, ég sakna
íslenska íssins úr vél ekkert lítið.
Fjölskyldunnar helling og
vinanna sem búa á Íslandi ...
Netspj@ll
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.
VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 53