Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 21

Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 21
Hvað er merkilegt við 11. maí? Fyrir marga er 11. maí ekkert merkilegri dagur en hver annar. Þessi dagur er ekki einu sinni merktur inn á dagatölum. Hvað er þá eiginlega sérstakt við þennan dag sem mörgum finnst ekkert merkilegur? Jú, 11. maí var kallaður lokadagur- inn, eða lokadagur vetrarvertíðar- innar. Það var nefnilega þannig á árum áður að það var oft mikil keppni á milli báta og sjómanna um að verða aflahæstir í sinni höfn nú eða þá yfir landið allt. Má fara ansi langt aftur í tímann til þess að finna þessa keppni. Í raun mætti fara alveg aftur til ársins 1940 eða aðeins lengra aftur í tímann til þess að sjá fréttir um ver- tíðar- og aflakónga eftir hverja vertíð – en þetta er liðin tíð. Eða er það svo? Að mínu mati er ennþá spenn- ingur í sjómönnum að fiska meira en næsti sjómaður eða bátur og finn ég það mjög vel í gegnum aflafrettir. is því ég fæ svo mörg skilaboð um að þessi og þessi hafi fiskað þetta og þetta mikið og það vantar tölur inn á þennan og þennan bát. Ég hef þurft að endurreikna þennan bát því hann er hæstur. Já, kannski má segja að vertíðar- stemmningin sé ennþá til staðar, þó með allt öðru sniði því núna er þetta kvóti og jafnvel mismunandi íspró- senta sem hefur áhrif. Fer nánar út í vertíðina í næsta pistli. Lítum á aflabrögðin sem hafa verið gríðarlega góð núna í maí. Mjög margir línubátar eru búnir að vera að veiðum skammt utan við Grinda- vík og hafa allir bátar þar mokveitt. Sem dæmi kom Beta GK með sautján tonn í land í einni löndun og er mynd af Betu GK með hérna. Fékk hún þennan afla á þrettán þúsund króka eða um 31 bala. Það gerir um 596 kíló á bala sem er ekk- ert annað en mokveiði. Gísli Súrsson GK lenti líka í mok- veiði. Hann kom í land með 15,2 tonn sem fékkst á aðeins uppreiknað í bala alls 22 bala og það gerir um 691 kíló á bala. Þetta er rosalegur afli svo ekki sé meira sagt. Gísli Súrsson GK hefur landað alls 76 tonnum í aðeins fimm róðrum. Aðrir bátar hafa líka fiskað vel og skulu nokkrir nefndir: Kristján HF 129 tonn í sjö róðrum og mest 25 tonn, Fríða Dagmar ÍS 128 tonn í tíu, Jónína Brynja ÍS 127 tonn í ellefu, Kristinn HU 116 tonn í sjö og mest 22,3 tonn, Sævík GK 99 tonn í átta, Daðey GK 93 tonn í ellefu, Auður Vésteins SU 70 tonn í fimm, Geir- fugl GK 65 tonn í sjö og Katrín GK 45 tonn í sjö. Allir þessir bátar hafa landað í Grindavík. Eitthvað er lítið um að drag- nótabátarnir hafi verið að veiða og ennþá eru Nesfisksdragnótabátarnir bundnir við bryggju en enginn drag- nótabátur frá þeim hefur landað afla síðan um miðjan apríl. Þetta þýðir það að aðeins einn dragnótabátur hefur verið að veiðum hérna við Suðurnes og er það Aðalbjörg RE sem hefur landað 22 tonn í þremur róðrum. Netabátarnir hafa fiskað mjög vel og eru þeir flestir að veiðum inn í Faxaflóa nema Bergvík GK og Sunna Líf GK sem hafa verið að veiðum utan við Sandgerði. Langanes GK er hæstur með 87 tonn í sjö róðrum, Maron GK 57 tonn í átta, Halldór Afi GK 28 tonn í átta, Sunna Líf GK 24 tonn í fjórum, Bergvík GK 24 tonn í sex og mest sjö tonn. Netabáturinn Erling KE er svo far- inn í burtu en hann fór ansi langt því hann sigldi um 400 sjómílna leið alla leið til Vopnafjarðar þar sem hann mun vera í sumar til að stunda grá- lúðuveiðar fyrir Brim ehf. og landa á Vopnafirði. Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is Beta GK. VORTÓNLEIKAR Vortónleikar verða haldnir dagana 15.–27. maí n.k. Vegna gildandi samkomutakmarkana verður tónleikunum streymt á YouTube, án tónleikagesta. Nánari upplýsingar um YouTube-rásina og tímasetningar tónleikanna eru á Facebook-síðu og vefsíðu skólans. SKÓLASLIT Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöll, föstudaginn 29. maí kl. 18.00. Afhending áfangaprófsskírteina. Hvatningarverðlaun Íslandsbanka veitt. Tónlistaratriði. Skólaslitunum verður streymt á YouTube án gesta. Nánari upplýsingar um YouTube-rásina o.fl. eru á Facebook-síðu og vefsíðu skólans. INNRITUN Nú er heppilegur tími til að sækja um skólavist fyrir skólaárið 2020–2021. Því fyrr sem sótt er um, því meiri líkur eru á að komast að. Sækja skal um á tonlistarskoli.reykjanesbaer.is undir hnappnum „Endurnýjun og nýjar umsóknir“ Skólastjóri Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg. aFLaFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 21
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.