Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 12

Víkurfréttir - 13.05.2020, Blaðsíða 12
Stakksberg undirbýr endurbætur á 1. áfanga kísilverksmiðjunnar í Helguvík með allt að 25.000 tonna árs­ framleiðslu og stækkun verksmiðjunnar í áföngum 2­4 í framleiðslugetu á allt að 100.000 tonnum af kísli á ári. Endurbætur fela í sér framkvæmdir á lóð, breytingar á núverandi byggingum og nýbyggingar, upp­ setningu á 52 metra háum skorsteini til að bæta dreifingu útblásturs og varða einnig meðhöndlun hráefna, ljósbogaofn og afsogskerfi verksmiðjunnar. Gert er ráð fyrir að 70 til 90 bein störf verði til við uppbygg­ ingu fyrsta áfanga en þau verði fleiri við byggingu áfanga 2 til 4 auk enn fleiri afleiddra starfa sem verði til þegar starfsemin verði komin í gang. Þetta kemur fram í frummatsskýrslu um endurbætur á kísilsverksmiðju Stakksbergs í Helguvík, áður United Silicon, sem Skipulagsstofnun hefur birt. Í frummatsskýrslunni segir meðal annars: Aðrar framkvæmdir snúa að aukinni hag- kvæmni, bættum framleiðsluvörum og aðstöðu starfsmanna. Seinni áfangar fela í sér fjölgun ljósbogaofna í allt að fjóra með stækkun ofn- húss og nýjum mannvirkjum. Einnig er fjallað um aðra framkvæmdakosti. Fjallað er um og lagt mat á áhrif á umhverfisþættina loftgæði, vatna- far (grunnvatn og hiti strandsjávar), fuglar, lífríki fjöru og strandsjávar, samfélag, heilsu, hljóðvist og ásýnd. Áhrif eru metin frá því að vera nokkuð nei- kvæð á loftgæði, grunnvatn við fullbyggða verk- smiðju og ásýnd yfir í nokkuð jákvæð á atvinnu- stig samfélags á framkvæmdatíma og talsvert jákvæð á samfélag á rekstrartíma. Áhrif á aðra umhverfisþætti eru metin óveruleg. Að teknu tilliti til mótvægisaðgerða, sem fyrst og fremst felast í reisingu skorsteins eftir síuvirki auk ýmissa endur- bóta sem eiga að auka rekstraröryggi og tryggja rétt viðbrögð, er það mat framkvæmdaraðila að ekki sé líklegt að kísilverksmiðjan í Helguvík hafi umtalsverð umhverfisáhrif í för með sér. Tilgangur og markmið Markmiðið með framkvæmdum við endurbætur á kísilverksmiðjunni í Helguvík er að lágmarka umhverfisáhrif vegna reksturs verksmiðjunnar og stuðla að því að starfsemin megi verða í sátt við íbúa svæðisins. Tilgangur framkvæmdanna er að gera allar þær úrbætur, sem nauðsynlegar eru til að uppfylla skilyrði Umhverfisstofnunar um breytingar og viðbætur á búnaði fyrir endur- ræsingu verksmiðjunnar, bæta gæði framleiðslu- ferilsins og vinnuumhverfi starfsmanna. Stakksberg óskaði eftir því við sveitarfélagið að deiliskipulaginu verði breytt til samræmis við útgefin byggingarleyfi og byggingar sem þegar hafa verið byggðar. Áformaðar endurbætur á kísil- verksmiðjunni rúmast innan gildandi deiliskipu- lags og kalla því einar og sér ekki á breytingu á skipulaginu. Umfang framkvæmda Í 1. áfanga verður unnið að úrbótaframkvæmdum svo unnt verði að endurræsa núverandi ljósboga- ofn til framleiðslu á 25.000 tonnum á ári af kísli. Endurbæturnar varða m.a. lóð verksmiðjunnar, breytingar á núverandi byggingum og nýbygg- ingar, uppsetningu á 52 m háum skorstein, með- höndlun hráefna, ljósbogaofn og afsogskerfi verk- smiðjunnar. Einnig verður farið í framkvæmdir til að auka hagkvæmni, bæta framleiðsluvörur og aðstöðu starfsmanna. Ekki er ljóst hvenær verður ráðist í uppbyggingu seinni áfanga sem tengjast stækkun verksmiðjunnar í framleiðslu- getu á allt að 100.000 tonnum af kísli á ári með ofnum 2 til 4. Mun það ráðast af þáttum eins og markaðsaðstæðum og möguleikum á fjármögnun. Þegar framkvæmdir við 1. áfanga verksmiðjunnar standa sem hæst munu allt að 70–90 manns starfa á svæði verksmiðjunnar og allt að 120 manns við hvern af seinni áföngum. Þegar núverandi ofn verður endurræstur er gert ráð fyrir um 70–80 starfsmönnum. Gert er ráð fyrir að um 190 manns verði starfandi í verksmiðjunni þegar fjórir ofnar verða komnir í rekstur. Samráðsgátt Stakksberg hefur opnað samráðsgátt vegna vinnslu frummatsskýrslu umhverfismats kísilverksmiðju fyrirtækisins í Helguvík. Með samráðsgáttinni vill Stakksberg stuðla að auknu samráði við almenn- ing, umfram það sem lög og reglur gera ráð fyrir, og er þetta í fyrsta sinn sem framkvæmdaraðili stendur fyrir samráði með þessum hætti á meðan á vinnslu frummatsskýrslu stendur. Með auknu samráði vonast Stakksberg til þess að fram komi athugasemdir frá almenningi sem stuðli að betri og vandaðri frummatsskýrslu. Samráðsgáttin er aðgengileg á slóðinni www.samrad.stakksberg.is. Stakksberg undirbýr endurbætur á fyrsta áfanga kísilversins 12 // VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.