Víkurfréttir - 13.05.2020, Síða 21
Hvað er merkilegt við 11. maí?
Fyrir marga er 11. maí ekkert merkilegri dagur en hver annar. Þessi dagur er
ekki einu sinni merktur inn á dagatölum. Hvað er þá eiginlega sérstakt við
þennan dag sem mörgum finnst ekkert merkilegur?
Jú, 11. maí var kallaður lokadagur-
inn, eða lokadagur vetrarvertíðar-
innar. Það var nefnilega þannig
á árum áður að það var oft mikil
keppni á milli báta og sjómanna um
að verða aflahæstir í sinni höfn nú
eða þá yfir landið allt. Má fara ansi
langt aftur í tímann til þess að finna
þessa keppni.
Í raun mætti fara alveg aftur til
ársins 1940 eða aðeins lengra aftur í
tímann til þess að sjá fréttir um ver-
tíðar- og aflakónga eftir hverja vertíð
– en þetta er liðin tíð. Eða er það
svo? Að mínu mati er ennþá spenn-
ingur í sjómönnum að fiska meira
en næsti sjómaður eða bátur og finn
ég það mjög vel í gegnum aflafrettir.
is því ég fæ svo mörg skilaboð um
að þessi og þessi hafi fiskað þetta og
þetta mikið og það vantar tölur inn á
þennan og þennan bát. Ég hef þurft
að endurreikna þennan bát því hann
er hæstur.
Já, kannski má segja að vertíðar-
stemmningin sé ennþá til staðar, þó
með allt öðru sniði því núna er þetta
kvóti og jafnvel mismunandi íspró-
senta sem hefur áhrif. Fer nánar út í
vertíðina í næsta pistli.
Lítum á aflabrögðin sem hafa verið
gríðarlega góð núna í maí. Mjög
margir línubátar eru búnir að vera
að veiðum skammt utan við Grinda-
vík og hafa allir bátar þar mokveitt.
Sem dæmi kom Beta GK með
sautján tonn í land í einni löndun
og er mynd af Betu GK með hérna.
Fékk hún þennan afla á þrettán
þúsund króka eða um 31 bala. Það
gerir um 596 kíló á bala sem er ekk-
ert annað en mokveiði.
Gísli Súrsson GK lenti líka í mok-
veiði. Hann kom í land með 15,2
tonn sem fékkst á aðeins uppreiknað
í bala alls 22 bala og það gerir um
691 kíló á bala. Þetta er rosalegur afli
svo ekki sé meira sagt. Gísli Súrsson
GK hefur landað alls 76 tonnum í
aðeins fimm róðrum.
Aðrir bátar hafa líka fiskað vel og
skulu nokkrir nefndir: Kristján HF
129 tonn í sjö róðrum og mest 25
tonn, Fríða Dagmar ÍS 128 tonn í tíu,
Jónína Brynja ÍS 127 tonn í ellefu,
Kristinn HU 116 tonn í sjö og mest
22,3 tonn, Sævík GK 99 tonn í átta,
Daðey GK 93 tonn í ellefu, Auður
Vésteins SU 70 tonn í fimm, Geir-
fugl GK 65 tonn í sjö og Katrín GK
45 tonn í sjö. Allir þessir bátar hafa
landað í Grindavík.
Eitthvað er lítið um að drag-
nótabátarnir hafi verið að veiða og
ennþá eru Nesfisksdragnótabátarnir
bundnir við bryggju en enginn drag-
nótabátur frá þeim hefur landað afla
síðan um miðjan apríl. Þetta þýðir
það að aðeins einn dragnótabátur
hefur verið að veiðum hérna við
Suðurnes og er það Aðalbjörg RE
sem hefur landað 22 tonn í þremur
róðrum.
Netabátarnir hafa fiskað mjög vel
og eru þeir flestir að veiðum inn í
Faxaflóa nema Bergvík GK og Sunna
Líf GK sem hafa verið að veiðum
utan við Sandgerði. Langanes GK er
hæstur með 87 tonn í sjö róðrum,
Maron GK 57 tonn í átta, Halldór Afi
GK 28 tonn í átta, Sunna Líf GK 24
tonn í fjórum, Bergvík GK 24 tonn
í sex og mest sjö tonn.
Netabáturinn Erling KE er svo far-
inn í burtu en hann fór ansi langt því
hann sigldi um 400 sjómílna leið alla
leið til Vopnafjarðar þar sem hann
mun vera í sumar til að stunda grá-
lúðuveiðar fyrir Brim ehf. og landa
á Vopnafirði.
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Beta GK.
VORTÓNLEIKAR
Vortónleikar verða haldnir dagana 15.–27. maí n.k.
Vegna gildandi samkomutakmarkana verður tónleikunum
streymt á YouTube, án tónleikagesta.
Nánari upplýsingar um YouTube-rásina
og tímasetningar tónleikanna eru á
Facebook-síðu og vefsíðu skólans.
SKÓLASLIT
Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöll, föstudaginn 29. maí kl. 18.00.
Afhending áfangaprófsskírteina.
Hvatningarverðlaun Íslandsbanka veitt.
Tónlistaratriði.
Skólaslitunum verður streymt á YouTube án gesta.
Nánari upplýsingar um YouTube-rásina o.fl.
eru á Facebook-síðu og vefsíðu skólans.
INNRITUN
Nú er heppilegur tími til að sækja um
skólavist fyrir skólaárið 2020–2021.
Því fyrr sem sótt er um, því meiri líkur eru á að komast að.
Sækja skal um á tonlistarskoli.reykjanesbaer.is undir hnappnum
„Endurnýjun og nýjar umsóknir“
Skólastjóri
Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg.
aFLaFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 21