Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2020, Page 19

Víkurfréttir - 13.05.2020, Page 19
pokaseiði eru flutt í seiðastöðina frá klakstöð fyrirtækisins að Núpum í Ölfusi. Seiðin eru alin í seiðastöðinni í tíu til tólf mánuði, eða þangað til þau hafa náð 100 gr. að stærð. Þá eru þau flutt úr seiðastöðinni yfir í áframeldið sem er utandyra í kerjum á landi. Þegar fiskur nær tilskilinni stærð er hann svo fluttur lifandi í sérútbúnum tankbílum til slátrunar og vinnslu í Sandgerði. Það er Ræktunarsamband Flóa og Skeiða sem sér um boranirnar á nýju sjóholunum og þær hafa gengið vel þrátt fyrir að þurft hafi að breyta verklaginu vegna núverandi ástands. Framkvæmdir eru langt komnar og á þeim að ljúka með virkjun nýrra hola fyrir lok júní næstkomandi. Eykur afköstin „Þetta mun auka afkastagetu fisk- eldisstöðvarinnar umtalsvert en þetta er mikið vatnsmagn sem við erum að dæla. Þegar framkvæmdum lýkur mun stöðin geta dælt tveimur og hálfum rúmmetra af vatni á sekúndu,“ segir Hjalti Bogason, rekstrarstjóri Samherja fiskeldis á Suðurnesjum, á heimasíðu Sam- herja. Nýlega fékk fiskeldisstöðin að Stað stækkun á rekstrarleyfi sínu í 3.000 tonn og félagið er að auki með 1.600 tonna leyfi að Vatnsleysu. Að sögn Hjalta mun fiskeldið á Suður- nesjum geta framleitt tæplega 4.000 tonn af bleikju þegar þessum hluta framkvæmdanna lýkur. Tuga milljarða útflutingsverðmæti Samherji fiskeldi er stærsti fram- leiðandi bleikju í heiminum með um 3.800 tonn árlega en það er tæplega helmingur allrar eldisbleikju sem er framleidd á heimsvísu. Radarinn, mælaborð sjávarútvegsins sem rekið er af SFS, greindi nýlega frá því að útflutningsverðmæti eldisafurða hafi verið 25 milljarðar króna á síðasta ári. Það er 90% aukning frá fyrra ári og hefur útflutningsverðmætið aldrei verið meira. Hjalti Bogason rekstrarstjóri Samherja fiskeldis á Suðurnesjum. Páll Ketilsson pket@vf.is Fimmtudagur 13. maí 2020 // 20. tbl. // 41. árg. VíKurFrÉttir á SuÐurNESJum í 40 ár // 19

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.