Fréttablaðið - 05.06.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 2 7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 5 . J Ú N Í 2 0 2 0
Töluverður fjöldi sótti laugar landsins í gær en gestir Sundlaugar Kópavogs svömluðu um í blíðskaparveðri og nutu geisla sólarinnar sem skein skært. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ALVÖRU MATUR
Á ÖRFÁUM MÍNÚTUM
EFNAHAGSMÁL Fasteignagjöld á
atvinnuhúsnæði í ár og á næsta ári
hafa aldrei verið hærri. Á sama tíma
er glímt við dýpstu niðursveif lu í
100 ár. Fyrirtæki munu greiða um
28 milljarða á þessu ári og aðra 28
milljarða á næsta ári.
Skattarnir hafa hækkað um nær
50 prósent að raunvirði frá árinu
2015 og 20 prósent frá 2018 þegar
niðursveiflan í efnahagslífinu hófst.
Þetta kemur fram í greiningu Sam-
taka iðnaðarins.
„Það þarf að bregðast skjótt við
vaxandi skattheimtu sveitarfélaga í
ljósi þess hve niðursveiflan er djúp,“
segir Ingólfur Bender, aðalhagfræð-
ingur Samtaka iðnaðarins, í samtali
við Fréttablaðið.
„Lækkun fasteignagjalda mun
hjálpa til við að draga úr þessari
djúpu niðursveiflu, verja fyrirtæki
og leiða til þess að atvinnurekendur
geti haft f leiri í vinnu. Sveitar-
félögin geta ekki verið stikkfrí í
hagstjórninni. Allir þurfa að leggja
hönd á plóg,“ bætir hann við.
Samkvæmt greiningu Samtaka
iðnaðarins munu íslensk fyrir-
tæki greiða rúmlega eitt prósent
af landsframleiðslu í fasteigna-
skatta til sveitarfélaga á þessu ári.
Til samanburðar var skattheimtan
ríflega 0,7 prósent fyrir fimm árum.
Skattheimtan er jafnframt há í
erlendum samanburði en hlutfallið
er að meðaltali tæplega 0,4 prósent í
iðnvæddum ríkjum.
Ingólfur segir að það sé verkefni
hins opinbera og Seðlabankans að
draga úr niðursveiflunni og undir-
byggja viðspyrnu hagkerf isins
með því að draga úr álögum, auka
útgjöld, lækka stýrivexti og auka
útlánagetu bankakerfisins.
„Sveitarfélög eru stór þáttur af
umsvifum hins opinbera. Þau þurfa
að aðstoða heimili og fyrirtæki við
að takast á við efnahagsáfallið.
Hærri fasteignaskattar gera hið
gagnstæða,“ segir hann og nefnir
að almennt sé leitast við að draga
úr álögum í niðursveiflu.
Ingólfur segir að sveitarfélögin
hagi sér með þveröfugum hætti í
þessari skattheimtu.
„Sveitarfélögin ættu nú að lækka
fasteignaskatta og fella niður gjald-
daga til að mæta efnahagssam-
drættinum,“ segir hagfræðingur-
inn. – hvj
Fasteignagjöldin aldrei hærri
Aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins segir að sveitarfélög geti ekki verið stikkfrí í hagstjórninni. Þau
þurfi að aðstoða heimili og fyrirtæki við að takast á við efnahagsáfallið. Hærri skattar geri hið gagnstæða.
Sveitarfélögin ættu
nú að lækka fast-
eignaskatta og fella niður
gjalddaga til að mæta
efnahagssamdrættinum.
Ingólfur Bender,
aðalhagfræð-
ingur Samtaka
iðnaðarins
FASTEIGNIR Fjármálaráðuneytið
keypti umdeildan steyptan grunn á
sumarhúsalóð í Þingvallaþjóðgarði
á 35 milljónir króna. Framkvæmdir
á staðnum stöðvuðust árið 2008 og
hefur málið síðan reynst erfitt.
„Þetta er niðurstaða sem byggir
á þeim heimildum og samningum
sem eru í gildi. Hún þýðir að það
mun ekki rísa sumarbústaður
þarna,“ segir Einar Á. E. Sæmund-
sen, þjóðgarðsvörður á Þingvöllum.
Næsta verkefni sé að ákveða hvað
verði um grunninn. – gar / sjá síðu 2
Festu kaup á
umdeildum
húsgrunni
Einar Á.E.
Sæmundsen,
þjóðgarðsvörður
á Þingvöllum.