Fréttablaðið - 05.06.2020, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 05.06.2020, Blaðsíða 16
Ég hef brennandi áhuga á matargerð og finnst fátt skemmtilegra en að dunda mér í eldhúsinu við að búa til og borða góðan mat,“ segir Steinunn Steinarsdóttir, leikskólakennari, grænkeri og matarbloggari í Lund- únum, þangað sem hún flutti með fjölskyldu sinni í júní 2018. „Okkur langaði að prófa eitt- hvað nýtt og spennandi. Mann- inum mínum var boðið starf hér úti og okkur fannst tilvalið að láta slag standa. Þar sem London er ein af uppáhaldsborgunum okkar erum við himinlifandi með að vera hér,“ segir Steinunn sem jafnan er kölluð Steina. Hún segir London frábæra borg. „Hér iðar allt af mannlífi, hvert sem maður fer. Fjölbreytileikinn er allsráðandi og það er mjög skemmtilegt að vera mataráhuga- manneskja í London því hér eru veitingastaðir sem leggja áherslu á matargerð úr öllum heimshornum og af nógu að taka. Eins eru hér ansi mörg veitingahús sem bjóða eingöngu upp á grænkeramat og við reynum að fara reglulega út að borða á þeim stöðum.“ Södd og hraust á veganfæði Steina og fjölskylda ákváðu að prófa að spreyta sig á grænkera- fæði í Veganúar árið 2016. „Eftir mánuð á grænkerafæði fannst okkur eiginlega fráleitt að fara aftur að borða dýr og dýraafurðir. Við vorum jafn södd og áður, öll hraust og ekkert okkar með þennan alræmda næringar- skort. Í raun var ótrúlega einfalt að skipta út hráefnum til að gera matinn hentugan fyrir grænkera. Ég byrjaði á að gera vegan-útgáfu af réttum sem við borðuðum hvað oftast heima; hakk og spagettí, vefjur, pítur, pítsur og bollur í brúnni sósu. Allt er þetta spurning um að prófa sig áfram, skoða hvað manni finnst gott og vinna sig út frá því,“ upplýsir Steina. Hún segir jákvætt fyrir alla og ekki bara grænkera að elda stöku sinnum vegan-krásir til að létta á kolefnissporinu og loftlagsvánni. „Þó svo að vera grænkeri snúist fyrst og fremst um velferð dýra er umhverfisvernd og heilsa líka oft ein af ástæðum þess að fólk kýs að borða plöntufæði. Eins og staðan er í dag fer ótrúlega mikil orka í að rækta dýr og búa til dýraafurðir. Því er ekki hægt að líta framhjá því að ef við slepptum þessum milliliðum, sem eru oft stórar skepnur sem borða miklu meira en ein manneskja, og nýta þess í stað orkuna sem fer í að fóðra dýrin í að rækta mat fyrir fólk myndi það aldrei kosta meiri orku,“ segir Steina og bendir á áhugaverðar upplýsingar um kolefnisspor matar á matarspor.is. „Oft er talað um heilsufarslegan ávinning af því að verða grænkeri og við höfum alveg fundið fyrir þeim áhrifum. Bæði ég og maður- inn minn léttumst um nokkur kíló en ég held það hjálpi mér ekki mikið með vigtina að vera matar- bloggari og alltaf að möndla með mat. Sjálf finn ég mikinn mun á meltingunni. Ég er með mjólkur- óþol og þurfti alltaf að fara varlega í mjólkurvörur en nú er það ekki lengur vandamál.“ Grænkerar góðviljaðir Steina setti matarbloggið „A bite of kindness“ á laggirnar í fyrra en áður hafði hún verið með íslensku vefsíðuna steina.is. „Mig langaði að höfða til breiðari hóps og endurspegla hugmyndafræði mína í nafni síðunnar. Það að vera grænkeri felur nefnilega í sér góðvild. Góð- vild gagnvart dýrum, umhverfinu, heilsu, öðru fólki og okkur sjálf- um. Ég vil meina að ef við lifum í góðvild og kærleika séu okkur allir vegir færir,“ segir Steina. Uppáhaldskósímaturinn hennar um helgar er pítsa. „Við fjölskyldan elskum pítsu sem er hin fullkomna máltíð og hægt að útbúa á fjölbreyttan máta, bæði léttar og mjög matarmiklar. Við gerum hana ýmist sjálf með allskonar áleggi eða pöntum. Mín uppáhaldspítsa er samt heima á Íslandi og ég held að Íslenska flat- bakan sé einn allra besta pítsa- staður í heimi.“ Um helgina ætlar Steina að dytta að garðinum og reyta arfa í mat- jurtagarðinum. „Þar sem allt er meira og minna enn lokað vegna COVID 19 í London eru helgarplönin ekkert svakaleg. Ég skrepp kannski í garð- búðina sem er opin en við gætum þurft að standa í röð til að komast inn vegna fjöldatakmarkana. Þannig er lífið hérna úti núna; að standa í röð ef maður vill komast í búð. Við höfum þess vegna kynnt vel undir samband okkar við Ama- zon undanfarið,“ segir Steina sem hefur það mjög gott í Lundúnum og er ekki tilbúin að flytja heim. „Ég verð þó að viðurkenna að ég finn fyrir heimþrá af og til. Sér- staklega þegar vinir og ættingjar birta myndir út útilegum. Útilegur í íslenska sumrinu eru líklega það besta í heimi.“ Teriyaki Oumph-vefjur með mangó-chilli sósu 1 poki ókryddaðir Oumph Chunks 1 tsk. sesamolía 1 msk. sólblómaolía Smávegis af chillidufti Salt og pipar eftir smekk ½ flaska þykk Teriyaki-sósa (Blue Dragon Sticky Japanese Sauce virkar vel) Mangó-chilli sósa: ½ bolli mangó ½ bolli vegan grísk jógúrt 1 tsk. sojasósa 1 tsk. eplaedik 1 msk. sweet chili sósa Annað: 8 tortilla vefjur eða stór salatblöð ½ paprika, skorin í strimla ½ agúrka, skorin í sneiðar ¼ rauðkál, skorið í þunnar ræmur Handfylli af brokkólíspírum Handfylli af fersku kóríander Sesamfræ Hitið sesamolíu og sólblómaolíu á pönnu og bætið Oumph-bitunum út á. Steikið á miðlungshita þar til bitarnir eru orðnir heitir í gegn og aðeins byrjaðir á brúnast. Bætið teriyaki-sósu út á ásamt chilli, salti og pipar. Hrærið vel og látið malla í 3-5 mínútur á meðan teriyaki- sósan þykknar. Takið af hitanum og setjið til hliðar. Mangó-chilli-sósan: Setjið mangó í matvinnsluvél og maukið þar til mangóið er vökva- kennt. Bætið grískri jógúrt út í ásamt sweet chili-sósu, eplaediki og sojasósu. Blandið vel saman, bætið við salti og pipar ef vill. Dreifið grænmeti yfir vefju eða salatblað, bætið Oumph-bitum ofan á og toppið með mangó- chilli-sósu og sesamfræjum. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Teriyaki Oumph-vefjur með mangó-chilli sósu er einstaklega bragðgóður matur á kósí helgarkvöldi og tilvalinn til að prófa sig áfram á grænkerafæði. Allir vegir færir með góðvild Leikskólakennarinn Steinunn Sigurðardóttir gerir grænkeragarðinn frægan með matarbloggi sínu í London. Hún segir góðvild einkenna grænkera og er með heimþrá í íslenskt útilegusumar. Hamingjusöm fjölskylda á göngu um Langley Park nýlega, rétt fyrir utan London. Á myndinni eru Steina og Björn með dætrunum Emblu og Emilíu. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is Nán ri upplýsi ar um blaðið veitir : Jón Ívar Vilhelmsson, markaðsfulltrúi Fréttablaðsins. Sími 550 5654/ jonivar@frettabladid.is Þriðjudaginn 9. júní gefur Fréttablaðið út sérblaðið SUNDLAUGAR OG JARÐBÖÐ Það er í eðli okkar Íslendinga að stunda sundmennsku af kappi, hvort sem við förum ein í laugina eða með fjölskyldunni. Sumir njóta þess að synda af kappi, aðrir sjóða sig í pottunum og enn aðrir sóla sig í vaðlaugunum á meðan krakkarnir leika sér í rennibrautunum. Nú er komið sumar og sólin farin að leika við okkur og sumarfríin á næsta leiti og því fer fólk að spá í sundlaugarnar sem verða á vegi þess á ferð um landið. Tryggðu þér auglýsingapláss í mest lesna dagblaði landsins. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.