Fréttablaðið - 05.06.2020, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.06.2020, Blaðsíða 4
Atvinnulífið á Íslandi er of fá- breytt, það vantar meiri fjölbreytni. Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, formaður BHM Aðeins 58 prósenta kjörsókn var í sveitarstjórn- arkosningum í Hafnarfirði árið 2018. HAFNARFJÖRÐUR Samfylkingin í Hafnarfirði vill fjölga kjörstöðum til að bæta aðgengi íbúanna. Kjör- stjórn hefur ákveðið að kjörstaðir fyrir forsetakosningarnar verði tveir, Lækjarskóli og Víðistaðaskóli. Adda María Jóhannsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar, lagði fram til- lögu í bæjarráði í gær um að bætt verði við kjörstað í Vallahverfi. Íbúafjölgun hefur verið mest sunnan Reykjanesbrautar, og þá sérstaklega í Skarðshlíð. Þeir íbúar þurfa hins vegar að kjósa í Lækjar- skóla. Kjörsókn í sveitarstjórnarkosn- ingunum í Hafnarfirði árið 2018 var afar dræm, aðeins 58 prósent. – khg Vill fjölga kjörstöðum Enginn kjörstaður er á Völlunum í Hafnarfirði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögreglu á meintu manndrápi í Sandgerði í mars er langt komin að sögn Ólafs Helga Kjartanssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Karlmaður á sex- tugsaldri hefur setið í gæsluvarð- haldi vegna málsins síðan í byrjun apríl en hann var handtekinn fjórum dögum eftir andlát sam- býliskonu hans. Heimildir herma að grunur um kyrkingu hafi vaknað við krufningu. Rannsókn á andláti konu í Hafnarfirði snemma í apríl miðar einnig vel að sögn Margeirs Sveins- sonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns lögreglunnar á höfuðborgarsvæð- inu. Sonur hinnar látnu hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn á vettvangi, grunaður um að hafa stungið móður sína til bana með hnífi. Hann er um þrítugt og sagður hafa átt við geð- og fíkni- vanda að stríða. – aá Rannsóknirnar á lokastigum HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU – MEST LESNA DAGBLAÐ LANDSINS Auglýsingaefnið lendir á eldhúsborðinu þegar blaðið er opnað! Íslendingar lesa Fréttablaðið daglega að meðaltali.* Kannaðu dreiileiðir og verð í síma 550 5050 eða sendu tölvupóst á orn@frettabladid.is. Útvegum einnig hagstæð verð í prentun. 93.000 *Prentmæling Gallup, 12 - 80 ára, okt. - des. 2019. Mannnöldatölur Hagstofu Íslands 2019 Heimild: Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018 2019 ✿ Mannfjöldi eftir menntunarstöðu Hlutfallsleg skipting samkvæmt ISCED 2011 staðlinum. n Karlar á höfuðborgarsvæðinu n Karlar utan höfuðborgarsvæðis n Konur á höfuðborgarsvæðinu n Konur utan höfuðborgarsvæðis SAMFÉL AG Sex af hverjum tíu konum á aldrinum 25 til 64 ára á höfuðborgarsvæðinu eru háskóla- menntaðar en hlutfallið var 36 pró- sent árið 2003. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar. Alls eru 45 prósent landsmanna á þessu aldursbili með háskólamenntun. 40 prósent kvenna á aldrinum 25 til 64 ára utan höfuðborgarsvæðisins eru með háskólamenntun sem er aukning úr 19 prósentum árið 2003. 45 prósent karla á höfuðborgar- svæðinu á þessu aldursbili eru með háskólapróf, aukning úr 32 pró- sentum árið 2003. Athygli vekur að um 23 prósent karla utan höfuð- borgarinnar eru með háskólapróf en hlutfallið var 14 prósent árið 2003. Árið 2008 urðu háskóla- menntaðir f leiri en þeir sem eru með grunnmenntun. Er nú um 21 prósent landsmanna með grunn- menntun sem hæsta menntunar- stig, úr 34 prósentum árið 2003. Hlutfall þeirra sem hafa starfs- og framhaldsmenntun sem hæsta menntunarstig hefur haldist til- tölulega stöðugt, en það var tæp 38 prósent árið 2003 og rúm 33 prósent árið 2019. „Þessar niðurstöður koma ekki á óvart. Það hefur legið fyrir í ára- tugi að konur hafa sótt sér háskóla- menntun í mun ríkara mæli en karlar,“ segir Þórunn Sveinbjarnar- dóttir, formaður Bandalags háskóla- manna. „Ég staldra við muninn á höfuðborgarsvæðinu og lands- byggðinni, þessar tölur benda til að það séu fá tækifæri fyrir háskóla- menntaða á landsbyggðinni.“ Segir hún það áhyggjuefni að atvinnulífið sé ekki að þróast í takt við menntun vinnuaf lsins. „Atvinnulífið á Íslandi er of fábreytt, það vantar meiri fjölbreytni. Það þarf að halda úti og efla opinbera Sex af tíu eru með háskólapróf Sex af hverjum tíu konum á aldrinum 25 til 64 ára á höfuðborgarsvæðinu eru háskólamenntaðar. Hlutfall- ið lægst meðal karla á landsbyggðinni. Formaður BHM segir fá tækifæri fyrir háskólamenntaða úti á landi. Konur eru líkt og fyrri ár í meirihluta háskólamenntaðra. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR SEYÐISFJÖRÐUR Bæjarráð Seyðis- fjarðar gagnrýnir uppsagnir starfs- manna Skattsins á Seyðisfirði. Á fundi bæjarráðs sem haldinn var á miðvikudag var staða tollvarða- mála í bænum einnig til umfjöllunar en Norræna leggur að höfninni í Seyðisfirði. „Það er með öllu óásættanlegt, að á sama tíma og sveitarfélög eru hvött til að spyrna við og skapa atvinnu á tímum COVID-19, eru útsvarstekjur Seyðisfjarðarkaupstaðar rýrðar með því að leggja niður störf og færa þau til Reykjavíkur,“ segir í bókun bæjar- ráðs. „Bæjarráð Seyðisfjarðar óskar eftir fundi með Skattstjóra eins fljótt og verða má til þess að fara yfir rök- stuðning vegna aðgerðanna. Bæjar- ráð Seyðisfjarðar mótmælir þessum uppsögnum harðlega og hvetur Skattinn til að endurskoða þessa ákvörðun sína.“ – bb Hagræðing fólgin í því að fljúga með tollara austur Bæjarráð Seyðisfjarðar mótmælir uppsögnum harðlega. MYND/TOLLURINN DÓMSTÓLAR Ekkert verður af mál- flutningi í máli tónlistarmannsins Jóhanns Helgasonar í Los Angeles í Bandaríkjunum þar sem tekist er á um hvort hann þurfi að greiða málskostnað mótaðila sinna í laga- stuldarmálinu um Söknuð. Málf lutningurinn átti að vera í dag. Til stóð að lögmenn beggja aðila mættu í dómsal til að rök- styðja sjónarmið sín í málinu. Dómarinn gaf hins vegar óvænt út í fyrradag að hann þyrfti ekki á slíku að halda til að úrskurða í málinu. Sami dómari vísaði í apríl máli Jóhanns frá dómi og bíður áfrýjun á þeirri ákvörðun meðferðar hjá sérstökum áfrýjunardómstóli. Í millitíðinni hafa lögmenn tón- listarfyrirtækjanna sem Jóhann stefndi, auk höfunda lagsins You Raise Me Up, farið fram á að hann greiði lögmannskostnað þeirra upp á jafnvirði 48 milljóna króna. Þeirri kröfu lýsti lögmaður Jóhanns sem svívirðilegri í greinargerð til dóms- ins. Ey þór Gunnars son, hljóm sveitar- með limur Mezzo forte, hvatti í gær tón listar menn um allan heim til að sam einast í stuðningi við Jóhann Helga son í máli tón listar risanna Uni ver sal og Warner gegn Jóhanni í Facebook-færslu. – gar Dómari í málskostnaðarmáli Jóhanns Helgasonar hlustar ekki á lögmennina Andre Birotte Jr. dómari í Los Ange- les úrskurðar í málinu. MYND/AFP Ekkert verður úr boð- uðum málflutningi lög- manna í deilunni um máls- kostnaðarkröfu á hendur Jóhanni Helgasyni. þjónustu, það sáum við í farsótt- inni. Það vantar meiri nýsköpun í atvinnulíf, fjölbreyttari störf til að fólk geti nýtt menntun sína.“ Vífill Karlsson, dósent í hag- fræði við Háskólann á Akureyri og ráðgjafi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, segir einn af ráð- andi þáttum fyrir muninum á háskólamenntun kvenna og karla á landsbyggðinni trúlega launamun kynjanna, þegar til lengri tíma er litið. „Það hefur verið sýnt fram á að launamunurinn sé meiri milli karla og kvenna á landsbyggðinni en á höfuðborgarsvæðinu. Þá hefur verið sýnt fram á að konur, vegna launamunarins, hagnist meira á því að sækja sér háskólamenntun,“ segir Vífill. „Ófaglærðir karlar eiga auðveldara með að komast í vel borguð störf en konur. Karlar eru frekar sjómenn og sækja frekar í störf í álverum.“ Vífill segir að arðsemin sé meiri við að bæta við sig menntun á höf- uðborgarsvæðinu en á landsbyggð- inni. „Þetta er alþjóðlegt mynstur, arðsemin við aukna menntun er meiri í borgum vegna þess að hvers kyns sköpun er þar meiri, afkoma atvinnulífsins betri, laun þar með hærri og fjölbreytni og sérhæfing vinnumarkaðarins meiri.“ arib@frettabladid.is 5 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.