Fréttablaðið - 05.06.2020, Side 8
UMHVERFISMÁL Dr. Helgi Þór Inga-
son, prófessor við verkfræðideild
HR, var ráðinn tímabundið til þess
að taka við stöðu framkvæmda-
stjóra Sorpu fyrr á árinu. Verkefni
hans er að leiða fjárhagslega endur-
skipulagningu fyrirtækisins.
Hann segist ekki hafa verið ráð-
inn til að rýna mistök sem gerð hafi
verið í rekstri Sorpu undanfarin ár
heldur sé það hans verkefni að líta
til framtíðar og breyta fyrirtækinu
til betri vegar. Þar er gas- og jarð-
gerðarstöðin GAJA stærsta verkefn-
ið og segist Helgi vera sannfærður
um að um byltingu verði að ræða
þegar verksmiðjan verður opnuð
þann 16. júní næstkomandi.
GAJA hefur verið afar umdeild.
Kostnaður við verkefnið hefur farið
um 1,5 milljörðum króna fram úr
áætlunum og verklok hafa tafist. Þá
hafa verið sett spurningarmerki við
rekstrarhæfi verksmiðjunnar. Það
segir Helgi að byggist á grundvallar-
misskilningi.
„Það telja margir að markmiðið
með GAJA sé að framleiða afurðir úr
verksmiðjunni og koma þeim síðan
í verð til þess að standa straum af
stofn- og rekstrarkostnaði. Það er
í rauninni bónus ef það tekst en
það var þó aldrei ætlunin að stöðin
stæði undir sér. Ég tel það í raun og
veru frekar ólíklegt. GAJA er fyrst
og fremst umhverfisverkefni og
tilkomin vegna þess að eigendur
fyrirtækisins ákváðu að hætta að
urða sorp eins og gert hefur verið í
áratugi. GAJA er því verðið sem við
borgum til þess að hegða okkur eins
og ábyrgt fólk í umhverfismálum.“
Í einfölduðu máli mun GAJA
virka þannig að tekið verður við
venjulegu heimilissorpi í sérstakri
móttökumiðstöð í Gufunesi. Þar
verður lífrænt efni f lokkað frá og
þaðan fer efnið upp í GAJA þar
sem ætlunin er að framleiða úr því
moltu og metangas.
Segja má að GAJA-verkefnið
standi og falli með því að hægt verði
að búa til nothæfa moltu. Á dögun-
um birti Stundin ítarlega grein um
málefni GAJA þar sem meðal ann-
ars er fullyrt að fjárfest hafi verið í
úreltri tækni og að afar ólíklegt sé að
hægt verði að búa til nothæfa moltu
úr blönduðum heimilisúrgangi.
Helgi vísar þessari gagnrýni á bug
en segist hafa fullan skilning á efa-
semdaröddunum. „Það er eðlilegt
að fólk setji spurningarmerki við
að búa til moltu úr blönduðu heim-
ilissorpi. Það er mögulegt því að
heimilin eru mjög dugleg að flokka.
Mælingar okkar sýna að um 70 pró-
sent af heimilissorpi séu lífræn.“
Hann er sannfærður um að hægt
verði að búa til moltu sem verður
nothæf sem jarðvegsbætir. „Það
mun þó ekki gerast á einni nóttu.
Við munum þurfa að þróa ferlið og
fínpússa það,“ segir Helgi.
Fyrst um sinn er fyrirhugað að
nota moltuna í uppgræðslu á Álfs-
nesi og víðar á höfuðborgarsvæðinu
en að sögn Helga er mikill áhugi á
notkun vörunnar. „Við eigum meðal
annars í viðræðum við Skógræktar-
félag Reykjavíkur og Skógræktar-
félag Íslands,“ segir Helgi. Moltan
verði þó ekki seld og svo gæti
farið að Sorpa þurfi að taka þátt
í kostnaði við f lutning hennar til
afskekktari svæða. „Ég lít á það sem
markaðsþróunarkostnað. Sparn-
aðurinn felst í því að þurfa ekki að
urða efnið.“
Fyrir liggur að GAJA mun tvö-
falda metanframleiðslu Sorpu á
tímabili. Þó að Sorpa selji um 1,8
milljónir rúmmetra af gastegund-
inni í dag er stór hluti framleiðsl-
unnar enn brenndur. Helgi segir að
margir kostir séu varðandi notkun
metans. Þar sé ekki aðeins um að
ræða að nota gasið sem eldsneyti
á bíla.
„Það eru margir aðrir raunhæfir
kostir í stöðunni. Sem dæmi getum
við framleitt rafmagn til eigin nota,
við getum selt það til skemmti-
ferðaskipa sem ekki mega nota
hefðbundið eldsneyti innan okkar
lögsögu og að auki hafa erlendir
aðilar sýnt áhuga á að flytja það úr
landi með skipum. Við munum geta
notað þessa afurð þó að sjálfsögðu
munum við vilja fá sem hæst verð
fyrir hana,“ segir Helgi.
Hann segist eiga von á því að til
tíðinda dragi á næstu vikum varð-
andi sölu og notkun metansins.
Nánar er rætt við Helga á vef Frétta-
blaðsins. bjornth@frettabladid.is
Misskilningur að Sorpa eigi
að skila hagnaði til eigenda
Tímabundinn framkvæmdastjóri Sorpu segist sannfærður um að GAJA, gas- og jarðgerðarstöð fyrirtækis-
ins, valdi byltingu í umhverfismálum á höfuðborgarsvæðinu. Hann hafi skilning á efasemdaröddum um
moltugerð úr óflokkuðu heimilissorpi en að það sé mögulegt því 70 prósent heimilissorps eru lífræn.
Afgreiðslutímar á www.kronan.is
Í SUMARDRY
KK
IN
N
SÍTRÓ
NA
Fáðu töfra
innblástur á
kronan.is/
töfrar
DRYKK!
SUMAR
Töfraðu þá fram
Þegar lífið færir þér sítrónu …
COVID-19 Stefan Löfven, forsætis-
ráðherra Svíþjóðar, greindi frá því
á blaðamannafundi í gær að þeim
Svíum sem ekki eru smitaðir af
COVID-19 verði heimilt að ferðast
án takmarkana innan landsins frá
og með 13. júní.
Sóttvarnastofnun landsins telur
óhætt að treysta Svíum til að sýna
ábyrgð í ferðalögum og halda nægri
fjarlægð. Þrátt fyrir að lífið sé að
komast í fyrra horf verður áfram
bann við heimsóknum á elli- og
hjúkrunarheimili.
Tilfellum hefur fjölgað óverulega
og 20 höfðu látist sólarhringinn
fyrir fundinn. – hó
Svíar geta ferðast
án takmarkana
Stefan Löfven, forsætisráðherra á
blaðamannafundinum í gær.
Sparnaðurinn felst í
því að þurfa ekki að
urða efnið.
Helgi Þór Ingason, framkvæmda-
stjóri Sorpu
BANDARÍKIN Lisa Murkowski, öld-
ungadeildarþingmaður Repúblik-
anaflokksins frá Alaska, segir óvíst
hvort hún styðji Donald Trump í
forsetakosningunum. Sagði hún
þetta eftir að hafa séð ummæli her-
foringjans James Mattis. Hann sagði
Trump fyrsta forsetann í sinni lífs-
tíð sem væri vísvitandi að reyna að
sundra þjóðinni.
„Ég á í erfiðleikum með þetta,“
sagði Murkowski. Hún mun starfa
áfram með Trump og stjórninni en
óvíst er hvorn hún kýs í haust. – khg
Ekki viss um að
kjósa Trump
Murkowski situr á þingi fyrir Alaska.
Helgi Þór, sem er prófessor við HR, var ráðinn tímabundið sem framkvæmdastjóri Sorpu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
5 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð