Fréttablaðið - 05.06.2020, Side 10
Frá degi til dags
Halldór
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is,
Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is
LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
Slíkt afnám
verðtrygg-
ingarinnar,
sem mun þá
gerast af
sjálfu sér en
ekki með
beinni
íhlutun
stjórnvalda,
er af hinu
góða og
mun bæta
miðlun
peninga-
stefnunnar.
Síðustu
mánuðir
hafa sýnt
hve sveigj-
anleikinn
getur aukið
lífsgæði og
létt á um-
ferðarálagi.
Aðgerðin er
einföld og
kostar
skattgreið-
endur
ekkert.
Árið 1926 fækkaði framsýnn kapítalisti, Henry Ford, vikulegum vinnudögum í verksmiðjum sínum úr sex í fimm. Þar með innleiddi hann
fjörutíu stunda vinnuviku sem var sá nákvæmi tíma
fjöldi sem Ford taldi nauðsynlegan svo framleiða mætti
bifreiðar í samræmi við eftirspurn. Fjörutíu stunda
vinnuvikan var svo lögleidd í Bandaríkjunum árið 1940
en hérlendis árið 1971.
Síðan eru liðnir fjölmargir áratugir. Heimurinn hefur
tekið ótrúlegum breytingum. Vélvæðing, tölvuvæðing,
snjallvæðing og netvæðing hafa gjörbreytt umheim
inum – en áfram miðar vinnuumhverfi samtímans við
framleiðsluferli Ford bifreiða árið 1926. Það er heilbrigt að
velta því upp hvers vegna vinnudagur samtímans er enn
átta stundir. Hvers vegna netvæðing hefur ekki leitt til
aukinnar fjarvinnu. Hvers vegna vinnu má ekki stundum
mæla í afköstum fremur en klukkustundum. Hvers vegna
landsmenn hefji flestir sinn vinnudag um sama leyti.
Á tímum samkomubanns dró verulega úr umferðar
töfum í Reykjavík. Vinnustaðir buðu sveigjanlegri
vinnutíma og möguleikum til fjarvinnu fjölgaði.
Mörgum urðu ljós þau gífurlegu tækifæri sem felast
í auknum sveigjanleika, ekki síst svo draga megi úr
umferðarálagi. Samtök iðnaðarins áætluðu að 15%
minni umferðartafir gætu skilað fólki og fyrirtækjum
80 milljarða króna ábata á örfáum árum. Þá eru ótalin
þau auknu lífsgæði sem felast í greiðum samgöngum.
Svo unnt verði að standast skuldbindingar Parísar
samkomulagsins þarf að minnka mengandi umferð um
5% árlega – það samsvarar 6,7 km akstri á hvern íbúa
vikulega. Þessu markmiði mætti hæglega ná með þeirri
einföldu aðgerð að tryggja starfsfólki einn fjarvinnu
dag vikulega. Ávinningurinn er margvíslegur.
Nú er lag að hefja viðræður við stærstu vinnustaði
borgarinnar um sveigjanlegri vinnutíma. Síðustu
mánuðir hafa sýnt hve sveigjanleikinn getur aukið
lífsgæði og létt á umferðarálagi. Aðgerðin er einföld og
kostar skattgreiðendur ekkert. Nú er kominn tími til að
endurskoða þau kerfi sem við höfum skapað samfélag
inu – og kanna hvort þau séu raunverulega að þjóna
okkur. Nú er kominn tími til að stokka spilin!
Stokkum spilin
Hildur
Björnsdóttir
borgarfulltrúi
Sjálfstæðis-
flokksins í
Reykjavík
Sími: 561 1433
mánudaga-föstudaga 7.30 -17.30
laugardaga 8.00 -16.00
sunnudaga 9.00 -16.00
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
PREN
TUN
.IS
NÝBAKAÐ
BRAUÐ
ALLA DAGA
.......................................
www.bjornsbakari.is
Þetta átti ekki að vera hægt. Meginvextir Seðlabankans eru nú aðeins eitt prósent – þeir voru 4,5 prósent fyrir rétt rúmlega einu ári – og Ísland er komið á svipaðar slóðir lágvaxtaumhverfis eins og þekkst hefur í okkar helstu nágranna
löndum um nokkurt skeið. Þetta eru nýmæli en sögulega
séð hefur okkur reynst erfitt að beita vaxtatækinu til að
örva eftirspurn í efnahagsþrengingum án þess að óttast
hið þekkta stef gengisveikingar og í kjölfarið aukna verð
bólgu.
Nú er öldin önnur. Ástæðurnar eru flestum vel kunnar.
Á aðeins örfáum árum breyttist Ísland frá því að vera
jafnan með viðvarandi viðskiptahalla í fjármagnsútflytj
anda, byggði upp stóran gjaldeyrisforða á meiri hraða
en dæmi eru um hjá nokkru öðru ríki, skuldir ríkissjóðs
lækkuðu ört og urðu aðeins 30 prósent af landsfram
leiðslu, þjóðhagslegur sparnaður er í hæstu hæðum og
eignastaða þjóðarbúsins við útlönd er jákvæð um 700
milljarða. Á þessum sterka grunni, sem varð einkum
til vegna uppgangs ferðaþjónustunnar og stöðugleika
skilyrða sem kröfuhafar gömlu bankanna gengust undir,
erum við í einstakri stöðu til að fást við þær efnahagslegu
hamfarir sem hafa hlotist af sóttvarnaaðgerðum stjórn
valda.
Erfitt er að ofmeta þær miklu kjarabætur sem felast
í lægri vöxtum fyrir meginþorra heimila. Í stað þess að
reyna að sækja launahækkanir hjá atvinnurekendum,
sem engin innstæða er almennt fyrir og mun aðeins
auka enn frekar á atvinnuleysið, ættum því við fremur
að horfa til þeirra auknu ráðstöfunartekna sem almenn
ingur er nú að njóta – og kunna að verða enn meiri – á
grundvelli lækkandi vaxta. Breytilegir óverðtryggðir
vextir bankanna eru nú um 3,5 prósent og hafa lækkað
um liðlega helming frá árinu 2015. Fyrir venjulegt íslenskt
heimili, sem er kannski með 30 milljóna íbúða lán, þýðir
það um 80 þúsund króna lægri greiðslubyrði á mánuði
en áður.
Geta bankarnir gengið lengra svo vaxtalækkanir Seðla
bankans skili sér enn betur til heimila – og fyrirtækja
– en hingað til? Það veltur á ýmsu. Rekstur bankanna
einkennist nú af útlánatöpum og erfiðum markaðsað
stæðum og því ljóst að ef þeir kjósa að ganga á vaxtamun
inn mun það bitna verulega á arðsemi þeirra sem var ekki
burðug fyrir. Seðlabankinn gæti liðkað þar fyrir með því
að opna fyrir greiðari lausafjárfyrirgreiðslu, meðal ann
ars með því að heimila endurhverf lánaviðskipti til nokk
urra ára gegn tryggum veðum, þannig að bankarnir geti
miðlað áfram því gríðarmikla fjármagni sem þeir sitja nú
á til heimila og fyrirtækja á enn lægri vöxtum. Það ætti
aftur að styðja verulega við viðspyrnu efnahagslífsins.
Er tímabil lágra vaxta komið til að vera? Það er að
stórum hluta undir okkur sjálfum komið, ekki hvað síst
þróun mála á vinnumarkaði. Haldist verðbólga áfram
undir markmiði Seðlabankans, eins og allar forsendur
eru fyrir hendi til, og vextir verða lágir þá munu heimili
landsins halda áfram að færa sig úr verðtryggðum íbúða
lánum í óverðtryggð – nær öll ný íbúðalán bankanna
síðustu misseri eru óverðtryggð – samhliða því að sá
lánakostur verður hvað hagstæðastur. Slíkt afnám verð
tryggingarinnar, sem mun þá gerast af sjálfu sér en ekki
með beinni íhlutun stjórnvalda, er af hinu góða og mun
hafa þau áhrif að bæta miðlun peningastefnunnar. Við
stöndum frammi fyrir sjaldséðu dauðafæri.
Dauðafæri
Undarlegt
Morgunblaðið furðar sig á því
að nú sé mótmælt á Austurvelli,
í Bandaríkjunum og víðar þegar
morðalda hafi staðið lengi yfir í
Chicagoborg og þar ráði „góðir
Demókratar“. Er sagt að borgin
beri titilinn „morðaborg Banda-
ríkjanna“. Allt þetta verður að
teljast undarlegt í meira lagi í
ljósi þess að morðhlutfallið í
Chicago er innan við helmingur
þess sem er í St. Louis og Balti-
more. Margar f leiri borgir hafa
hærra hlutfall. Vissulega stýra
Demókratar Chicago eins og
langf lestum stórborgum Banda-
ríkjanna. Þegar litið er til fylkja
þá er morðtíðnin hæst í Suður-
ríkjunum, vöggu Repúblíkana-
f lokksins. Repúblíkanaf lokkur-
inn er vitaskuld sá f lokkur sem
hefur varið byssueign almenn-
ings með kjafti og klóm.
Sami barinn
Klausturbar heyrir sögunni til.
Ekki þó staðurinn heldur nafnið.
Það hefur líklega fáum tekist
að gleyma því sem þar fór fram
fyrir um einu og hálfu ári. Líklega
hefur staðurinn ekki borið sitt
barr síðan úr því finna þurfti nýtt
nafn. Aldamót skal hann heita.
Það er soldið fyndið þegar haft er
í huga að raddirnar sem ómuðu
þaðan í nóvember árið 2018 og
munnsöfnuðurinn var eins og
aftur úr grárri forneskju. Sann-
kallaðir aldamótamenn. Altsvo
aldamótin 18 og 19 hundruð. Til
hamingju með nafnið Aldamót.
kristinnhaukur@frettabladid.is
5 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN