Fréttablaðið - 05.06.2020, Page 12
Þegar ég var lítill strákur heimsótti ég Byggðasafnið á Selfossi. Þar var f lottasti gripurinn stórt og mikið píanó sem var sagt úr Hús-inu á Eyrarbakka,“ segir
Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns
Árnesinga. „Píanóið var falskt og enginn
mátti koma við það, safnstjórinn var
mjög harður á því.“
Árið 1992 tók Lýður við störfum á
Byggðasafni Árnesinga, en sama ár var
ákveðið að safnið skyldi f lutt í Húsið á
Eyrarbakka, og píanóið góða færi aftur
til síns upprunalega heima. En áður fór
það í viðgerð til Guðmundar Stefáns-
sonar hljóðfærasmiðs í Reykjavík. Hann
gerði það upp og komst að því að það
væri frá árinu 1871. Þegar Húsið var til-
búið eftir viðgerðir Þjóðminjasafnsins
árið 1995 komst píanóið því aftur heim.
„Ég hélt alltaf að þetta væri elsta píanóið
frá tímum faktóranna,“ segir Lýður.
Um aldamótin síðustu komst Lýður
hins vegar yfir sjálfsævisögu Hans B.
Thorgrimsen sem fæddist í Húsinu árið
1853. Í henni greinir Hans frá því að það
hafi verið píanó í húsinu þegar hann ólst
þar upp sem væri eldra. „Ég gerði ein-
faldlega ráð fyrir því á þeim tíma að það
væri ekki lengur til,“ segir Lýður.
Enn líður tíminn og síðasta maí fær
Lýður upphringingu frá Glúmi Gylfa-
syni, gömlum kennara sínum og söng-
stjóra Selfosskirkju, sem sagði honum
frá því þegar hann hitti safnvörð
Byggðasafnsins á Selfossi á sjötta ára-
tugnum. „Safnvörðurinn talaði þá við
Glúm um píanó sem hefði verið í Húsinu
en væri í eigu ættar Glúms,“ segir Lýður.
Formóðir og forfaðir Glúms, Helga Vig-
fúsdóttir og Siggeir Torfason, kynntust
í Húsinu um 1870. Hún var vinnukona
en hann verslunarþjónn. Þau giftust og
f luttu til Þorlákshafnar. Á þeim tíma
var nýrra píanóið komið í Húsið og
gáfu húsráðendur Helgu og Siggeiri það
gamla að gjöf.
Píanóið hefur síðan verið í eigu
afkomenda þeirra, allt þar til í síðustu
viku þegar Byggðasafn Árnesinga fékk
það að gjöf. „Einn afkomendanna, Halla
Helgadóttir, ákvað ásamt systkinum
sínum að þau vildu gefa byggðasafninu
píanóið gamla,“ segir Lýður sem f letti
upp raðnúmeri sem var áletrað á píanó-
ið. Eftir nokkra leit kom í ljós að það var
úr smiðju Charles Cadby og frá árinu
1855 sem stemmir við frásögn Hans. B.
Thorgrimsen.
Nú eru píanóin í Húsinu því orðin tvö.
„Það eldra er reyndar pínu falskt, en það
er vel hægt að spila á það ragtime músík
þótt það sé komið til daga sinna,“ segir
Lýður og hlær. arnartomas@frettabladid.is
Það er reyndar pínu falskt, en
það er vel hægt að spila á það
ragtime músík þótt það sé
komið til daga sinna.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
Vigdís Ragnheiður
Viggósdóttir
Katrínarlind 6,
lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu við
Sléttuveg, laugardaginn 23. maí síðastliðinn. Útför fer
fram frá Seljakirkju mánudaginn 8. júlí klukkan 15.00.
Finnbogi Guðmundsson
Kristín Finnbogadóttir Kristinn Magnússon
Skúli Finnbogason
Rafn Finnbogason Guðrún Hildur Pétursdóttir
Guðrún Finnbogadóttir Hörður Þórarinn Magnússon
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Hjartkær maðurinn minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurjón Á. Fjeldsted
fyrrv. skólastjóri,
lést á líknardeild Landspítalans,
þann 30. maí, 2020.
Ragnheiður Óskarsdóttir Fjeldsted
Ragnhildur Fjeldsted Einar Sveinn Þórðarson
Júlíus Fjeldsted Áslaug Salka Grétarsdóttir
Ásta Sigríður Fjeldsted Bolli Thoroddsen
og barnabörn.
Víðförult Charles Cadby
píanó aftur komið í Húsið
Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga, hélt lengi vel að elsta píanóið í
Húsinu á Eyrarbakka væri komið til síns heima. Síðar kom í ljós að annað, eldra píanó
hefði verið til í Húsinu fyrir miðja 19. öld. Píanóið er nú komið aftur til Hússins.
Hjartans þakkir fyrir samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
Ragnars H. Guðmundssonar
Arnarási 15,
Garðabæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Ísafoldar fyrir umhyggju og alúð.
Guðrún Sigríður Jóhannsdóttir og fjölskylda.
Faðir okkar, afi og langafi,
Guðmundur W.
Vilhjálmsson
lögfræðingur og
fyrrv. deildarstjóri,
lést á Vífilsstöðum 26. maí síðastliðinn.
Útförin verður auglýst síðar.
María Kristín Guðmundsdóttir
Guðmundur Thor Guðmundsson
Sara María Grau Anders Grau
Vilhjálmur W. Birgisson
Nína Júlía Machon
Martin Machon
Faðir minn,
Þórður Jónasson
lést þann 22. maí síðastliðinn á
heimili sínu, Norðurbrún 1, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólksins á
Norðurbrún 1 fyrir góða umönnun og
hlýhug í hans garð, og annarra þeirra sem
hjálpuðu honum. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Áslaug Þórðardóttir og aðrir aðstandendur.
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Elín Ebba Skaptadóttir
húsmóðir, Forsölum 1,
lést á Landakotsspítala
þriðjudaginn 2. júní.
Útförin fer fram frá Lindakirkju
miðvikudaginn 10. júní kl. 13.00.
Jóhannes Víðir Haraldsson
Skapti Jóhannesson
Haraldur Jóhannesson
Hólmfríður Sigurðardóttir
Soffía Guðrún Gísladóttir
Jökull Trausti
Matthías
Kristófer Víðir
Ásdís Elín
Jóhanna Kara
Fróði
Lýður stendur stoltur við Charles Cadby gripinn góða sem er frá árinu 1855 og því með elstu píanóum Íslands.
Merkisatburðir
1915 Danmörk breytir stjórnarskrá sinni til þess að veita
konum kosningarétt.
1920 Brjóstsykursgerðin Nói hefur starfsemi í kjallara við
Túngötu í Reykjavík.
1924 Ernst Alexanderson sendir fyrsta símbréfið yfir
Atlantshaf. Það er bréf til föður hans í Svíþjóð.
1956 Elvis Presley kynnir nýja smáskífu sína, Hound Dog,
í sjónvarpinu og hneysklar áhorfendur með mjaðma
hnykkjum sínum.
5 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R12 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT