Fréttablaðið - 05.06.2020, Qupperneq 18
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Grillað grænmeti er mjög gott meðlæti og hægt að velja um allt það sem hugurinn
girnist. Í þessari uppskrift er
fennel, paprika, kirsuberjatóm-
atar, laukur og kúrbítur. Krydd-
blandan sem notuð er hentar alveg
líka á kjúkling eða svínakjöt. Þessi
máltíð getur ekki klikkað. Upp-
skriftin miðast við fjóra.
Grillað entrecôte
800 g nautaentrecôte
1 fennel, skorið í sneiðar
2 rauðlaukar, skornir til helminga
2 rauðar paprikur, skornar í grófa
bita
1 kúrbítur, skorinn á lengdina
8 kartöflur
12 kirsuberjatómatar, helst á
klasanum
Ferskt basil, til skrauts
Marineríng
1 dl ólífuolía
1 búnt ferskt basil
2 stór hvítlauksrif
½ sítróna, safinn
Salt og pipar
Grillkrydd
3 msk. reykt paprikuduft
2 msk. paprikuduft
2 msk. chilli-duft
1 msk. svartur pipar
1 msk. hvítlauksduft
1 msk. óreganó
1 tsk. cayennepipar
2 msk. salt
2 msk. púðursykur
Chilli-smjör
200 g mjúkt smjör
½ - 1 chilli-pipar, fínt skorinn
Grillveisla fyrir gestaboðið
Þetta verður grillhelgi og margir hugsa sér eflaust gott til glóðarinnar að elda góðan veislumat.
Hvernig hljómar nautasteik með grilluðu grænmeti og chilli-smjöri og tiramisù í eftirrétt?
Grillað nautaentrecôte er sannkallaður veislumatur. MYND/GETTY
Grillað græn-
meti er mjög
gott. Hægt er
að nota hvaða
eftirlætisgræn-
meti sem til er.
Tiramisù er í uppáhaldi hjá mörgum enda er þessi ítalski desert vinsæll.
2 stór hvítlauksrif
½ sítróna, safi og börkur
Setjið allt sem á að fara í chilli-
smjörið í blandara. Fólk getur
ráðið hversu sterkt smjörið á að
vera með meira eða minna chilli.
Smakkið til. Setjið smjörið í plast-
filmu og rúllið upp eins og pylsu.
Geymið í ísskáp svo það stífni en
smjörið er skorið í sneiðar þegar
það er borið fram.
Grænmetið
Setjið allt niðurskorið grænmeti í
skál með marineríngunni. Bætið
við sítrónusafa ef þarf og salti og
pipar. Látið standa í marineríng-
unni í að minnsta kosti klukku-
stund. Grillið grænmetið á beinum
hita í nokkrar mínútur. Leyfið
tómötunum að vera á grillinu líka í
síðustu mínúturnar.
Kartöflurnar
Sjóðið kartöf lur í um það bil tíu
mínútur. Hellið vatninu af og
setjið þær á grillpinna. Ef not-
aðir eru trépinnar skal leggja þá
í bleyti í minnst 20 mínútur fyrir
notkun. Penslið kartöf lurnar
með olíu og grillið þær með öðru
grænmeti.
Kjötið
Blandið öllu kryddinu í skál og
hrærið vel saman. Það ætti að duga
í nokkrar máltíðir og geymist auð-
veldlega. Best er að geyma það í
loftþéttum umbúðum.
Skerið kjötið í fjóra álíka stóra
bita. Nuddið kryddblöndunni
á báðar hliðar nautabitanna og
grillið í 2-3 mínútur á hvorri hlið.
Takið kjötið af og látið það hvíla í
10 mínútur.
Góð ráð
Hafið allt tilbúið og niðurskorið
áður en hafist er handa við eldun.
Þá gengur allt snurðulaust fyrir sig.
Það er vel hægt að bjóða gestum
upp á þessa máltíð og jafnvel gott
rauðvín með ef fólk vill.
Tiramisù með
jarðarberjum
Tiramisù er frábær sumardesert,
ferskur réttur með jarðarberjum
sem hæfir öllum góðum gestum.
Uppskriftin miðast við fjóra.
1 ½ dl espresso
2 eggjarauður
1 sítróna, rifinn börkur
1 ½ - 2 msk. sykur
1 vanillustöng, aðeins fræin
250 g mascarpone ostur
10-12 Lady Finger kex
Kakóduft
250 g jarðarber
4 falleg glös eða desertskálar
Hrærið saman eggjarauður og
sykur þar til blandan verður létt
og ljós. Bætið vanillufræjunum
saman við ásamt sítrónuberki
og mascarpone. Hrærið allt vel
saman. Stundum er gott að hræra
mascarponeostinn aðeins upp
áður en hann er settur saman við
blönduna.
Skerið Lady Finger í bita. Setjið í
botninn á fallegu glasi eða desert-
skál. Dreifið smávegis kaffi yfir.
Skolið jarðarberin og skerið í
sneiðar og raðið ofan á kexið.
Þar ofan á kemur mascarpone-
blandan. Aftur kex og jarðarber,
síðan mascarpone efst. Geymið í
kæliskáp í minnst 3-4 tíma, helst
yfir nótt.
Þegar desertinn er borinn fram
er kakói stráð yfir og puntað með
jarðarberjum.
00000
www.veidikortid.is
Gleðilegt
veiðisumar!
Fæst hjá N1 - OLÍS og veiðiverslunum
Blaðið í dag og safn eldri blaða á frettabladid.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 5 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U R