Fréttablaðið - 05.06.2020, Síða 30
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson, hlynur@frettabladid.is , Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@
frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar
Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
ÞETTA ER SVO FULL-
KOMIÐ FYRIR FÓLK
SEM VINNUR INN Á SKRIF-
STOFU, AÐ KOMAST ÚT Í SÓLINA
OG FÁ HREYFINGU Í LEIÐINNI OG
SKEMMTA SÉR Á MEÐAN.
Þórdís Nadia
“Doktor.is er ætlað að auðvelda aðgengi
almennings að upplýsingum og ráðgjöf
um heilsu, lífsstíl og forvarnir.,,
Teitur Guðmundsson, læknir og ritstjóri doktor.is
Ráðgjöf Fræðsla Forvarnir
Dansdrottningarnar Þórdís Nadia Semic-hat og Margrét Erla Maack standa fyrir hönd K ramhúss-ins í samstarfi við
Sumarborgina Reykjavík að fríum
útidanstímum í allt sumar. Fyrsti
tíminn fer fram í dag á Arnarhóli
klukkan 12.10 þar sem Þórdís Nadia
mun bjóða upp á kennslu í því sem
hún kallar Hips don’t lie.
„Hugmyndin að útidanstímunum
kom upp í einhverju grínspjalli
okkar á milli, eins og gerist svo oft.
Á meðan samkomubanninu stóð
vorum við með ókeypis danstíma
á netinu sem vakti mikla lukku.
Þetta er smá svona eins og áfram-
hald af því verkefni. Núna megum
við loksins hittast og svo erum við
úti þannig að það er minna mál upp
á fjarlægðina milli hvers og eins að
gera,“ segir Margrét.
Þær segja þetta vera í raun algjört
tilraunaverkefni en vonast til að
tímarnir festi sig f ljótt í sessi.
„Já, þetta var í raun einmitt fram-
hald af því sem við byrjuðum með
vegna COVID-19. Þá byrjuðum við
að hugsa í lausnum, hvernig eigum
við að halda áfram með tímana ef
það þarf til dæmis að loka húsinu?
Þá kom upp þessi pæling um að við
gætum mögulega haldið danstíma
úti við,“ segir Þórdís Nadia.
Verkefnið er stutt af Sumarborg-
inni Reykjavík og er því þátttaka í
tímunum opin öllum að kostnaðar-
lausu.
„Það eru svo margir á landinu og
svo er Kramhúsið líka svo mikið
miðborgarbatterí, g-blettur mið-
bæjarins þótt það séu líka f leiri
örvunarstaðir. Við erum líka hugsa
þetta úr frá okkar uppáhalds-
stöðum í borginni. Við byrjum í
dag á Arnarhóli, síðan ætlum við
að bjóða upp á afró-dans í Hljóm-
skálagarðinum og jóga við Sólfarið,“
segir Margrét.
„Já, við ætlum að nýta rýmin,
koma smá lífi í borgina,“ segir Þór-
dís Nadia.
Mjaðmirnar ljúga ekki
„Tíminn í dag er hugsaður til að losa
um mjaðmirnar. Maður svitnar
mikið og tónlistin er alveg ótrú-
lega skemmtileg. Í lokin tek ég
svo djúpar og góðar teygjur fyrir
mjaðmirnar. Við gerum alls konar
æfingar, þetta er blanda af dance-
hall, magadans, afro-beat, afró og
salsa,“ segir Þórdís Nadia.
„Við veltum því fyrir okkur hve
langir tímarnir ættu að vera. Lend-
ingin var að tuttugu mínútur til
hálftími væri fínt. Þá litar þetta en
er ekki að trufla fólk,“ segir Margrét.
Veðurspáin bendir til að það
verði sólríkt í hádeginu en ekki sér-
staklega heitt.
„Það er ekki spáð þrjátíu stiga
hita þannig að fólk getur alveg mætt
í dragtarjakkanum, tekið tíma
og hoppað svo í hádegismat með
vinnufélögunum. Við ætlum að vera
með morguntíma, hádegistíma og
svokallaða „happy hour“ tíma. Um
helgar ætlum við að hugsa tímana
meira út frá fjölskyldufólki,“ segir
Margrét.
„Það er líka svo frábært við þessa
tíma, að margir vilja hreyfa sig í
hádeginu. Þetta er svo fullkomið
fyrir fólk sem vinnur inn á skrif-
stofu, að komast út í sólina og fá
hreyfingu í leiðinni og skemmta
sér á meðan. Fengið endorfín og D-
vítamín á sama tíma,“ segir Þórdís
Nadia.
Kramhúshlaðborðið
Í sumar verða mörg áhugaverð nám-
skeið í boði í Kramhúsinu.
„Vanalega förum við í smá dvala
yfir sumarið en núna var bara svo
mikil vöntun á námskeiðum, eftir
að fólk mátti loks aftur hittast,“
segir Margrét.
„Við opnuðum í júní og það er nú
þegar uppselt á nokkur námskeið. Í
sumar verðum við líka með barna-
og unglinganámskeið. Rappsmiðju
með Kött Grá Pjé og Steinunni Jóns-
dóttur, Billie Eilish-námskeið, hipp-
hopp-námskeið og Ævintýraheim
barnanna,“ segir Þórdís.
Stofnandi Kramhússins er Hafdís
Árnadóttir.
„Hún er algjör galdrakona. Allir
héldu að hún væri alveg klikkuð
á sínum tíma. Hún var að kenna í
Leiklistarskólanum, var með lykla
og stalst inn á kvöldin og var með
tíma. Svo fann hún þetta einstaka
húsnæði í bakhúsi á Bergstaða-
stræti. Hún ákvað að vera með
kennslu í afródansi og f lutti inn
kennara frá Gíneu,“ segir Margrét.
„Við erum að tala um fyrir 35
árum síðan,“ bætir Þórdís Nadia við.
„Allir sögðu við hana að hún hlyti
að vera rugluð. Í dag er hún 81 árs,
það var hennar hugmynd til dæmis
að byrja með nettímana. Hún er svo
ótrúlega framarlega í dansmiðlun.
Hún er ennþá að kenna, við höfum
báðar farið í tíma hjá henni. Það var
ekkert auðvelt,“ segir Margrét.
„Nei, það er sko ekkert grín að
fara í tíma til hennar,“ bætir Þórdís
Nadia og þær hlæja báðar.
steingerdur@frettabladid.is
Dansað í gegnum
fordæmalaust sumar
Í dag stendur Kramhúsið í samstarfi við Sumarborgina Reykjavík
fyrir danstíma á Arnarhóli, þangað sem allir eru velkomnir. Þórdís
Nadia og Margrét Erla halda utan um verkefnið fyrir hönd Kram-
hússins og til stendur að bjóða upp á fjölbreytta útitíma í sumar.
Þórdís Nadia og Margrét eru spenntar fyrir fyrsta útidanstímanum á Arnarhóli í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
5 . J Ú N Í 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R22 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð