Fréttablaðið - 06.06.2020, Page 18
6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Sorgarsaga stjörnuunglings Ajax
Einn efnilegasti unglingur sem komið hefur úr akademíu Ajax, Abdelhak Nouri, varð fyrir alvarlegum heilaskaða í æfingaleik með
félaginu árið 2017. Félagið hefur viðurkennt mistök og rekið lækni sem sinnti guttanum í fyrstu. Nouri var sagður næsti Iniesta.
SPORT
FÓTBOLTI Fjölskylda Abdelhak
Nouri, leikmanns Ajax sem varð
fyrir heilaskaða í æfingaleik gegn
Werder Bremen 2017, hefur ekki
svarað tilboði Ajax um bætur fyrir
son sinn. Samkvæmt hollenska
blaðinu De Telegraaf sagði Ajax
upp samningi leikmannsins þann
1. apríl og bauð fjölskyldunni rúmar
750 milljónir króna í bætur. Félagið
ætlar að halda áfram að styðja leik-
manninn og borga allan læknis-
kostnað eins lengi og hann lifir.
Edwin van der Saar, framkvæmda-
stjóri Ajax, sagði á blaðamanna-
fundi að félagið hefði gert mistök
þegar Nouri hneig niður þann 8.
júlí 2017.
Nouri var einn mest spennandi
leikmaður sem var að koma upp úr
akademíu Ajax. Hann hafði spilað
15 leiki fyrir aðalliðið og skorað eitt
mark. Þá hafði hann spilað fyrir öll
landslið Hollands. Hann byrjaði sjö
ára í akademíunni og var yfirleitt
á lista yfir efnilegustu unglinga í
Evrópu. Hann spilaði fyrsta leik-
inn sinn 19 ára fyrir félagið, árið
2016, og ári síðar var hann valinn
leikmaður ársins í unglingaflokki.
Hann var nefndur á lista Guardian
yfir efnilegustu ungmenni Evrópu
2014 og sagður minna á sjálfan And-
res Iniesta.
„Hann var svona gæi sem var
ekki hægt að komast nálægt. Alltaf
þegar hann fékk boltann þá var
hann löngu búinn að sjá hvað hann
væri að fara gera. Hann hafði svaka-
legt auga fyrir leiknum og frábæra
tækni,“ segir Viktor Karl Einarsson,
leikmaður Breiðabliks en hann var
á mála hjá AZ Alkmaar og spilaði á
móti Nouri. Í Hinni hliðinni, á fót-
bolta.net, sagði Viktor að Nouri og
Frankie de Jong, núverandi miðju-
maður Barcelona, væru bestu leik-
menn sem hann hefði mætt.
„Þegar ég var að spila einu sinni
á móti Ajax fékk hann sendingu og
tveir gæjar frá okkur koma í áttina
að honum. Einhvern veginn vissi
hann af þeim og tekur boltann
aftur fyrir sig í gegnum klofið og fer
á milli þeirra. Þeir stóðu báðir eftir
og skildu ekki neitt hvernig hann
hafði gert þetta,“ segir Viktor. Hann
kvittar alveg undir líkindi hans við
Iniesta.
Þrjár mínútur að átta sig
Ajax og Werder Bremen mættust
í æfingaleik fyrir tímabilið 2017-
2018 á Lindenstadion Hippach, í
Austurríki. Samkvæmt BBC hafði
Nouri ekki sofið vel og var með
magaverki fyrir leikinn. Það var
mjög heitt þennan dag og kom
guttinn inn á fyrir Hakim Ziyech
í hálf leik. Á 72. mínútu hægðist á
honum og hann lagðist rólega til
jarðar. Dómarinn stoppaði ekki
leikinn alveg strax en sjúkra-
þjálfarinn var kominn til hans 20
sekúndum eftir að hann lagðist á
jörðina. Nokkrum sekúndum síðar
kom læknir liðsins líka.
Fljótlega tóku leikmenn að átta
sig á því að ekki væri allt með felldu.
Læknalið Werder Bremen rauk út á
völl og leikmenn byrjuðu að fara
með bænir. Framherjanum Klaas-
Jan Huntelaar var mjög órótt eins og
sést á myndbandi sem er á Youtube.
Í frétt BBC segir enn fremur að
það hafi tekið læknaliðið þrjár
mínútur að átta sig á því að Nouri
væri í hjartastoppi. Sjúkraliðar sem
komu á völlinn tengdu hann loks
við hjartastuðtæki, sjö mínútum
eftir að hann féll til jarðar.
Abdelhak Nouri liggur í grasinu. Læknir liðsins, Don de Winter, var rekinn í kjölfarið, enda sýndi rannsókn að hann hefði vikið frá leiðbeiningum UEFA.
Í fyrsta heimaleik Ajax eftir atvikið, sýndu stuðningsmenn Nouri mikinn stuðning. Nouri spilaði alls 15 leiki fyrir Ajax. MYND/GETTY
Hann var svona gæi
sem var ekki hægt
að komast nálægt. Alltaf
þegar hann fékk boltann þá
var hann löngu búinn að sjá
hvað hann væri
að fara gera.
Viktor Karl
Einarsson, leik-
maður Breiða-
bliks.
Læknirinn Daniel Rainer fékk
skilaboð um leikmann á vellinum í
hjartastoppi og kom fljótlega á vett-
vang. Í samtali við hollenska blaðið
De Volkskrant segir hann að endur-
lífgun hafi þegar verið í gangi og
sjúklingurinn hafi verið tengdur við
hjartastuðtæki. Hann hafi fengið
lyf til að örva blóðrásina og eftir 13
mínútna meðferð hafi þeir numið
hjartslátt og öndun.
Sjúkraþyrla f lutti hann á sjúkra-
hús í Innsbruck, þar sem viðbrögðin
voru fyrst um sinn jákvæð. Hjarta-
og heilapróf voru í lagi, en frekari
skoðun sýndi að Nouri hafði orðið
fyrir alvarlegum heilaskaða sökum
súrefnisskorts.
Rúmu ári síðar viðurkenndi Ajax
að félagið hefði gert mistök. Í yfir-
lýsingu sagði félagið að læknismeð-
ferð þess á Nouri hefði verið ófull-
nægjandi. Fjölskylda hans lagði
fram nýjar upplýsingar þar sem
kom fram að læknaliðið var of lengi
að opna öndunarveginn og einbeitti
sér að vitlausum hlutum.
„Við viðurkennum ábyrgð okkar
og tökum afleiðingunum. Hjarta-
stuðtækinu hefði átt að beita fyrr.
Hefði það gerst, er möguleiki að
Nouri hefði komið út úr þessum
harmleik öðruvísi. Það er ekki víst,
en það er möguleiki,“ sagði Edwin
van der Sar, framkvæmdastjóri
Ajax. Læknir liðsins, Don de Winter,
var rekinn í kjölfarið, enda sýndi
rannsókn að hann hefði vikið frá
leiðbeiningum UEFA, meðal annars.
Var 33 mánuði á sjúkrahúsi
Viktor Karl var í akademíu AZ
Alkmaar þegar atvikið gerðist og
segir að fótboltaheimurinn hafi
eiginlega stoppað þegar fréttirnar
bárust. „Við fengum frí á seinni-
parts æfingunni þennan dag þegar
fréttirnar komu. Það voru fjöl-
margir sem þekktu til hans sem
fannst eðlilega ekki gaman að fara
á æfingu þegar þeir fengu þessar
fréttir.“
Í sjónvarpsþættinum De Wereld
Draait Door í mars, sagði bróðir
Nouri að hann væri nú kominn
heim eftir 33 mánuði á sjúkrahúsi.
Húsinu hefði verið breytt fyrir
allar hans þarfir. Hann gæti tjáð sig
með augabrúnunum og gæti setið
og horft á fótbolta. „Hann sefur,
hnerrar, borðar og jafnvel ropar. En
hann fer ekki úr rúminu og er háður
okkur,“ sagði Abderrahim Nouri.
Hann fór ekki frekar yfir tilboð
Ajax í þættinum. Fjölskyldan hefur
stefnt Ajax fyrir hollenska knatt-
spyrnusambandinu. Samkvæmt De
Telegraaf er fjölskyldan þó þakklát
félaginu fyrir það sem það hefur
gert og aðeins eigi eftir að klára að
ganga frá formsatriðum.
benediktboas@frettabladid.is