Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 70
FYRIR MÉR ER HANN FYRIRLIÐI FYRIR OKKAR FJÖLSKYLDU. Patrekur Jóhannesson Guðni Th. Jóhannes-son er fæddu r í Reykjavík þann 26. júní árið 1968. Einn þriggja sona Jóhann-esar Sæmundssonar, íþróttakennara, sem lést aðeins 42 ára árið 1983, og Margrétar Thorla- cius, kennara og blaðamanns. Bræður Guðna eru Jóhannes kerfis- fræðingur og Patrekur, handknatt- leiksþjálfari og fyrrum landsliðs- maður. Sonur Patreks er rapparinn Jói Pjé. Bræðurnir ólust upp í kaþólskum sið í Garðabænum. En síðar á lífs- leiðinni sagði Guðni skilið við söfn- uðinn, vegna slælegra viðbragða kirkjunnar við kynferðisaf brotum presta. Mikil afköst Guðni gekk í MR og útskrifaðist þaðan árið 1987. Á menntaskólaár- unum var hann í keppnisliði skól- ans í Gettu Betur. Guðni útskrifaðist með BA-gráðu frá Háskólanum í Warwick árið 1991, í sagnfræði og stjórnmála- fræði. Hélt síðan sagnfræðináminu áfram í Háskóla Íslands, Oxford og loks Queen Mary í Lundúnum, þar sem hann lauk doktorsnámi. Áður en Guðni var kjörinn for- seti starfaði hann sem kennari við sagnfræðideild Háskóla Íslands. Fyrst sem stundakennari, þá lekt- or, dósent og loks prófessor. Einnig hefur hann kennt við Háskólann í Reykjavík og á Bifröst. Guðni hefur skrifað margar fræðibækur, meðal annars um þorskastríðin, bankahrunið og búsáhaldabyltinguna og forsetatíð Kristjáns Eldjárn. Hann skrifaði ævisögu Gunnars Thoroddsen og þýddi fjórar bækur Stephen King. Rannsóknir og skrif Guðna um símhleranir og njósnir á Íslandi á kaldastríðsárunum vöktu mikla athygli en einnig hefur hann meðal annars rannsakað stuðning Íslands við sjálfstæðisbaráttu Eystrasalts- ríkjanna og forsetaembættið. Kjörinn forseti Í nýársávarpi árið 2016 tilkynnti Ólafur Ragnar Grímsson að hann hygðist ekki bjóða sig fram til for- seta Íslands á nýjan leik. Þar til hann endurskoðaði ákvörðun sína, 18. apríl, höfðu 16 manns tilkynnt um framboð en Guðni var ekki einn af þeim. Í kjölfarið drógu margir fram- boð sitt til baka, en þann 5. maí til- kynnti Guðni um framboð. Voru þá fram komnar upplýs- ingar um aflandsfélagaeign Dorr- it Moussaieff, eiginkonu Ólafs. Í fyrstu skoðanakönnuninni eftir það mældist Guðni með tæp 60 prósent og þann 9. maí dró Ólafur framboð- ið til baka. Níu frambjóðendur voru í forsetakosningunum og var Guðni kjörinn sjötti forseti lýðveldisins með 39 prósentum atkvæða. Tvær stjórnarmyndanir Stuðningurinn rauk upp eftir að Guðni var svarinn í embætti og hefur ánægja með störf hans mælst mjög mikil á kjörtímabilinu. Í könnun frá desember 2016 mældist ánægja með Guðna 97 prósent. Róstusamt var í íslenskum stjórn- málum á þessum tíma og þegar könnunin var gerð hafði Guðni þegar komið að einni stjórnar- myndun, þegar Sjálfstæðismenn, Viðreisn og Björt framtíð mynduðu stjórn með minnsta mögulega þing- Skrif um njósnir vöktu athygli Guðni Th. Jóhannesson lýkur nú fyrsta kjörtímabili sínu sem forseti Íslands og sækist eftir endurkjöri. Guðni vakti fyrst athygli fyrir sagnfræðiskrif um njósnir. Sem forseti hefur hann mælst með 97 prósenta stuðning. Guðna Th. hefur verið lýst sem alþýðlegum forseta sem ber þó virðingu fyrir embættinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Flosi Þorgeirsson, gítarleikari HAM var nemandi Guðna í háskólanum. Patrekur Jóhannesson, handbolta- þjálfari og yngri bróðir Guðna. meirihluta. Aftur þurfti Guðni að koma að stjórnarmyndun ári síðar, þegar sú stjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðismanna og Framsóknar- manna sem nú situr var mynduð. Alþýðlegur og hrokalaus Guðni hefur aldrei verið skráður í stjórnmálaflokk og hefur einblínt á að vera fulltrúi allrar þjóðarinnar. Þó hefur hann eindregnar skoðanir á hlutverki forseta, svo sem hvað synjunarvaldið varðar, og hefur einnig blandast inn í deilumál. Meðal þess er mál tengt tveimur kynferðisbrotamönnum sem fengu uppreista æru. Guðni skrifaði undir ákvörðun ráðuneytisins, en hefur síðan viðurkennt að hafa brugðist. Bað hann þolendur mannanna afsökunar og var því komið til leiðar að lögin um uppreista æru féllu úr gildi. Annað mál rataði í heimspress- una, en af léttari toga. Í heimsókn í MA spurði nemandi hann um ananas sem álegg á pizzu. Sagðist Guðni vilja sjá lagasetningu þar sem þetta yrði bannað. Vakti þetta meðal annars viðbrögð Justin Trudeau, for- sætisráðherra Kanada þaðan sem ananaspizzan er upprunnin. Guðna hefur verið lýst sem alþýð- legum og hrokalausum forseta. Hann hjólar með börnin í skólann og bíður í biðröðum verslana eins og aðrir. Hann hefur þó jafnframt haft virðingu embættisins að leiðar- ljósi. Töluvert hefur verið fjallað um klæðaburð Guðna, þá einkum litríka sokka og buff. En það hefur hann borið til að sýna góðgerðamálum stuðning. Guðni er giftur Elizu Reid, sem upprunalega er frá Ottawa í Kanada, en þau kynntust á námsárunum í Bretlandi. Eliza hefur lengi starfað í góðgerða- og mannréttindamálum, meðal annars fyrir Alzheimersjúka, SOS barnaþorp og sjálfsvígsfor- varnasamtökin Pieta. Saman eiga Guðni og Eliza fjögur börn, en Guðni á einnig uppkomna dóttur úr fyrra sambandi. Lunkinn í boltanum „Hann var nokkuð lunkinn í hand- boltanum,“ segir Patrekur Jóhann- esson, bróðir Guðna. Á þeirra æsku- árum snerist lífið að stórum hluta um handboltann og Jóhannes faðir þeirra studdi þá í því. Patrekur segir að þeir bræður hafi alltaf verið mjög samrýmdir. Ungir misstu þeir föður sinn úr veikindum og Patrekur segir það hafa verið mjög erfiðan tíma. „Við vorum það heppnir að móðir okkar hélt öllu gangandi og studdi okkur vel. Ég held að það hafi ræst ágæt- lega úr okkur,“ segir hann. „Fyrir mér er hann fyrirliði fyrir okkar fjölskyldu. Hann hefur ekk- ert breyst á þessum fjórum árum og ég er mjög ánægður með hvernig honum hefur tekist til.“ Ekki þurra fræðimannatýpan „Hann er frábær kennari og hefur sérstakt lag á því að gera flest við- fangsefni mjög áhugaverð. Hann er ekki þessi þurra fræðimannatýpa,“ segir Flosi Þorgeirsson, sagnfræð- ingur og gítarleikari hljómsveitar- innar HAM. En Guðni var leiðbein- andi Flosa við lokaritgerðarsmíð um þorskastríðin. Flosi segir engan mun vera á Guðna sem persónu og sem for- seta. „Hann er bæði alþýðlegur og kumpánlegur og brýtur niður alla veggi á milli fólks.“ Kom það Flosa ekki á óvart þegar Guðni tilkynnti um framboð sitt til forseta. „Mér fannst hann líklegur um leið og umræðan hófst.“ Kristinn Haukur Guðnason kristinnhaukur@frettabladid.is 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.