Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 33
Auðkenni leitar að kerfisstjóra sem hefur góða þekkingu á rekstri kerfa og býr yfir
frumkvæði til að finna nýjar lausnir og leiðir. Viðkomandi tekur þátt í rekstrarteymi
Auðkennis og aðstoðar við innleiðingar nýrra kerfa. Kerfi Auðkennis eru mörg og keyra
á mismunandi stýrikerfum og gagnagrunnum. Undirliggjandi vélbúnaður keyrir VMware
og keyra flest kerfi í tveimur vélarsölum. Stýrikerfi sem eru í rekstri eru Linux (Debian),
Windows netþjónar og HSM frá Safenet/Thales Group.
KERFISSTJÓRI
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði tölvunarfræði eða
sambærileg menntun
• Þekking á Windows / Linux
• Þekking á gagnagrunnum SQL
• Þekking á PKI, SAML, Oauth og VMware
er kostur
• Þekking á LOG málum er kostur (elastic
search, Kibana, syslog o.s.frv.)
• Góð samskiptafærni
• Frumkvæði og drifkraftur
Verkefni tengjast m.a. eftirfarandi kerfum:
• Mobile skilríkjakerfi með um 230.000 notendum
• CA Pki kerfi (skilríkjakerfi)
• Skráningarkerfi notað af yfir 700 fulltrúum
• Eftirlitskerfi
• Ýmsir vefþjónar og vefþjónustur
• Rekstur rafrænna skilríkja á símum
Auðkenni var stofnað í september
árið 2000 vegna vaxandi krafna
fjármála- og fjarskiptafyrirtækja
um aukið öryggi í rafrænum
viðskiptum. Auðkenni býður jafnt
einstaklingum sem fyrirtækjum upp
á fjölbreytilegar lausnir sem allar
veita öryggi í rafrænum samskiptum
og byggja upp traust og trúnað milli
aðila. Öryggislausnir Auðkennis eru
bæði íslenskar lausnir, þróaðar af
fyrirtækinu sjálfu, og alþjóðlegar
lausnir sem sniðnar eru að íslenskum
aðstæðum.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk. Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Krónan leitar að kraftmiklum leiðtoga til að leiða öflugan hóp starfsmanna á spennandi
tímum mikilla áskorana. Krónan hefur verið leiðandi í þeirri þróun sem verið hefur
á smásölumarkaði á Íslandi á undanförnum árum og áframhaldandi áskoranir eru
framundan. Við leitum að stjórnanda sem hefur þor og kraft til að leiða fyrirtækið áfram
inn í framtíðina en Krónan er skipuð framúrskarandi starfsfólki sem býr yfir mikilli
þekkingu og reynslu á íslenskum smásölumarkaði.
Krónan er dótturfélag Festi hf og situr framkvæmdastjóri Krónunnar
í framkvæmdastjórn Festi.
FRAMKVÆMDASTJÓRI
Hæfni og eiginleikar framkvæmdastjóra:
• Háskólamenntun
• Brennandi áhugi á smásölumarkaði
• Framtíðarsýn og stefnumótandi hugsun
• Mikil reynsla af stjórnun og geta til að skapa liðsheild
• Færni og vilji til að vinna í hóp
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
Krónan er lágvöruverslun sem leggur
áherslu á ferskvöru. Krónuverslanir
hafa verið starfræktar á Íslandi
síðan árið 2000. Krónan er hluti af
Festi, sem er leiðandi afl í smásölu
á Íslandi. Hjá Krónunni starfa um
þúsund starfsmenn og öll félög Festi
eru með jafnlaunavottun, sem þýðir
að starfsfólk sem vinnur jafnverðmæt
störf fær jafnmikið greitt.
Krónan leggur mikið uppúr
samfélagslegri ábyrgð og eru
umhverfismál og lýðheilsumál
mikilvægur hluti starfseminnar.
Umsóknarfrestur er til og með 15. júní nk.
Nánari upplýsingar veitir:
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á hagvangur.is.
Mest lesna atvinnublað Íslands*
Atvinnublaðið
Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626
*Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára