Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 32
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Þetta hefur verið stormasöm vika og heimurinn virðist f lóknari og ljótari en oft
áður, þessa dagana. Vikan hefur
einkennst af umræðu um þarfa
og mikilvæga jafnréttisbaráttu og
stirð viðbrögð bandarískra stjórn-
valda við kallinu eftir jafnrétti og
réttlæti, sem og áframhaldandi
umfjöllun um heimsfaraldurinn
sem setti líf allra á hliðina.
Augu fjölmiðla eiga það til að
einblína á það ljóta og erfiða í
heiminum og gleyma því stundum
að líta á og fagna því góða, en það
getur verið bæði gott og hollt, ekki
síst á erfiðum tímum.
Hin hliðin á vikunni
Á erfiðum tímum má ekki loka augunum fyrir vandamál-
um, en það er líka hollt að minna sig á það sem er gott, til
að gleyma ekki af hverju við berjumst fyrir betri heimi.
Nemendur í
grunnskólum
Shanxi-héraðs
í Kína fóru
aftur í skólann
á þriðjudaginn.
Börnin klæðast
vængjum, til að
hjálpa þeim að
halda öruggri
fjarlægð sín á
milli.
Starfsfólk
gjörgæslu-
deildar spítala
í spænsku
borginni Barce-
lona, fer með
sjúklinga sem
eru að jafna sig
af COVID-19 að
ströndinni, svo
fólk sjái þá sem
mann eskjur, en
ekki bara tölur á
blaði.
Gleðin skein úr andlitum þessara kvenna í vikunni, að vísu á bak við plastskerma. Á þriðjudag
fögnuðu þær því að geta farið út að borða í París, eftir tveggja mánaða lokun vegna COVID-19.
Þessi loftmynd sýnir veiðar á sæöpum, smávöxnum krabbadýrum sem tilheyra ættkvísl salt-
vatnsrækja, í söltu stöðuvatni í Shanxi-héraði í Kína. Fiskafóður er framleitt úr dýrunum.
Sólin sest á bakvið Frelsisstyttuna í New York-borg í Bandaríkjunum. Heitur útblástur ferju,
sem á leið hjá, myndar mistur sem lætur hana líta út eins og hillingu í eyðimörk, sem hlýtur að
vera táknrænt fyrir upplifun margra Bandaríkjamanna af frelsi þessa dagana. MYNDIR/GETTY
Þessi innrauða mynd sýnir Falcon 9 eldflaugina, frá fyrirtækinu SpaceX, leggja af stað frá
skotpalli í Flórída í Bandaríkjunum um síðustu helgi. Flaugin var notuð til að flytja geimfar til
alþjóðlegu geimstöðvarinnar, með geimfarana Robert Behnken og Douglas Hurley innanborðs.
Síldarvinnslan hf.
sendir sjómönnum og fjölskyldum
þeirra innilegar hamingjuóskir
á sjómannadaginn
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R