Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Innréttingar og tæki er starfrækt í Ármúla 31 og hefur verið rekið um langt skeið. „Fyrirtækið er
frá 1945. Amma mín stofnaði það
sem heildverslun, en árið 1993 var
því svo breytt í verslun af for-
eldrum mínum,“ segir Íris en hún,
ásamt eiginmanni sínum, Grétari
Þór, tók yfir reksturinn árið 2014.
„Við stukkum til. Maðurinn
minn er enn í annarri vinnu, en
hann kemur alltaf þegar hann er
búinn í vinnunni og við stöndum
vaktina.“
Fyrirtækið leggur mikla áherslu
á persónulega og góða þjónustu.
„Þetta er algjört fjölskyldufyrir-
tæki. Ef foreldrar mínir eru ekki á
staðnum, þá eru börnin hérna. Svo
bíð ég bara eftir að ömmubörnin
mæti á vaktina,“ segir Íris og hlær.
Litríkt og stílhreint
Innréttingar og tæki selja vandaða
sérvöru eins og baðinnréttingar,
sturtuklefa, hreinlætisvörur og
blöndunartæki. „Við erum í raun
með allt fyrir baðherbergið, nema
vegg- og gólfefni. Við viljum vera
sérvöruverslun, en ekki þessi
dæmigerða byggingavöruverslun.
Við leggjum metnað okkar í
vandaða vöru og persónulega
þjónustu,“ segir Íris.
Ítalska fyrirtækið Globo er
meðal þeirra framleiðenda sem
eiga í samstarfi við Innréttingar og
tæki. „Globo, sem var stofnað árið
1980, er svakalega flott merki. Þeir
bjóða upp á mjög skemmtileg lituð
salerni, sem viðskiptavinir okkar
hafa rosalega mikinn áhuga á – til
dæmis svört, brún og grá. Þessir
litir eru dálítið öðruvísi,“ segir Íris.
„Fólki finnst þetta rosalega flott.
Margir koma og kaupa svart. Svo
eru sumir sem staldra við, langar
í salerni í lit, en enda á að kaupa
matt, hvítt salerni sem er líka mjög
vinsælt.“
Þá segir Íris mikla eftirvæntingu
hafa ríkt eftir bleikum salernum
sem eru nú loksins fáanleg. „Það
nýjasta í hreinlætistækjum eru
salerni og handlaugar í fallegum
litum, en þau hafa verið svakalega
vinsæl hjá okkur. Við höfum lengi
beðið eftir að fá salerni og hand-
laugar í bleiku sem eru nú komin í
hús, en litaúrvalið í fyrra og í ár er
alveg sérstaklega skemmtilegt. Það
er búið að vera mikið um svart og
matt hvítt en er núna að færast yfir
í bleikt.“
Einnig er mikið úrval af litríkum
hreinlætistækjum frá Globo. „Fólk
á öllum aldri hefur mikinn áhuga
á því að breyta, til að fá hreinlætis-
tæki í skemmtilegum lit. Hrein-
lætistækin frá Globo eru einstak-
lega smekkleg og stílhrein. Ef fólk
vill lífga upp á baðherbergin hjá
sér eru hreinlætistækin frá Globo
algjörlega málið,“ segir Íris.
Umhverfisvænar mosaplötur
Annað sem fæst hjá Innréttingum
og tækjum eru hinar geysifallegu
mosaplötur frá ítalska hönnunar-
fyrirtækinu Benetti Home. „Við
erum nýlega byrjuð með umhverf-
isvænar plötur með mosa, sem eru
frábærar til hljóðeinangrunar og
henta vel fyrir heimili, fyrirtæki og
stofnanir. Mosaplöturnar eru afar
fallegar og til mikillar prýði. Þær
eru úr náttúrulegum mosa, laufum
og umhverfisvænum efnum sem
ekki þarf að hugsa mikið um. Þær
má setja upp sem stóran eða lítinn
gróðurvegg, eða klippa til og búa
til listaverk eða lógó fyrirtækja,
allt eftir því sem hver og einn vill,“
segir Íris. Plöturnar eru búnar til
úr léttu áli og á þær er settur mosi,
sem er sérstaklega ræktaður í þeim
tilgangi.
Íris segir mosaplöturnar hafa
vakið mikla athygli og þær séu
vinsælar víða um heim. „Plöturnar
eru vistvænar og það þarf lítið sem
Bleika salernið er draumi líkast. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Framhald af forsíðu ➛
Mosaplöturnar eru
afar fallegar og til
mikillar prýði. Þær eru
úr náttúrulegum mosa,
laufum og umhverfis-
vænum efnum sem ekki
þarf að hugsa mikið um.
Gylltu blöndunartækin eru hreint út
sagt ómótstæðileg.
Það er mikið
úrval baðvaska
og vaskaborða
í Innréttingum
og tækjum.
Sturtubotnarnir eru bæði fallegir og einfaldir í uppsetningu.
Sturtubotnarnir fást nú í hvorki meira né minna en fimmtán litum.
ekkert að hugsa um þær. Mosinn
heldur sér vel og það þarf aðeins að
úða efni á hann á nokkurra mánaða
fresti ef rakinn er lítill. Einfaldara
getur það ekki verið. Það er hægt að
sjá risastóran vegg úr mosaplötun-
um við upplýsingaborðið í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar, en hann kemur
mjög vel út og eins í galleríinu hjá
Ingu Elínu á Skólavörðustíg. Mosa-
plöturnar eru líka eftirsóttar til að
skreyta hótel og veitingastaði, en
þær setja mjög skemmtilegan svip á
umhverfið,“ segir Íris.
Þá er einnig hægt að sjá mosa-
plöturnar á kaffihúsinu Duck
and Rose sem var opnað á dög-
unum þar sem Café Paris var áður.
„Strákarnir sem reka staðinn völdu
mosavegg og vildu að sjálfsögðu
hafa rósir á honum, af því að
staðurinn heitir náttúrulega Duck
and Rose. Þannig að við fórum
í það að finna rósir og mosa og
útkoman er æðisleg.“
Stærsti mosaveggurinn fyrir
heimilið er svo að sjálfsögðu hjá
leikaraparinu Gísla Erni og Nínu.
Þá fæst mosinn í öllum regnbogans
litum.
Suðrænt en skandinavískt
Þrátt fyrir að fyrirtækið sé ítalskt
er mosinn sjálfur skandinavískur
að sögn Írisar. „Grunnurinn að
þessum mosa er frá Norðurlöndum,
hann kemur af trjánum og er svo
klónaður í þennan náttúrulega fasa
hjá hönnunarfyrirtækinu Benetti
Home, svo þetta er mjög skandinav-
ískur mosi. Ef þú horfir til dæmis
á vegginn hjá Duck and Rose þá er
það þessi grunni hreindýramosi og
svo koma kúlurnar, sem eru eins og
kúluskíturinn á Mývatni, svo þetta
er mjög íslenskt útlit.“
Mosaplöturnar fást í mismun-
andi stærðum og hægt er að velja
um ljósan eða dökkan mosa, mosa
blandaðan laufum eða bara mosa.
„Það er líka bæði hægt að hafa
mosann mjúkan eða harðan, allt
eftir smekk hvers og eins,“ útskýrir
hún og leggur áherslu á að um nátt-
úrulegt efni sé að ræða. „Plöturnar
eru frábærar til að dempa hljóð til
dæmis í húsum þar sem hátt er til
lofts eða stór og opin rými. Mosinn
skapar líka notalega stemmningu.“
Sturtubotnarnir vinsælir
Sturtubotnarnir eru líka vinsæl
söluvara. „Þeir eru ótrúlega flottir
og þunnir. Eins og ein, heil flís;
þungir og massífir og eru fram-
leiddir hjá Gala á Spáni. Það er
eiginlega með ólíkindum hversu
duglegir Íslendingar eru að skipta
út sturtunni,“ segir Íris. „En það
á sér nú eðlilegar skýringar. Það
er gott að vera með baðkar þegar
börn eru ung, en þegar þau eldast
og fjölskyldur fara að keppast um
baðherbergið á morgnana þá vilja
allir fara í sturtu. Það er einfalt að
henda út baðkarinu, setja stóran
sturtubotn og svo gler. Þá ertu
kominn með æðislega „walk-
in“ sturtu með lítilli fyrirhöfn,“
útskýrir Íris.
Sturtubotnarnir fást í 15 litum.
„Við erum að bjóða upp á þá í
fimmtán litum. Trendið í litum er
að koma til baka, en núna eru það
jarðlitir. Ekki pastellitir, eins og
voru hér einu sinni.“
Íris segir sturtubotnana afar
meðfærilega. „Það er hægt að setja
þá beint á gólfið, þeir eru tilbúnir
með vatnshallanum. Þeir eru til
dæmis mjög hentugir í timbur-
hús og á svæði þar sem fólk er að
taka út baðkar. Þú getur fengið þá
sniðna í baðkarsstærðinni, svo
það þarf ekki að skipta um allar
f lísarnar á baðherberginu þegar
það er verið að rífa úr baðkarið,
hentugri lausn en að steypa, f lísa
og fúa. Þetta er einfalt í uppsetn-
ingu, það eina er kannski að þeir
eru dálítið þungir.“
En það kemur ekki að sök.
„Íslenskir iðnaðarmenn eru svo
sterkir,“ segir Íris létt í bragði.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L AU G A R DAG U R