Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 31

Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 31
Þvílíkur munur og það besta er að ég fann muninn strax. Ég er ekki lengur útblásin eftir máltíðir.” Anna Gréta Hver kannast ekki við að verða þreyttur eftir þunga máltíð? Sumir fá líka óþægindi, uppþembu og vind- verki en þetta tengist að öllum líkindum skorti á meltingarens- ímum. Líkaminn framleiðir sjálfur meltingarensím sem brjóta niður fæðuna en margt getur orðið til þess að hann framleiði ekki nóg. Fæðuóþol eða ensímskortur? Skortur á meltingarensímum er í daglegu tali oft nefndur fæðuóþol. Margir kannast t.d. við mjólkur- sykursóþol eða laktósaóþol, sem er tilkomið vegna skorts á laktasa, ensími sem brýtur niður lak- tósann. Meltingarensímin eru af mörg- um tegundum og hafa öll mis- munandi hlutverkum að gegna, en hjá öllum hefst meltingin í munn- inum. Þar eru fyrstu meltingarens- ímin sem fæðan kemst í snertingu við og hefja þau niðurbrot á kol- vetnum. Í maganum taka svo fleiri tegundir af ensímum við og brjóta m.a. niður prótein, fitu og laktósa. Þar drepast einnig flestar örverur sem geta fylgt með matnum en magasafinn, sem er mjög sterk saltsýra, sér um þá vinnu. Hvert ensím hefur mjög afmark- að hlutverk og þau virkjast hvert við sitt hita- og sýrustig (pH-gildi). Stundum gerist það að líkaminn getur ekki virkjað ákveðin ensím. Það er t.d. ef við borðum of mikið og/eða að samsetning matarins er slæm, en þá nær líkaminn ekki að „lesa skilaboðin rétt“. Þetta getur valdið vandamálum hjá fjöl- mörgum. Ekki bara magaónotum, þreytu eða öðrum kvillum, heldur getur það gerst að við fáum ekki þá næringu sem maturinn (eða bætiefnin) á að skila okkur. Fann mun á sér strax Segja má að Anna Gréta hafi öðlast nýtt líf eftir að hún fór að nota Enzymedica meltingarensímin, en það var ekki bara meltingin sem varð betri, heldur náði hún betri svefni og því varð hún orkumeiri og glaðari eins og gefur að skilja. Hún hafði þetta að segja: „Ég hef haft psoriasis-gigt í meira en tuttugu ár og hef tekið töluvert af lyfjum þess vegna. Fyrir nokkrum árum fór ég að eiga við magavandamál að stríða, sem eru líklegast tilkomin vegna lyfjanotk- unar, en fyrir utan magaónot og uppþembu var ég alltaf þreytt og orkulaus. Ég hef prófað svo margt gegnum tíðina en fundið lítinn mun, þar til ég kynntist Enzyme- dica ensímunum. Þvílíkur munur og það besta er að ég fann muninn strax. Ég er ekki lengur útblásin eftir máltíðir, hægðir urðu fljótt reglulegar, orkan margfaldaðist og ég er ekki að kljást við magavanda- mál lengur.“ Fékk margfalda orku og laus við magavandamál Meltingarensímin frá Enzymedica eru öflug ensím sem bæta meltinguna og gefa okkur aukna orku. Ensímin geta einnig losað fólk við fjölmörg vandamál tengd erfiðri meltingu og geta þau til dæmis dregið úr fæðuóþoli. Anna Gréta fann mikinn mun á meltingunni. Hverja vantar meltingarensím? Afleiðingar skorts á meltingar- ensímum geta verið víðtækar og hugsanlega finnum við fyrir öðrum einkennum en meltingar- ónotum. Einkenni skorts á ens- ímum geta verið: n Brjóstsviði n Vindverkir n Uppþemba n Kviðverkir & ógleði n Bólur n Nefrennsli n Krampar í þörmum n Ófullnægt hungur n Exem n Höfuðverkur n Skapsveiflur n Liðverkir n Húðkláði og húðroði n Svefnleysi Allir þeir sem eru að taka inn mjólkursýrugerla ættu að skoða hvort meltingarensím geti ekki hjálpað til við að koma melting- unni í gott horf og auka þar með almenna hreysti og vellíðan. Nokkrar staðreyndir um ensím n Ensím taka þátt í hverju einasta efnafræðilegu ferli sem á sér stað í líkamanum. n Ensím hámarka upptöku nær- ingarefna og hjálpa til við að breyta mat í orku. n Ensím í bætiefnaformi geta dregið úr einkennum fæðu- óþols og hjálpað þörmunum að ná eðlilegri virkni þannig að þeir virki betur en nokkru sinni fyrr. n Með inntöku getur fólk skilað meiru frá sér en áður og reglu- legar. Hungurtilfinning getur minnkað, því upptaka á nær- ingarefnum verður betri. Byltingarkennd ensím Ensímblöndurnar frá Enzyme- dica byggjast á einkaleyfisvarinni aðferð sem kallast Therablend. Með þessari aðferð er mörgum stofnum ensíma blandað saman, sem vinna á mismunandi pH- gild- um og ná þannig að melta hvert orkuefni mun betur og hraðar. Ensím sem unnin eru með þessari aðferð, hafa mælst á bilinu 5-20 sinnum öflugri og vinna meira en sex sinnum hraðar en önnur leiðandi meltingarensím. Til eru fjórar tegundir melt- ingarensíma frá Enzymedica og eru þau 100% náttúruleg og vegan. Best er að taka meltingarensím í upphafi hverrar máltíðar, eða með þeim máltíðum sem þú veist að þú átt erfitt með að melta, hvort sem það eru mjólkurvörur, kolvetni, prótein eða fita. Sölustaðir: Stórmarkaðir, apótek og heilsuverslanir. ERTU MEÐ STERK BEIN? BEINVERND ER MIKILVÆG ALLA ÆVI OSTEO ADVANCE er fullkomin blanda fyrir beinin • Kalk og magnesíum í réttum hlutföllum • D vítamín tryggir upptöku kalksins • K2 vítamín sér um að kalkið skili sér í beinin Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 6 . J Ú N Í 2 0 2 0
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.