Fréttablaðið - 06.06.2020, Side 31
Þvílíkur munur og
það besta er að ég
fann muninn strax. Ég er
ekki lengur útblásin eftir
máltíðir.”
Anna Gréta
Hver kannast ekki við að verða þreyttur eftir þunga máltíð? Sumir fá líka
óþægindi, uppþembu og vind-
verki en þetta tengist að öllum
líkindum skorti á meltingarens-
ímum. Líkaminn framleiðir sjálfur
meltingarensím sem brjóta niður
fæðuna en margt getur orðið til
þess að hann framleiði ekki nóg.
Fæðuóþol eða ensímskortur?
Skortur á meltingarensímum er í
daglegu tali oft nefndur fæðuóþol.
Margir kannast t.d. við mjólkur-
sykursóþol eða laktósaóþol, sem
er tilkomið vegna skorts á laktasa,
ensími sem brýtur niður lak-
tósann.
Meltingarensímin eru af mörg-
um tegundum og hafa öll mis-
munandi hlutverkum að gegna, en
hjá öllum hefst meltingin í munn-
inum. Þar eru fyrstu meltingarens-
ímin sem fæðan kemst í snertingu
við og hefja þau niðurbrot á kol-
vetnum. Í maganum taka svo fleiri
tegundir af ensímum við og brjóta
m.a. niður prótein, fitu og laktósa.
Þar drepast einnig flestar örverur
sem geta fylgt með matnum en
magasafinn, sem er mjög sterk
saltsýra, sér um þá vinnu.
Hvert ensím hefur mjög afmark-
að hlutverk og þau virkjast hvert
við sitt hita- og sýrustig (pH-gildi).
Stundum gerist það að líkaminn
getur ekki virkjað ákveðin ensím.
Það er t.d. ef við borðum of mikið
og/eða að samsetning matarins
er slæm, en þá nær líkaminn ekki
að „lesa skilaboðin rétt“. Þetta
getur valdið vandamálum hjá fjöl-
mörgum. Ekki bara magaónotum,
þreytu eða öðrum kvillum, heldur
getur það gerst að við fáum ekki
þá næringu sem maturinn (eða
bætiefnin) á að skila okkur.
Fann mun á sér strax
Segja má að Anna Gréta hafi öðlast
nýtt líf eftir að hún fór að nota
Enzymedica meltingarensímin, en
það var ekki bara meltingin sem
varð betri, heldur náði hún betri
svefni og því varð hún orkumeiri
og glaðari eins og gefur að skilja.
Hún hafði þetta að segja:
„Ég hef haft psoriasis-gigt í
meira en tuttugu ár og hef tekið
töluvert af lyfjum þess vegna. Fyrir
nokkrum árum fór ég að eiga við
magavandamál að stríða, sem eru
líklegast tilkomin vegna lyfjanotk-
unar, en fyrir utan magaónot og
uppþembu var ég alltaf þreytt og
orkulaus. Ég hef prófað svo margt
gegnum tíðina en fundið lítinn
mun, þar til ég kynntist Enzyme-
dica ensímunum. Þvílíkur munur
og það besta er að ég fann muninn
strax. Ég er ekki lengur útblásin
eftir máltíðir, hægðir urðu fljótt
reglulegar, orkan margfaldaðist og
ég er ekki að kljást við magavanda-
mál lengur.“
Fékk margfalda
orku og laus við
magavandamál
Meltingarensímin frá Enzymedica eru öflug ensím sem
bæta meltinguna og gefa okkur aukna orku. Ensímin geta
einnig losað fólk við fjölmörg vandamál tengd erfiðri
meltingu og geta þau til dæmis dregið úr fæðuóþoli.
Anna Gréta fann mikinn mun á meltingunni.
Hverja vantar
meltingarensím?
Afleiðingar skorts á meltingar-
ensímum geta verið víðtækar
og hugsanlega finnum við fyrir
öðrum einkennum en meltingar-
ónotum. Einkenni skorts á ens-
ímum geta verið:
n Brjóstsviði
n Vindverkir
n Uppþemba
n Kviðverkir & ógleði
n Bólur
n Nefrennsli
n Krampar í þörmum
n Ófullnægt hungur
n Exem
n Höfuðverkur
n Skapsveiflur
n Liðverkir
n Húðkláði og húðroði
n Svefnleysi
Allir þeir sem eru að taka inn
mjólkursýrugerla ættu að skoða
hvort meltingarensím geti ekki
hjálpað til við að koma melting-
unni í gott horf og auka þar með
almenna hreysti og vellíðan.
Nokkrar staðreyndir
um ensím
n Ensím taka þátt í hverju einasta
efnafræðilegu ferli sem á sér
stað í líkamanum.
n Ensím hámarka upptöku nær-
ingarefna og hjálpa til við að
breyta mat í orku.
n Ensím í bætiefnaformi geta
dregið úr einkennum fæðu-
óþols og hjálpað þörmunum að
ná eðlilegri virkni þannig að þeir
virki betur en nokkru sinni fyrr.
n Með inntöku getur fólk skilað
meiru frá sér en áður og reglu-
legar. Hungurtilfinning getur
minnkað, því upptaka á nær-
ingarefnum verður betri.
Byltingarkennd ensím
Ensímblöndurnar frá Enzyme-
dica byggjast á einkaleyfisvarinni
aðferð sem kallast Therablend.
Með þessari aðferð er mörgum
stofnum ensíma blandað saman,
sem vinna á mismunandi pH- gild-
um og ná þannig að melta hvert
orkuefni mun betur og hraðar.
Ensím sem unnin eru með þessari
aðferð, hafa mælst á bilinu 5-20
sinnum öflugri og vinna meira
en sex sinnum hraðar en önnur
leiðandi meltingarensím.
Til eru fjórar tegundir melt-
ingarensíma frá Enzymedica og
eru þau 100% náttúruleg og vegan.
Best er að taka meltingarensím í
upphafi hverrar máltíðar, eða með
þeim máltíðum sem þú veist að þú
átt erfitt með að melta, hvort sem
það eru mjólkurvörur, kolvetni,
prótein eða fita.
Sölustaðir: Stórmarkaðir, apótek
og heilsuverslanir.
ERTU MEÐ STERK BEIN?
BEINVERND ER MIKILVÆG ALLA ÆVI
OSTEO ADVANCE er
fullkomin blanda fyrir beinin
• Kalk og magnesíum í
réttum hlutföllum
• D vítamín tryggir upptöku
kalksins
• K2 vítamín sér um að
kalkið skili sér í beinin
Sölustaðir: Flest apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana
FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 6 . J Ú N Í 2 0 2 0