Fréttablaðið - 06.06.2020, Blaðsíða 70
FYRIR MÉR ER HANN
FYRIRLIÐI FYRIR OKKAR
FJÖLSKYLDU.
Patrekur Jóhannesson
Guðni Th. Jóhannes-son er fæddu r í Reykjavík þann 26. júní árið 1968. Einn þriggja sona Jóhann-esar Sæmundssonar,
íþróttakennara, sem lést aðeins 42
ára árið 1983, og Margrétar Thorla-
cius, kennara og blaðamanns.
Bræður Guðna eru Jóhannes kerfis-
fræðingur og Patrekur, handknatt-
leiksþjálfari og fyrrum landsliðs-
maður. Sonur Patreks er rapparinn
Jói Pjé.
Bræðurnir ólust upp í kaþólskum
sið í Garðabænum. En síðar á lífs-
leiðinni sagði Guðni skilið við söfn-
uðinn, vegna slælegra viðbragða
kirkjunnar við kynferðisaf brotum
presta.
Mikil afköst
Guðni gekk í MR og útskrifaðist
þaðan árið 1987. Á menntaskólaár-
unum var hann í keppnisliði skól-
ans í Gettu Betur.
Guðni útskrifaðist með BA-gráðu
frá Háskólanum í Warwick árið
1991, í sagnfræði og stjórnmála-
fræði. Hélt síðan sagnfræðináminu
áfram í Háskóla Íslands, Oxford og
loks Queen Mary í Lundúnum, þar
sem hann lauk doktorsnámi.
Áður en Guðni var kjörinn for-
seti starfaði hann sem kennari við
sagnfræðideild Háskóla Íslands.
Fyrst sem stundakennari, þá lekt-
or, dósent og loks prófessor. Einnig
hefur hann kennt við Háskólann í
Reykjavík og á Bifröst.
Guðni hefur skrifað margar
fræðibækur, meðal annars um
þorskastríðin, bankahrunið og
búsáhaldabyltinguna og forsetatíð
Kristjáns Eldjárn. Hann skrifaði
ævisögu Gunnars Thoroddsen og
þýddi fjórar bækur Stephen King.
Rannsóknir og skrif Guðna um
símhleranir og njósnir á Íslandi á
kaldastríðsárunum vöktu mikla
athygli en einnig hefur hann meðal
annars rannsakað stuðning Íslands
við sjálfstæðisbaráttu Eystrasalts-
ríkjanna og forsetaembættið.
Kjörinn forseti
Í nýársávarpi árið 2016 tilkynnti
Ólafur Ragnar Grímsson að hann
hygðist ekki bjóða sig fram til for-
seta Íslands á nýjan leik. Þar til hann
endurskoðaði ákvörðun sína, 18.
apríl, höfðu 16 manns tilkynnt um
framboð en Guðni var ekki einn af
þeim. Í kjölfarið drógu margir fram-
boð sitt til baka, en þann 5. maí til-
kynnti Guðni um framboð.
Voru þá fram komnar upplýs-
ingar um aflandsfélagaeign Dorr-
it Moussaieff, eiginkonu Ólafs. Í
fyrstu skoðanakönnuninni eftir það
mældist Guðni með tæp 60 prósent
og þann 9. maí dró Ólafur framboð-
ið til baka. Níu frambjóðendur voru
í forsetakosningunum og var Guðni
kjörinn sjötti forseti lýðveldisins
með 39 prósentum atkvæða.
Tvær stjórnarmyndanir
Stuðningurinn rauk upp eftir að
Guðni var svarinn í embætti og
hefur ánægja með störf hans mælst
mjög mikil á kjörtímabilinu. Í
könnun frá desember 2016 mældist
ánægja með Guðna 97 prósent.
Róstusamt var í íslenskum stjórn-
málum á þessum tíma og þegar
könnunin var gerð hafði Guðni
þegar komið að einni stjórnar-
myndun, þegar Sjálfstæðismenn,
Viðreisn og Björt framtíð mynduðu
stjórn með minnsta mögulega þing-
Skrif um njósnir vöktu athygli
Guðni Th. Jóhannesson lýkur nú fyrsta kjörtímabili sínu sem forseti Íslands og sækist eftir endurkjöri. Guðni
vakti fyrst athygli fyrir sagnfræðiskrif um njósnir. Sem forseti hefur hann mælst með 97 prósenta stuðning.
Guðna Th. hefur verið lýst sem alþýðlegum forseta sem ber þó virðingu fyrir embættinu. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Flosi Þorgeirsson, gítarleikari HAM
var nemandi Guðna í háskólanum.
Patrekur Jóhannesson, handbolta-
þjálfari og yngri bróðir Guðna.
meirihluta. Aftur þurfti Guðni að
koma að stjórnarmyndun ári síðar,
þegar sú stjórn Vinstri grænna,
Sjálfstæðismanna og Framsóknar-
manna sem nú situr var mynduð.
Alþýðlegur og hrokalaus
Guðni hefur aldrei verið skráður í
stjórnmálaflokk og hefur einblínt
á að vera fulltrúi allrar þjóðarinnar.
Þó hefur hann eindregnar skoðanir
á hlutverki forseta, svo sem hvað
synjunarvaldið varðar, og hefur
einnig blandast inn í deilumál.
Meðal þess er mál tengt tveimur
kynferðisbrotamönnum sem fengu
uppreista æru. Guðni skrifaði undir
ákvörðun ráðuneytisins, en hefur
síðan viðurkennt að hafa brugðist.
Bað hann þolendur mannanna
afsökunar og var því komið til leiðar
að lögin um uppreista æru féllu úr
gildi.
Annað mál rataði í heimspress-
una, en af léttari toga. Í heimsókn
í MA spurði nemandi hann um
ananas sem álegg á pizzu. Sagðist
Guðni vilja sjá lagasetningu þar sem
þetta yrði bannað. Vakti þetta meðal
annars viðbrögð Justin Trudeau, for-
sætisráðherra Kanada þaðan sem
ananaspizzan er upprunnin.
Guðna hefur verið lýst sem alþýð-
legum og hrokalausum forseta.
Hann hjólar með börnin í skólann
og bíður í biðröðum verslana eins
og aðrir. Hann hefur þó jafnframt
haft virðingu embættisins að leiðar-
ljósi. Töluvert hefur verið fjallað um
klæðaburð Guðna, þá einkum litríka
sokka og buff. En það hefur hann
borið til að sýna góðgerðamálum
stuðning.
Guðni er giftur Elizu Reid, sem
upprunalega er frá Ottawa í Kanada,
en þau kynntust á námsárunum í
Bretlandi. Eliza hefur lengi starfað í
góðgerða- og mannréttindamálum,
meðal annars fyrir Alzheimersjúka,
SOS barnaþorp og sjálfsvígsfor-
varnasamtökin Pieta. Saman eiga
Guðni og Eliza fjögur börn, en Guðni
á einnig uppkomna dóttur úr fyrra
sambandi.
Lunkinn í boltanum
„Hann var nokkuð lunkinn í hand-
boltanum,“ segir Patrekur Jóhann-
esson, bróðir Guðna. Á þeirra æsku-
árum snerist lífið að stórum hluta
um handboltann og Jóhannes faðir
þeirra studdi þá í því. Patrekur segir
að þeir bræður hafi alltaf verið mjög
samrýmdir.
Ungir misstu þeir föður sinn úr
veikindum og Patrekur segir það
hafa verið mjög erfiðan tíma. „Við
vorum það heppnir að móðir okkar
hélt öllu gangandi og studdi okkur
vel. Ég held að það hafi ræst ágæt-
lega úr okkur,“ segir hann.
„Fyrir mér er hann fyrirliði fyrir
okkar fjölskyldu. Hann hefur ekk-
ert breyst á þessum fjórum árum
og ég er mjög ánægður með hvernig
honum hefur tekist til.“
Ekki þurra fræðimannatýpan
„Hann er frábær kennari og hefur
sérstakt lag á því að gera flest við-
fangsefni mjög áhugaverð. Hann er
ekki þessi þurra fræðimannatýpa,“
segir Flosi Þorgeirsson, sagnfræð-
ingur og gítarleikari hljómsveitar-
innar HAM. En Guðni var leiðbein-
andi Flosa við lokaritgerðarsmíð um
þorskastríðin.
Flosi segir engan mun vera á
Guðna sem persónu og sem for-
seta. „Hann er bæði alþýðlegur og
kumpánlegur og brýtur niður alla
veggi á milli fólks.“
Kom það Flosa ekki á óvart þegar
Guðni tilkynnti um framboð sitt til
forseta. „Mér fannst hann líklegur
um leið og umræðan hófst.“
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur@frettabladid.is
6 . J Ú N Í 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð