Mosfellingur - 09.01.2020, Blaðsíða 15
Kosning
á www.mos.is
Útnefning á íþróttakarli
og íþróttakonu
Mosfellsbæjar 2019
Kynning á íþróttakonum sem tilnefndar eru vegna kjörs til
íþróttakonu mosfellsbæjar 2019 og afrekum þeirra á árinu.
Kosning fer fram á vef mosfellsbæjar
www.mos.is dagana 9. - 14. janúar.
Velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og konu í 1., 2. og 3. sæti.
Kosningin er ekki gild nema valið sé í öll þrjú sætin.
Úrslit verða kynnt fimmtudaginn
16. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.
María er fastamaður í landsliði
Íslands í Poomsae. Landsliðsverkefni:
Norðurlandamót, Evrópumeistaramót
í Tyrklandi í strand-poomsae, Evrópu-
meistaramót í Tyrklandi í einstaklings-
poomsae og heimsmeistaramót í
Egyptalandi í strand-poomsae með
góðum árangri.
María hefur unnið til fjölda verðlauna
á árinu, þar á meðal Íslands- og
bikarmeistaratitla í bæði poomsae og
sparring. Hún var valin kona mótsins á
tveimur af þremur bikarmótum ársins.
Það sem stendur hæst á árinu eru
bronsverðlaun á heimsmeistaramótinu
þar sem hún varð fyrsti Íslendingurinn
til vinna til bronsverðlauna á heims-
meistaramóti í Taekwondo.
maría guðrún sveinbjörnsdóttir taekwondo
Þóra María var valin leikmaður ársins
og besti varnarmaðurinn í Grill 66
deild kvenna 2019. Hún var valin besti
leikmaður UMFA á síðasta timabili og
lék með U19 á stórmóti.
Þóra María var nýlega valin besti ungi
leikmaður Olísdeildarinnar í sjónvarps-
þættinum Seinni bylgjunni og hefur
vakið mikla athygli. Hún er uppalin í
Aftureldingu og er frábær fyrirmynd
fyrir yngri og eldri iðkendur.
Þóra maría sigurjónsdóttir handknattleikur
Nína Björk hefur lengi verið meðal
bestu kylfinga landsins. Nína varð
klúbbmeistari GM í sumar í 15. skipti.
Nína lék í Íslandsmótinu í höggleik
í Grafarholti þar sem hún lék stór-
kostlegt golf og hafnaði að lokum í 3.
sæti eftir harða baráttu um sigurinn.
Einnig varð Nína Íslandsmeistari í flokki
kylfinga 35 ára og eldri.
Nína lék lykilhlutverk í kvennasveit
GM í efstu deild þar sem hún var
yngri meðlimum liðsins mikil og góð
fyrirmynd. Nína er frábær kylfingur og
frábær fulltrúi golfs í Mosfellsbæ.
nína Björk geirsdóttir golf
Margrét er fyrirliði Aftureldingar, hún
spilaði 16 leiki í Inkasso-deild kvenna
og skoraði í þeim eitt mark. Hún leiddi
liðið áfram sem var í toppbaráttu
framan af sumri og endaði tímabilið
að lokum í 5. sæti. Hún er fædd árið
1993 á Ísafirði, er fjölhæfur leikmaður
sem getur spilað nær allar stöður en
hún spilar ýmist sem bakvörður eða
miðjumaður. Margrét er með BS gráðu í
íþróttafræði úr Háskólanum í Reykjavík
og er í meistaranámi í íþróttavísindum
við sama skóla. Starfar í dag sem
einkaþjálfari hjá líkamsræktarstöðinni
Spörtu og fór hún sem styrktarþjálf-
ari með ÍF (Íþróttafélag fatlaðra) á
heimsmeistaramót fatlaðra í Dubai að
loknu knattspyrnusumri. Hún er frábær
fyrirmynd fyrir yngri iðkendur félagsins.
margrét Regína grétarsdóttir knattspyrna