Mosfellingur - 09.01.2020, Side 18
- Útskriftarhátíð í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ18
Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í
Mosfellsbæ fór fram 18. desember
við hátíðlega athöfn í húsnæði
skólans við Háholt 35.
Að þessu sinni voru átján
nemendur brautskráðir. Fjórir
af félags- og hugvísindabraut og
fjórtán af opinni stúdentsbraut,
þar af einn af hestakjörsviði og
einn af íþróttakjörsviði – hand-
boltaakademíu.
Verðlaun frá Mosfellsbæ fyrir
hæstu einkunn á stúdentsprófi
fékk Ásta Björk Friðjónsdóttir en
hún fékk einnig verðlaun fyrir
besta árangur í ensku, dönsku,
spænsku, stærðfræði og umhverf-
isfræði.
Útskriftarhátíð Framhaldsskólans í Mosfellsbæ fór fram 18. desember • Ásta Björk verðlaunuð fyrir hæstu einkunn
Átján nemendur brautskráðir frá FMOS
Nýstúdentar á útskrifarhátíð ásamt Valgarði Má Jakobssyni aðstoðarskólameistara og Guðbjörgu Aðalbergsdóttur skólameistara Framhandsskólans í Mosfellsbæ. Ásta Björk Friðjónsdóttir dúx skólans.
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns
með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Norðurál vill stuðla að jöfnu hlutfalli karla og
kvenna innan fyrirtækisins og jöfnum tækifærum til starfsþróunar.
Við leitum að metnaðarfullu fólki í fjölbreytt og eftirsótt
sumarstörf í álverinu á Grundartanga. Í boði eru
störf af ýmsu tagi við framleiðslu, raf- og vélvirkjun
og fleira. Öll störfin henta jafnt körlum og konum.
Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt
og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda.
Árangurstengd laun sumarfólks í vaktavinnu eru um 600.000 krónur á
mánuði fyrir fullt starf. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi, Borgarnesi
og af höfuðborgarsvæðinu.
Sumarstarfsmenn í framleiðslu- og iðnstörfum fara á námskeið vegna
vinnuvélaréttinda. Umsóknir og upplýsingar eru á www.nordural.is og í
síma 430 1000. Öllum umsóknum verður svarað og trúnaði heitið.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Spennandi
sumarstörf
18 ára lágmarksaldur
Dugnaður og sjálfstæði
Bílpróf er skilyrði
Mikil öryggisvitund og árvekni
Heiðarleiki og stundvísi
Góð samskiptahæfni
Jafnlaunaúttekt
PwC 2019
SíðuStu d
agarnir
F i M / F ö
S / l a u