Spássían - 2011, Blaðsíða 17

Spássían - 2011, Blaðsíða 17
17 þjóðernishyggju annars vegar og ættjarðarást hins vegar“ og leitar nýrra skilgreininga á tengslum okkar „við móðurjörðina í framtíðinni“. Hún stingur upp á orðinu „fósturjarðarást“ til að „skýra tengslin við landið þar sem maður batt naflastreng sinn“. Einkennandi „fyrir þroskaða ást sé skilningur á heildinni, á heildaráhrifum allra gjörða“ og „hollustan við fósturjörðina geti ekki slitnað úr tengslum við heild alls sem er“ (147-148). Orð Oddnýjar Eirar undirstrika að það getur verið nauðsynlegt að líta reglulega upp úr naflaskoðuninni og á stærra samhengið. Ríkisfang: Ekkert, ein mikilvægasta bókin sem kom út árið 2011, fær einmitt lesendur til að takast á við spurningar á borð við hvað það merkir að vera Íslendingur og hvað það merkir að tilheyra mannkyninu. Þá staðreynd að við njótum forréttinda og erum sem þjóð treg til að veita öðrum hlutskipti í þeim. Í Ríkisfang: Ekkert segir Sigríður Víðis Jónsdóttir sögu átta palestínskra flóttakvenna sem fengu hæli á Akranesi haustið 2008. Um leið fræðir hún og upplýsir; lýsir aðstæðum eftir innrásina í Írak og í flóttamannabúðum á ljóslifandi hátt, rekur sögu Íraks og Palestínu undanfarin 100 ár eða svo, og setur þá atburði í samhengi við Ísland. Flestir eiga erfitt með að henda reiður á öllu því sem gengið hefur á í Palestínu, og fréttamiðlar færa okkur aðeins brotakenndar og ruglingslegar fréttir. Sigríði tekst hins vegar að lýsa því þannig að lesandi stendur fróðari á eftir. Þótt efnið sé sannsögulegt og ekki skáldskapur tekst henni að spinna þéttan og spennandi söguþráð og skapa nánd við persónurnar sem fjallað er um. Þannig kemur hún í veg fyrir að þetta verði aðeins enn ein frásögnin af fjarlægum hörmungum sem snerta okkur ekki persónulega. Ríkisfang: Ekkert kveikir í réttlætiskenndinni; vekur upp reiði yfir óréttlátu kerfi og sorg vegna afleiðinganna en einnig löngun til að breyta því. En hver er rétta leiðin? HVAÐ NÆST? Flestar bækurnar sem nefndar hafa verið leita svara í fortíðinni – hvert það sem á undan er gengið muni leiða okkur. Í bókinni Bónusstelpan eftir Rögnu Sigurðardóttur er þó einnig litið til kynslóðarinnar sem tekur nú við – og framtíðarsýnin verður fyrir vikið bjartari en víða annars staðar. Bónusstelpan fjallar um nokkrar manneskjur í hverfi sem er „óskilgreint þorp miðja vegu milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar“, með litlum fyrirtækjum, smáverslunum og íbúum sem hafa holað sér niður hér og hvar. „Í miðjunni, eins og feit könguló í vef, var Bónus með bleika grísi blaktandi við hún“ (7). Ragna dregur upp skýrar myndir af persónum sínum, færir okkur nær þeim sem okkur hættir til að dæma of fljótt og bendir á að öll eigum við okkar djöfla að draga. Styrkur bókarinnar er þó fyrst og fremst áhugaverð hugmynd sem unnið er skemmtilega úr og þótt frásögnin sé leidd til lykta vekur hún ýmsar spurningar sem sitja áfram í hugskoti lesandans eftir lestur. Aðalsöguhetjan er Diljá, 22 ára listnemi sem ákveður að lokaverkefni hennar verði að vinna á kassa í Bónus í þrjár vikur. Tilgangurinn er óljós, skilaboðin aðeins gjörningurinn sjálfur: „Ekkert kjaftæði, engar málalengingar, bara framkvæmd. Nákvæmlega eins og hún vildi“ (7). Diljá er jafngömul fyrstu Bónusbúðinni og af neyslukynslóð sem hefur aldrei þekkt neitt annað en það markaðsvædda umhverfi sem umkringir okkur. Efnahagshrunið snertir hana ekki persónulega þótt hún sjái afleiðingar þess hér og þar. Fyrir hana er það spennandi leikur að vinna á kassa í Bónus og þegar gjörningurinn tekur óvænta stefnu og út kvisast að hún geti gert kraftaverk á kassanum lítur hún á það sem hluta af leiknum. Skeytingarlaus um afleiðingarnar, eins og ungu fólki er tamt, lætur hún berast með straumnum þar til hún rekur sig á – og uppgötvar að ef til vill eiga „kraftaverkin“ sér rætur í persónu sem er að mörgu leyti fulltrúi eldri tíma. Ragna áréttar þannig að þótt við sækjum meira til fortíðar en við gerum okkur grein fyrir, þurfi hver kynslóð að gera sín eigin mistök. Og um leið færa nýjar kynslóðir okkur nýja sýn. Þótt gjörningur Diljár leiði af sér biturð og vonbrigði hjá sumum glæðir hún von hjá öðrum og gefur nýjan kraft. Rétta svarið er ekki alltaf að finna í baksýnisspeglinum – stundum þarf að þora að taka stökkið út í óvissuna. KÆRULEYSI, HÚMOR OG HUGREKKI Stefán Pálsson hefur lýst þeirri skoðun að „bankahrunsbækur“ skrifaðar „í óreiðunni miðri“ séu „í vonlítilli stöðu til að greina á milli aðal- og aukaatriða“.3 Þótt hann hafi ekki verið að fjalla Ragna Sigurðardóttir. Bónusstelpan. Mál og menning. 2011. Flestar bækurnar sem nefndar hafa verið leita svara í fortíðinni – hvert það sem á undan er gengið muni leiða okkur. Í bókinni Bónusstelpan eftir Rögnu Sigurðardóttur er þó einnig litið til kynslóðarinnar sem tekur nú við – og framtíðarsýnin verður fyrir vikið bjartari en víða annars staðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.