Spássían - 2011, Qupperneq 32

Spássían - 2011, Qupperneq 32
 32 BARNABÆKUR enska skáldsagnahöfundarins Richard Adams fóru alveg framhjá mér í æsku. Þær hafa ekki enn komið út í íslenskri þýðingu, þrátt fyrir að sú frægasta, kanínuepíkin Watership Down (1972), hafi notið mikilla vinsælda á sínum tíma og verið til á ensku prenti allar götur síðan. Enska var þó aldrei fyrirstaða í æskulestri mínum og eflaust hefði ég haft gaman af að lesa um ævintýralegt og á köflum ógurlegt ferðalag kanínanna í leit að nýju heimili, ef einhver hefði otað verkinu að mér. Mögulega hefði ég getað komist í kynni við það í gegnum fræga kvikmyndaaðlögun sem kom út árið 1978 og skartaði m.a. rödd John Hurt í einu aðalhlutverkanna, en þeirri ágætu teiknimynd tókst einnig að fara framhjá mér, þrátt fyrir næstum sjúklega mikið vídjógláp á níunda og tíunda áratugnum. En aldrei bar neitt á hugarverkum Richard Adams, sem er synd og skömm, því sögur hans – og þá sérstaklega lykilverkin tvö, Watership Down og The Plague Dogs (1977) – eru afar skringilega staðsettar í landslagi barnabókmennta og eiga skilið víðari útbreiðslu og nánari athugun. Bækurnar sem um ræðir má út mörkin á milli barna- og fullorðinsbókmennta á einkar áhugaverðan hátt með því að velta upp gagnrýnum og á köflum erfiðum spurningum um samband mannfólks við dýrin. Bækurnar segja báðar frá manngerðum dýrum sem reyna að lifa af í sambýli við mannfólkið og þrátt fyrir ævintýralegan blæ er undirtónn harmleiksins aldrei fjarri, enda þurfa ófá dýr að lifa undir harðræði og ofsóknum okkar mannanna. Sá dramatíski þáttur er iðulega til staðar í dýrasögum og barnamenningu almennt (Fagri-Blakkur, Bambi og 101 Dalmatíuhundur eru allt ágæt skáldsöguleg dæmi) en sjaldan þora höfundar að ganga jafnlangt og Richard Adams í að setja fram samband manns og dýrs á hreinskilinn og ögrandi hátt. Hann neitar alfarið að tala niður til barnanna og fegra heiminn með ýkjum og lygum um líf annarra dýra. Þó merkir það ekki að hann sé með áróðursbókmenntir sem snúist bara um að hræða og hrylla – því fer fjarri. Það sem gerir bækur Adams svo þræláhugaverðar er hvernig honum tekst að ná jafnvægi á milli þess ævintýralega sem heillar svo við dýraríkið og þess ógurlega sem hryllir svo við yfirgang okkar mannfólksins. En kannski er það einmitt ástæðan fyrir því að sögurnar hafa aldrei náð sömu hæðum og snoppufríðari systkini þeirra úr verksmiðjum á borð við Disney-færibandið. Þær eru ljótar, eins og veruleikinn, þótt þær séu líka fallegar, eins og veruleikinn. Og þá bankar hin óumflýjanlega spurning upp á: Eiga börnin ekki skilið að fá báðar hliðar? Því miður þori ég að veðja að þeir séu í miklum minnihluta sem þekki nokkuð til kanínanna Fiver og Hazel og þeim mun færri sem hafa nokkurn tímann heyrt um hundana Snitter og Rowf. EINKALÍF KANÍNUNNAR Kvikmyndin Watership Down var sýnd í bíó hérlendis á sínum tíma og hét Flóttinn langi í íslenskri þýðingu. Hún hlaut ágætar viðtökur ef marka má umfjöllun úr Dagblaðinu sem birtist 30. maí árið 1980. Þar er minnst á „geysilega aðsókn víða um heim” og teiknimyndin sögð vera „dæmigerð fjölskyldumynd” sem er „aðgengileg fyrir alla aldurshópa”.1 Þetta þykir mér skrítinn dómur hjá kvikmyndadálki DB, því myndin er fjarri því að vera dæmigerð fjölskyldumynd og margir hafa dregið í efa aðgengileika hennar til allra aldurshópa. Á YouTube má finna mörg myndbrot úr Watership Down og sérstaklega vil ég nefna eitt – „Watership Down Violence” – sem hefst á eftirfarandi lýsingu: „Ein sú blóðugasta og ofsafengnasta kvikmynd sem hefur nokkurn tímann verið leyfð öllum aldurshópum – hvað voru þeir að spá?!?”2 Því næst fylgir myndbútur sem klippir saman öll grófustu atriði teiknimyndarinnar. Þar má meðal annars sjá hund rífa kanínu á hol, kanínu festast með snöru um hálsinn og hósta upp blóði, kanínu veidda af fálka, sundurtætt Í barnabókum Richard Adams eru kanínur ekki bara krútt og mannfólkið kemur sannarlega ekki fram við hunda eins og besta vin sinn. Lykilverk hans tvö frá 8. áratugnum, Watership Down og The Plague Dogs, má út mörkin á milli barna- og fullorðinsbókmennta og eru í senn myrk, hrottaleg og falleg. Tvær blóðugar barnabækur Eftir Gunnar Theodór Eggertsson

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.