Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Page 4
4 6. mars 2020FRÉTTIR
J
á, það gæti verið að ég sé óheppnasti
maður landsins veturinn 2019 til 2020,“
segir Ólafur Örn Ólafsson, vínþjónn
og sjónvarpsstjarna, er blaðamað-
ur nær sambandi við hann. Ólafur liggur
nú á sjúkrahúsinu á Akureyri eftir örlaga-
ríka skíðaferð með fjölskyldunni í byrjun
mánaðarins.
„Það endaði ekki betur en svo að ég lenti í
skíðaslysi og fór með sjúkrabíl úr brekkunni
rakleiðis á sjúkrahúsið á Akureyri,“ skrifar
Ólafur á Facebook-síðu sína. Hann braut
sköflungsbeinið alveg upp við hnjálið og
bíður nú eftir því að hægt verði að laga brot-
ið. „Þangað til ligg ég hér á Akureyri þar sem
er stjanað við mig af starfsfólkinu.“
Leitin að plötusnúð
Ólafur gerir lítið úr biðinni og brotinu í sam-
tali við blaðamann og virðist fara vel um
hann í kyrrðinni fyrir norðan. Einn hængur
er þó á þessu óvænta óhappi – hann miss-
ir af viðburði, „einstökum viðburði í sögu
þjóðar,“ eins og hann sjálfur kemst að orði,
sem hann skipulagði á vegum Vínstúkunnar
tíu sopar í félagi við tónlistarmanninn Sam-
úel Jón Samúelsson. Um er að ræða há-
tíðina Food & FÖNK sem haldin er í fyrsta
sinn hér á landi í kvöld, föstudagskvöldið 6.
mars, og dregur nafn sitt af Food and Fun,
hátíð sem hefur verið haldin á Íslandi í tæpa
tvo áratugi.
„Matarhlutinn er í höndum hinnar stór-
kostlegu Fanneyjar Dóru sem vann vann
til bronsverðlauna með kokkalandsliðinu
fyrir skömmu og ætlar hún að gera alvöru
soul food, New Orleans Gumbó með rækj-
um og pylsum. Húllumhæið hefst klukkan
8 um kvöldið og stendur langt fram eftir
nóttu,“ segir Ólafur og hækkar svo róminn
þegar hann er spurður út í fjarveru sína frá
viðburði sem tók hann blóð, svita og tár að
skipuleggja.
„Það er allt í lagi en það sem meira er er
að DJ Sommelier, drykkfelldur, miðaldra,
feitur karl sem spilar fönk, eitís og næntís
dansmúsík, hann forfallast líka!“ segir hann
og sýpur hveljur, en gefur sterklega í skyn
að DJ Sommelier sé hugsanlega aukasjálf
vínþjónsins. „Við leitum nú logandi ljósi að
verðugum plötusnúð til að hlaupa í skarðið
fyrir DJ Sommelier.“ Ekki var búið að finna
verðugan plötusnúð þegar blaðið fór í prent.
Með í anda
Ólafur vonar að sem flestir hristi sína skanka
á meðan hann er rúmfastur. Hann ætlar að
snúa vörn í sókn og reyna að skapa fönk-
stemningu innan um hvíta spítalaveggina.
„Ég verð með í anda og blasta fönki í
heyrnartólin á sjúkrabeðinum meðan á
þessu stendur,“ segir vínþjónninn knái. n
Úr skralli í sóttkví
H
eimurinn eins og við
þekkjum hann er um-
kringdur veirum, við-
bjóði og pestum – þó að
ekki séu allar smitandi. Einhverj-
ir myndu jafnvel færa rök fyrir
því að mannkynið sjálft sé veira
á yfirborði jarðar en Svarthöfði er
ekki alveg sjálfur kominn í þann
stíl þúsaldarhippa. COVID-smit
hefur þó í það minnsta feng-
ið okkur undanfarið til að hugsa
um annað en ófærð, verkföll og
jarðskjálfta, en nú eru þrjú kort-
er í að mörg samfélög fari alveg
á hliðina. Við erum enn í mars-
mánuði! Hvað næst?
Svarthöfði hallast reyndar að
orðunum „sælla er að gefa en
þiggja“ þegar kemur að bakt-
eríum, þar sem í fyrra tilfellinu
er alltaf smuga að maður hafi
val varðandi þá sénsa sem við-
komandi tekur, til dæmis með
ferðir út í búð, matarboð, árs-
hátíðir (eða ekki) eða svo mikið
sem snerta hurðarhúninn á
heimablokkinni.
Þarna hefði Svarthöfði átt að
fylgja innsæinu, skynseminni
og leyfa sóðasumblinu fyrir
nokkrum helgum ekki að enda í
eftirteiti í stofunni, með tveimur
ítölskum ferðamönnum, skulum
við segja í bráðsmitandi partí-
stuði. Skemmst er að segja frá
því að Höfðinn var fljótt orðinn
grímu- og hömlulaus þegar rétta
stuðlagið var komið í spilun að
frumkvæði ferðamannanna.
Þurftu þá endilega að koma í
ljós allar þessar fréttir af veirunni
hérlendis og tilheyrandi tilskip-
unum um bann við samkvæm-
um og kossaflensi. Þarna klikk-
aði Svarthöfði stórlega og hefði
frekar átt að sitja heklandi und-
ir huggulegum lampa með góða
hljóðbók í gangi í stað þess að
tapa sér of mikið í þessum Daða-
fögnuði. Lagið hans hlýtur að
hafa spilast í kringum fjórtán
sinnum þetta kvöld. Þetta fékk
mig til að hugsa um hina og
þessa hluti.
Nú situr Svarthöfði í sóttkví,
síhóstandi í þungu grímuna,
með enga hljóðbók eða settið til
að prjóna með. Svarthöfði geng-
ur alla daga í lokuðum galla,
innilokaður í höll sinni, í baði
fimm sinnum á dag og vanalega
með hjálminn á kollinum, með
nokkrum undantekningum. Það
eru mannlegu mistökin sem oft
verða okkur að tímabundnu falli.
Við skulum í það minnsta reyna
að forðast það að skapa ofsa ef
einhver hnerrar framan í okkur.
Sumir láta ekkert stoppa sig og
gæla við mannlífið en aðrir taka
enga áhættu.
Það er þó sama hvoru megin
þú tjúttar í kringum veirufar-
aldurinn og volæðið í kringum
hann, þú endar í tímabundinni
einangrun. Við stöndum þó öll
vonandi saman í hvaða rússí-
bana sem við upplifum, skyldi
svo verða. n
Svarthöfði
Það er
staðreynd að…
Sniglar geta sofið í allt að þrjú ár í senn.
Talið er að yfir sjö þúsund eyjar séu á
Karíbahafinu.
Orðið PEZ á uppruna sinn að rekja
til þýska orðsins „PfeffErminZ“,
sem þýðir piparmynta.
Háhælaskór voru upphaflega
ætlaðir karlmönnum.
Ótti við flautur er viðurkennt fyrir-
bæri og kallast „Aulophobia“.
Hver er
hann
n Hann er fæddur 6.
mars árið 1961.
n Hann er víða þekktur
fyrir ritverk, ljóð og
blaðamannastörf.
n Hann var ritstjórnarfulltrúi
á Helgarpóstinum á árunum
1983–1985.
n Hann var alþingismaður
Norðausturkjördæmis á árunum
2009–2013 fyrir Samfylkinguna.
n Hann hefur meðal annars setið
í fjárlaganefnd, heilbrigðisnefnd,
samgöngunefnd og utanríkis-
málanefnd.
SVAR: SIGMUNDUR ERNIR RÚNARSSON
Fönkið víkur fyrir sjúkrabeði
n Ólafur lenti í skíðaslysi í fjölskylduferð
n Liggur á spítala og missir af sínum eigin viðburði
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
lilja@dv.is