Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 8
8 UMRÆÐA Sandkorn 6. mars 2020 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing Suðurlandsbraut 14 2. hæð FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Hann sagði – hún sagði – við bíðum Kjaradeila Eflingar og Reykjavíkur- borgar er enn óleyst og hafa aðilar fund- að skammar- lega sjaldan undanfarið og þess í stað snúið deilunni upp í sandkassaleik eða eins konar leikþátt sem fluttur er í gegnum fjölmiðla. Hvorug- ur aðili virðist ætla að gefa eftir svo mikið sem sentí- metra, og verða skotin sem ganga á milli ómálefnalegri með hverjum deginum. Nú hins vegar er verkfallið farið að ógna heilsu almennings með tilkomu kórónaveirunnar til landsins. Hvað er þá hægt að gera? Líklega verður niður- staðan a) Aðilar setjast loks niður, ræða málin og komast að samkomulagi sem allir geta verið jafn ósáttir við b) Verk- fallsaðgerðum verður frestað á grundvelli almannaheilla c) Stjórnvöld setja lög á verkfall- ið. Þriðji kosturinn verður lík- legri með hverjum deginum. Kóróna hálfvitanna Kórónaveiran hefur sett ís- lenskt samfélag á hliðina. Á þriðja tug eru smitaðir, er sandkorn þetta er ritað, og hamfarahræðsla hefur gripið landann sem hamstrar spritt og matvöru eins og morgun- dagurinn muni aldrei koma. Svo eru reyndar þeir sem virð- ast ekkert óttast, Ingjaldsfífl sem viljandi taka krókaleið heim til Íslands til að sleppa við sóttkví, og líka þeir sem eiga að vera í sóttkví en sleppa því viljandi og gorta sig svo af því á samfélagsmiðlum. Þarna er um lögbrot að ræða en í al- mennum hegningarlögum segir að valdi maður hættu á því að sjúkdómur berist út á meðal manna, sérstaklega ef um sjúkdóm sem hið opin- bera hefur gert sérstakar ráð- stafanir til að hefta, þá sé hægt að dæma viðkomandi í allt að sex ára fangelsi. F réttaskýringaþátturinn Kveikur kafaði ofan í fátækt á Íslandi í þætti sem sýndur var í vikunni. Hann var allt í senn; upplýsandi, átakanlegur og svo sorglegur að hann nísti hjart- að. Eins og bent var á í þættinum höfum við flest eflaust verið blönk einhvern tímann á ævinni. Fátækt er hins vegar eitthvað allt annað og meira. Niðurlæging, óöryggi og kvíði sem enginn á að þurfa að lifa við. Viðmiðum fátæktar var varp- að upp á skjáinn. Ef áhorfend- ur tengdu við einhverjar af full- yrðingunum hafa þeir búið við eða búa núna við fátækt. Þeir sem tengja við flest allt eða allt búa við sára fátækt. Í kjölfarið hef ég tekið eftir að sífellt fleiri á mínum samfé- lagsmiðlum hafa opnað sig um þau tímabil í sínu lífi þegar þau bjuggu við fátækt. Sumir hrein- lega áttuðu sig ekki á að um fátækt væri að ræða fyrr en viðmiðin birtust svört á hvítu á sjónvarps- skjánum. Sem betur hafa flestall- ir minna kunningja og vina kom- ist út úr vítahring fátæktarinnar. Það er meira en að segja það og margir ná aldrei að losa fátækt- arsnöruna og hún erfist kynslóða á milli, eins og sást í þætti Kveiks. Það er ekki ofsögum sagt að þáttur Kveiks lét afar fáa ósnortna. Fólkið sem steig fram og af- hjúpaði sínar aðstæður, sinn ótta og brostna drauma eru hetjur. Það er samfélagslega samþykkt að tala um alls kyns hræðslu og sorg, en fátækt er ekki þar á með- al. Það er ólýsanlega erfitt að biðja um hjálp í fjárhagskröggum og stoltið situr eftir, sært og aumt og bíður þess hugsanlega aldrei bætur. Fólki finnst það bregðast sem manneskja, bregðast börn- unum sínum, sér oft enga leið út. Lifir í óvissu hvern dag um hvort það fái að borða, hvort það eigi þak yfir höfuðið, hvort óvænt út- gjöld muni sprengja allt heimilis- lífið upp – þurrka það út. Allt út af peningum. Þó að fólkið sem kom fram í Kveik sé sumum fjarlægt er það samt allt um kring. Það vinn- ur með þér. Börn þess ganga í skóla með þínum börnum. Þú keyrir fram hjá því er það bíður eftir strætó. Þú rekst á innkaupa- kerruna þess í Bónus. Þetta eru nefnilega miklu fleiri en þú eða ég gerum okkur grein fyrir. Því ber að fagna að þáttur Kveiks hafi orðið til þess að æ fleiri opni sig um fátækt á samfé- lagsmiðlum. Það geta nefnilega allir lent í þessari stöðu, að allt hrynji. Og því miður er afskaplega lítið og dapurlegt sem grípur þá sem höllum fæti standa. Þögn stjórnvalda eftir þennan vandaða og átakanlega þátt Kveiks er ærandi. Óþægileg. Hvorki meirihluti né minnihluti lætur sig málið varða. Heldur áfram að hundsa skítugu börn- in hennar Evu. Heldur áfram að röfla um kaupmátt og jafnrétti, frábær lífsskilyrði og besta vatn í heimi. Gasprar um norræna vel- ferðarsamfélagið og lífskjara- samninga. Á meðan misstígur sig einhver og fellur í fátæktargildruna sem gleypir menn og konur með húð og hári. Og maður spyr sig; hve lengi á þessi þögn yfirvalda að vara? n Nístandi þögn Spurning vikunnar Hversu mikið óttast þú útbreiðslu COVID-19 á Íslandi? „Ég ætla ekkert að óttast. Svo lengi sem almenn- ingur fer eftir tilmælum sóttvarnarlæknis og sérfræðinga varðandi sýkingarvarnir, hreinlæti og sóttkví.“ Berglind Veigarsdóttir „Ég óttast útbreiðslu COVID-19 frekar mikið. Íslendingar eru svo harðir að þeir mæta bæði á samkomur og í vinnu þótt þeir séu hóstandi blóði. Ég hef þó ekki trú á að það verði mikið um dauðs- föll hér á landi en reikna með að þetta fari eins um og eldur í sinu. Vonandi verður þetta þó til þess að fólk læri að taka tillit til annarra og hætti að mæta veikt á almenningsstaði.“ Hallur Karlsson „Þetta er vissulega erfið staða en ef fólk sýnir ábyrgð þá ætti að vera hægt að sporna gegn verulegri útbreiðslu.“ Ragnhildur Aðalsteinsdóttir „Ef ég segi alveg eins og er, þá óttast ég útbreiðslu COVID-veirunnar á Íslandi. Ég óttast ekki að fá veiruna, trúi að ég lifi hana af, en ég óttast að bera ábyrgð á að smita einhvern sem síðan deyr af völdum hennar. Við þekkjum flest einhverja í áhættuhópnum.“ Tanja Sif Hansen Leiðari Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.