Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 11
FÓKUS - VIÐTAL 116. mars 2020 Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is LÓNSBRAUT 6 • 220 HAFNARFIRÐI • SÍMI 551 7170 • SAETOPPUR.IS hafi hann því meðvitað geymt áfram í handraðanum. „Þegar það er ákveðið að leikrit verði ekki sett upp aftur þá tæmist diskurinn ósjálfrátt. Ef það er hins vegar sagt að það eigi að setja sýninguna aftur upp þá geym- ist textinn, svona að mestu leyti. Auðvitað hef ég hundrað sinnum gleymt texta og það hafa allir leikarar gert, en það hefur aldrei komið alvarlega að sök. Eflaust þarf maður að hafa meira fyrir því með árunum að læra og muna, en það verður eins og hvert ann- að handverk að læra texta og maður kemst í þjálfun í því rétt eins og í öllu öðru. Það er engu að síður full vinna að læra texta, en ég þekki ekkert annað enda hef ég unnið við það í fjörutíu og fimm ár.“ Siggi segir ferilinn hafa byrjað rétt eins og hjá svo mörgum þrátt fyrir að feiminn hafi elt hann allar götur. „Ég byrjaði að leika í gegnum skáta- hreyfinguna, hún skipti sköpum og var merkilegur félagsskapur. Þar þótti til siðs að vera með atriði, leika skrítlur og þarna fann ég fyrst mína köllun þótt sviðsljósið hafi aldrei verið neitt fyrir mig. Mér líður ekki vel á mannamótum, sem er ákveðin fötlun en ég lifi með henni. Áður en ég vissi af var ég svo kominn í leiklistarskóla og fjórum árum síðar, eftir útskrift var hringt í mig úr þessu húsi sem við erum stödd í í dag. Sveinn Einarsson, sá merki og ágæti maður, var þá þjóðleikhússtjóri og bauð mér vinnu hér. Hann var örlaga- valdur í mínu lífi því ég hef starfað hér meira og minna síðan í öll þessi ár. Hann réð því svolítið minni framtíð, sem betur fer, og reyndist mér vel. Fyrstu árin var ég mikið upp á grínhöndina en umræddur Sveinn hafði nú sem betur fer vit á að leiða mig út í drama samhliða því svo ég á hon- um mikið að þakka. Auðvitað fær maður stimpil í gegnum Spaugstofuna en ég hef líka leikið alls konar dramatísk hlutverk. Það má alveg vera að ég hafi það orð á mér að vera góði gæinn en þegar ég lít til baka hef ég leikið ótrúlegustu manngerðir, hvort sem það er djöfullinn eða Hitler, eitthvert ómenni í sjónvarpi eða kvikmyndum, nú eða Ragnar Reykás, Kristján Ólafsson eða Svamp Sveinsson, ég hef komið svo víða við.“ Siggi er skiljanlega alvanur spurn- ingunni hvaðan karakterarnir komi en hann segir útilokað að svara til um það. „Þeir koma auðvitað að stórum hluta úr mínum eigin ranni. Í Spaugstofunni verða þeir til í samstarfi við félaga mína og þá fer auðvitað allt eftir viðfangsefninu þótt handbragðið sé úr mínum haus. Lykillinn að Ragnari held ég sem dæmi að sé sá að þar hitti fjandinn ömmu sína en þar fyrir utan hefur þjóðin alltaf gaman af svona leiðindamönnum. Ég hef nú leikið hann á hnjánum í þrjátíu ár.“ Það má ekki allt lukkast vel Spurður hvort hann geri greinarmun á gamanhlutverkum eða dramatískum segir Siggi það úrelta hugsun. „Hér á árum áður var gerður greinar- munur og jafnvel litið niður á gamanleik. Það hefur breyst hratt með minni kyn- slóð frá því ég var að byrja. Í dag flokk- um við leikara síður og sjálfur hef ég alltaf sagt að þetta sé bara spurning um góðan eða slæman leikara, þetta er ekki mikið flóknara en það. Auðvitað geta menn hæg- lega fest í einhverju boxi og ég hef klárlega gert það á einhverjum tímapunkti, en leik- ari verður að vera meðvitaður og vakandi fyrir því. Maður þarf alltaf að fá ögrandi verkefni og þá er þetta ekki spurning um góða eða vondan karlinn, það getur hins vegar reynst ögrandi glíma fyrir leikara að setja sig í spor siðspillts manns eða ill- mennis því það er auðvitað hlið sem mað- ur þekkir ekki neitt. Það er auðveldara að setja sig inn í hugarheim venjulegs fólks, en í grunninn skiptir auðvitað öllu máli að efnið sé alvöru.“ Hvernig finnur þú hrottann í sjálfum þér? „Ætli það sé ekki einhver hrottapúki í okkur öllum, einhvers staðar. En það er engin ein aðferð, maður hefur enga sér- staka holu að grafa í, maður fer bara í samstarf og þá er þetta allt spurning um handrit, leikstjóra og meðleikara. Þetta er samvinna og svo kemur maður bara með tillögur og tilboð. Ég hef leikið svo rosa- lega mörg skemmtileg hlutverk og verið heppinn að fá fjölbreytt verkefni. Þótt ég sé núna kominn í seinni hálfleik sé ég að ég á afskaplega litríkan feril að baki, það væri ósanngjarnt að segja annað. Sem betur fer finnst mér enn ofsalega gaman að starfa í leiklist, en svo er það þetta, að þótt sum- ar rullur takist ágætlega er ekki endilega alltaf skemmtilegast að leika þær. Það fer svo mikið eftir sýningunni sjálfri, hvernig að henni var staðið. Eðlilega hef ég líka fengið alls konar gagnrýni, stundum góða og stundum mjög vonda. Ég held að með tímanum læri leikari að vinsa úr það sem gagnast manni og hvað ekki. Sumt verð- ur maður að hlusta á og ég tek margt inn á mig og hugsa með mér að kannski sé eitthvað til í þessu, en hins vegar finnst mér sumt beinlínis ósanngjarnt, það er þó sjaldnast þannig. Stundum er það líka bara þannig að maður gerir mistök, hittir ekki naglann á höfuðið og er jafnvel bara rang- ur maður á röngum stað. Það var vitleysa að kasta manni í þetta hlutverk eða jafnvel rangur leikstjóri, það er allt til í þessu. En það er alltaf þannig í listum, hvort sem það er í leiklist, myndlist eða ritlist, það lukk- ast ekkert allt og það má heldur ekki allt lukkast því manni verður að mistakast, því þannig fær maður viðspyrnu aftur. Maður ætlar sér samt aldrei að mistakast því mað- ur er alltaf að reyna slá í gegn, en þá er eins gott að átta sig á því að það mun aldrei verða þannig.“ Leikhúsið lifir allt af Siggi hefur samhliða leik starfað talsvert við leikstjórn og sett til að mynda upp fjöldann allan af barnasýningum. Hann segir leikstjórnina þó ekki vera ástríðu hans. „Ég er fyrst og fremst leikari, þótt ég hafi mjög gaman af því að leikstýra því sem hentar mér og mér finnst að ég ráði við. Það er alveg frábært að leikstýra börnum en tekur auðvitað á þolinmæðina, það vill til að ég hef hana. Ég er ekkert að leikstýra í augnablikinu en leik mikið þótt ég sé nú ekki tvítugur lengur. Að mínu mati er svo mikilvægt að hafa, ekkert endilega mig, en leikara sem eru í eldri flokki og eru í leik- rænu ástandi. Ég held að hver þjóð þurfi að passa upp á það. Þú vilt eiga nokkrar gaml- ar kerlingar og karla á sviðinu sem enn eru í formi. Það sem hefur bjargað mér er hvað ég hef fengist við margar rullur sem láta mig fást við mikið líkamlegt „action“, það hefur svona verið mín líkamsrækt.“ Aðspurður hvort það sé ávanabindandi að láta klappa fyrir sér á hverju kvöldi segir Siggi svo ekki vera. „Ég upplifi það ekki þannig en auðvit- að nýtur maður þess að það hafi tekist vel til og þakkar fyrir það. Mér þykir afskap- lega vænt um það hvað fólk elskar leik- hús og er duglegt að sækja leikhúsið. Þess vegna eru ákveðin forréttindi að vinna við það sem manni finnst svona gaman. Leik- húsið breytist auðvitað og fer í gegnum hæðir og lægðir, ferðast í gegnum tísku- sveiflur og allt það. Þetta er háð svo mörgu en það sem er merkilegast, hvað sem má segja um gæði leikhússins, er það að leik- húsið hefur lifað allt af, hvort sem það er vídeó, sjónvarp, kvikmyndir eða internet. Alltaf stendur Þjóðleikhúsið, og öll leik- hús í heiminum, og við erum að gera ná- kvæmlega sömu hlutina uppi á sviði. Samt er þessi ógnartæknibylting fyrir utan – það er alveg merkilegt. Sjálfum finnst mér í grunninn bara gaman að segja góða sögu, hvort sem hún er á sviði eða hvíta tjaldinu. Auðvitað eru önnur vinnubrögð við kvik- myndagerð en í grunninn er þetta ná- kvæmlega það sama. Hvernig segjum við þessa sögu á sem áhrifaríkastan hátt. Í leikhúsinu hugsum við það aldrei sem svo að við séum að segja sömu söguna aftur og aftur því þótt þú vitir hvað þú eigir að segja eru alltaf nýir áhorfendur í salnum, þeir eru svo stór partur af þessu. Við vitum aldrei hver viðbrögðin verða, svo kvöldið verður aldrei eins. Það er hlegið meira eða grátið minna og það þarf alltaf að spila með þetta, þannig að þótt sagan sé sú sama segjum við hana alltaf á ólíkan hátt.“ Hefur hugurinn aldrei reikað til Hollywood? „Nei, ég hugsa aldrei þangað. Ég hef verið svo heppinn að fá að leika mikið hér á landi, bæði á sviði og í sjónvarpi að það fullnægir mér alveg. Tilhugsunin um að verða frægur í Hollywood hefur aldrei náð til mín. Eflaust eru meiri peningar þar, en ég fæ fullnægju í að leika hér heima. Lífið er þó ekki bara í leikhúsinu því það er líka suður í Hafnarfirði með barnabörnunum mínum. Mér finnst svo gott að vera með fólkinu mínu. Maður fer kannski hægar yfir, en ég er mikill útiverumaður, elska að ferðast um landið, er sprækur og spila golf, bara þetta klassíska eins og allir hinir strákarnir og stelpurnar.“ n M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.