Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 34
34 PRESSAN 6. mars 2020
V
íða í Evrópu er leyniþjón
usta og löggæslustofn
anir á tánum vegna upp
gangs öfgahægrimanna
en þeir hafa sótt mjög í sig veðr
ið víða í álfunni að undanförnu.
Mikil ógn er talin stafa af þeim
þar sem margir í þessum hópi eru
reiðubúnir til að beita ofbeldi til
að ná fram markmiðum sínum.
Oft beinast ofbeldisverkin gegn
múslímum, gyðingum, innflytj
endum og öðrum hópum sem
falla öfgahægrimönnum ekki
í geð. Skemmst er að minnast
hryðjuverksins í Hanau í Þýska
landi fyrir 2 vikum þar sem hinn
43 ára Tobias Rathjen skaut níu
til bana á tveimur vatnspípukaffi
húsum. Að því loknu fór hann
heim til sín og skaut móður sína
til bana og svipti sig síðan lífi.
Hann skildi eftir sig langa stefnu
yfirlýsingu og myndband þar
sem hann viðraði sjónarmið sín.
Þýsk yfirvöld segja hann hafa ver
ið öfgahægrimann og virðist sem
andúð á múslímum og innflytj
endum hafi knúið hann til voða
verksins.
En hryðjuverkið í Hanau er
ekkert einsdæmi í Evrópu. Leyni
þjónusta evrópskra ríkja sér
greinileg merki þess að mjög
fjölgi í hreyfingum öfgahægri
manna og eru margir félaganna
reiðubúnir til að beita ofbeldi og
sumir víla ekki fyrir sér að fremja
hryðjuverk til að ná markmiðum
sínum og skoðanabræðra sinna.
Ekki er langt síðan þýska lög
reglan handtók tólf manns sem
tilheyra samtökum öfgahægri
manna. Að minnsta kosti fjórir
þeirra eru grunaðir um að hafa
verið að undirbúa árásir á stjórn
málamenn, múslíma og hælis
leitendur. Hinir átta eru grunað
ir um að hafa stutt hópinn og að
hafa heitið honum fjárhagslegum
stuðningi.
Á Bretlandseyjum segir lög
reglan að ofbeldis og hryðju
verkaógnin sem stafar af öfga
hægrimönnum sé mest vaxandi
ógnin þar í landi nú um stundir. Í
því samhengi er rétt að hafa í huga
að Bretar hafa upplifað mörg
hryðjuverk íslamskra öfgamanna
og kalla því ekki allt ömmu sína í
þeim efnum. Enn sem komið er
eru fleiri öfgasinnaðir múslímar
í kastljósi lögreglunnar en ógn
in frá hægri vængnum hefur auk
ist mikið en frá 2015 hefur þeim
öfgahægrimönnum, sem eru
undir eftirliti lögreglunnar, fjölg
að þrefalt. Um 80 hryðjuverka
árásum hefur verið afstýrt síðan
2017. Svo mikil hætta er talin á
hryðjuverkum öfgahægrimanna
að leyniþjónustan MI5 hefur tek
ið yfir eftirlit og aðgerðir sem
beinast gegn þeim.
Áhrif Breivik
Magnus Ranstorp, sem er einn
fremsti sérfræðingur Norður
landa í málefnum hryðjuverka
manna, telur að margar ástæður
liggi að baki uppgangi öfgahægri
manna. Í samtali við Jótlands
póstinn sagði hann að árum
saman hafi nasistar látið að sér
kveða en nú sé uppgangur hjá
hægrisinnuðum popúlistum og
öfgasinnum. Í kjölfar hryðjuverks
Anders Behrings Breivik í Noregi
hafi menntahluti hægri vængsins
fengið byr undir báða vængi. Til
dæmis hafi sú kenning náð mik
illi hylli að elítan væri að eyði
leggja samfélagið, meðal annars
af því að hún leyfði innflytjend
um að koma til Evrópu.
Breivik sprengdi öfluga
sprengju í stjórnarráðshverfinu í
Ósló í júlí 2011 og fór síðan til Út
eyjar þar sem ungmennahreyfing
Verkamannaflokksins stóð fyrir
sumarbúðum. Þar myrti hann
69 ungmenni. Áður en hann lét
til skara skríða hafði hann birt
stefnuyfirlýsingu á netinu. Þetta
sama ár vöknuðu Þjóðverjar upp
við vondan draum þegar þeir átt
uðu sig á að árum saman hafði
þriggja manna hópur öfgahægri
manna, sem hélt sig í austur
þýska bænum Jena, myrt níu
útlendinga og eina lögreglukonu.
Í kjölfarið fóru löggæslustofnan
ir að beina sjónum sínum enn
frekar að öfgahægrimönnum.
Þýska leyniþjónustan, Verfass
ungsschutz, sem sér um inn
lend málefni, telur að breytingar
eigi sér stað hjá öfgahægrimönn
um. Þar sé til staðar fólk sem hef
ur lengi laðast að öfgasinnuð
um skoðunum og ofbeldisfullum
hugmyndum en nú sé nýtt fólk að
koma til liðs við það sem fyrir er.
„Öfgahægriskoðanir í Þýska
Sundaborg 3
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
SKILTAGERÐ
Ljósakassar
Ljósaskil
3D stafir
Hönnun
Ráðgjöf
Uppsetning
Uppgangur
öfgahægri-
manna í
Evrópu
n Ein stærsta ógnin n Víla ekki fyrir sér að
fremja hryðjuverk til að ná markmiðum sínum
Philip Mans-
haus Ætlaði að
fremja hryðju-
verk í mosku en
var yfirbugaður.
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is