Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Side 44
44 FÓKUS - VIÐTAL 6. mars 2020
OnePortal er
vefgátt sem gerir
fyrirtækjum og sveitar-
félögum kleift að veita íbúum
þjónustu allan sólahringinn, allt
árið um kring. Rafrænir innri ferlar
eru tengdir við þjónustugátt fyrir íbúa
eða viðskiptavini, þar sem þeir
Gæða-
stjórnun á
stóran þátt í góðum
árangri fyrirtækja.
OneQuality er lausn sem
OneSystems bjóða heildarlausn
í skjalamálum fyrirtækja og sveitarfélaga
og þjónustu við viðskiptavini og íbúa þeirra
Hagkvæmar lausnir
með áherslu á rekjanleika,
auðveldan aðgang og gagnsæi.
OneRecords er öug lausn sem auðveldar
fyrirtækjum og sveitarfélögum halda utan
um mál sem eru í gangi á hverjum tíma.
Stjórnendur hafa yrsýn yr gang mála
innan fyrirtækisins og notendur
geta á einfaldan máta sótt
lista yr þau mál sem þeir
bera ábyrgð á.
Vilt þú koma
skjalamálunum
í lag?
VELJUM
ÍSLENST - VELJUM
ÍS
LE
NS
KT
-V
EL
JUM
ÍSLENSKT -
Records
Mála- og skjalakerfi
Self-Service
www.one.is
OneSystems - sími: 660 8551 | fax: 588 1057 | www.one.is | one@one.is
www.one.is . one@one.is
sími: 660 8551 . fax: 588 1057
Vorum hársbreidd frá því að missa hann – Ófrísk með enga eggjaleiðara
og ónýtt sæði Pössum að börnin skorti ekki neitt – Halda fast í húmorinn
G
uðný Ósk Þórsdóttir segir mikilvægt
að fólk sýni aðgát og leiti allra leiða
til þess að koma í veg fyrir útbreiðslu
COVID-19 kórónaveirunnar. Sjálf
glímir Guðný við alvarlegt brjósklos en eig-
inmaður hennar, Jón Þór Guðbjörnsson, er
með svokallað sofandi krabbameinsæxli
og því illa í stakk búinn að takast á við
hugsanlegt smit veiru nar.
Hjónin hafa ekki hist nema í örfáar
klukkustundir síðan 4. febrúar en Guðný
hefur síðan þá dvalið á sjúkrahúsi vegna
aðgerðar sem hún gekkst undir. „Ég hef
þjáðst af bakverkjum í fjöldamörg ár, mis-
slæmum þó. Í desember á síðasta ári rann
ég til í hálku, ég datt ekki en fékk tak í bak-
ið. Þetta var nístandi sársauki sem náði
niður í fót. Í kjölfarið leitaði ég mér læknis-
aðstoðar og þannig fóru hlutirnir að rúlla.“
Lyfjameðferðirnar gengu nánast frá
honum
Vegna veikinda eiginmannsins hefur Guð-
ný lítið séð af honum á meðan sjúkrahús-
dvölinni stendur, en hún hélt þó örlitla
veislu þann 23. febrúar þegar hún fagn-
aði 36 ára afmælisdegi sínum. „Fjölskyld-
an kom og færði mér snarl þennan dag.
Ég ligg á stofu með frekar gömlu fólki hér
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja, en vegna
hávaða gátu börnin ekki stoppað lengi.
Ég er þó alls ekki að setja út á starfsfólk-
ið hér, enda hafa allir reynst mér rosalega
vel. Enginn á deildinni virtist þó vita af af-
mælinu mínu svo ekki var ikið um af-
mæliskveðjur nema þær sem ég fékk send-
ar á Facebook. Maðurinn minn veiktist svo
mjög mikið daginn eftir og liggur enn veik-
ur heima svo lítið hefur verið um heim-
sóknir til mín. Mamma kom að vísu til mín
í síðustu viku, en hún er búsett fyrir vest-
an.“
Hjónin eru bæði ættuð frá Ísafirði en
fluttust suður árið 2012 þegar Jón Þór
hugðist sækja nám á Keili, stuttu síðar
greindist hann með krabbamein. „Þetta
byrjaði hjá honum sem almennur slapp-
leiki ásamt verk í baki. Hann ræddi við
lækni á Ísafirði sem hvatti hann til að fara
oftar út að ganga þrátt fyrir að röntgen-
mynd sýndi stórt æxli hjá vinstra lunga.
Fljótlega fór svo að draga vel af honum
og á endanum dró ég hann aftur til lækn-
is. Þá vorum við flutt til Keflavíkur og í ljós
kom 10 sinnum 17 sentimetra stórt æxli
við lunga. Þarna hófst skiljanlega mikill
rússíbani og þá fyrst og fremst við það að
halda uppi fimm manna fjölskyldu á floti
í glænýju bæjarfélagi þar sem við þekktum
ekki sálu. Jón var mikið á sjúkrahúsi og ég
reyndi að skipta mér á milli þess að sinna
honum og vera til staðar fyrir börnin. Skilj-
anlega komst ég ekki sjálf í vinnu á þessum
tíma enda 300% álag að halda öllu á réttum
stað. Það er þó eins og Jón hafi ekki gert sér
fullkomlega grein fyrir alvarleika veikinda
sinna því hann sinnti náminu allan tímann
af mikilli hörku. Honum fannst hann aldrei
geta hætt því þá hefðum við enga framfær-
slu. Hann fór í fjórar lyfjameðferðir sem
gengu nánast frá honum og í þeirri síð-
ustu vorum við hársbreidd frá því að missa
hann. Hann varð mjög veikur og endaði á
gjörgæslu.“
Barnshafandi eftir steindauðan
krabbameinssjúkling
Eftir að hafa lokið námi frá Keili í t kni-
fræði hóf Jón Þór störf hjá tækniþjónustu
SÁ í Keflavík hann hefur þó verið mikið
frá vinnu síðan Guðný fékk brjósklosið og
segir hún undanfarna mánuði hafa verið
erfiða. „Ég ætlaði að byrja að vinna í sept-
ember á síðasta ári, en vegna álags hef-
ur sá tími alltaf lengst sem ég er heima.
Auðvitað hefur þetta tekið á fjárhagslega
séð, en við höfum passað að börnin skorti
ekki neitt. Vissulega fá þau ekki allt held-
ur en þau eiga góðar ömmur og afa sem
bjarga stórum þörfum eins og gleraugum
og öðru slíku. Það erum við sem erum oft-
ast mest til hliðar og þá aðallega ég sem fer
helst ekki til læknis, og bara það að fara til
tannlæknis er á algjörum munaðarlista hjá
mér.“
Eins og fram hefur komið er fjölskyldan
stór, en fyrir átti Guðný tvö börn sem Jón
Þór tók frá fyrstu kynnum sem sínum eig-
in. Fljótlega bættust svo þrjú fleiri í hóp-
inn. „Við ky ntumst í lok janúar 2009 á
þorrablóti á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp.
Það gekk strax rosalega vel hjá okkur en það
er ekki sjálfgefið að kynnast konu og tveim-
ur fjörkálfum í leiðinni þótt það hafi í okk-
ar tilfelli gengið upp. Tveimur árum síðar
fæddist svo fyrsta barnið okkar, en árið eft-
ir greindist Jón með krabbameinið. Í kjöl-
farið fórum við í sæðisbankann til að halda
öllum möguleikum opnum. Í skoðun, eftir
að lyfjameðferðum lauk, kom í ljós að allar
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
„Þeir sem
eru veikir
fyrir eiga
samt rétt
á að lifa“