Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2020, Síða 45
FÓKUS - VIÐTAL 456. mars 2020 sæðisfrumurnar hans voru dauðar og þar með misstum við trúna á að frekari barn- eignir væru hugsanlegur draumur. Sum- arið 2014 varð ég svo mjög veik en grun- aði ekki neitt. Eftir að hafa þrjóskast við í töluverðan tíma endaði ég uppi á bráða- móttöku þar sem í ljós kom að ég var með sprunginn eggjaleiðara og þjáðist af mikl- um blóðmissi. Ég var drifin í aðgerð og þá kom í ljós að ég var barnshafandi, sem átti alls ekki að vera hægt. Í öllum hamagangin- um hélt ég þó fast í húmorinn sem í raun lýsir okkar sambandi svo vel. Ég tilkynnti hjúkrunarfræðingum og læknum það há- tíðlega að ég gæti alls ekki verið ófrísk enda væri karlinn steindauður krabbameins- sjúklingur og hló mikið. Stuttu síðar fékk ég að hringja í Jón og sagði honum að ég væri ófrísk, án þess að hika spurði hann í kjölfarið: „Og hver er þá pabbinn?“ Aftur myndaðist þrúgandi þögn í sjúkraher- berginu, en sem betur fer var þarna hjúkka sem þekkti til okkar og tilkynnti restinni af starfsfólkinu að við værum að grínast og þetta væri einfaldlega okkar húmor. Auð- vitað vorum við himinlifandi að við ættum von á barni og mikil gæfa að eitthvað væri enn á lífi í sæðisbúri míns manns.“ Annar keisarasonur kemur í heiminn Á jóladag, sama ár, varð Guðný fyrir því óláni að þríökklabrjóta sig ásamt því að slíta liðband og taka ökklann úr lið. Hún hafði þá verið á leið að sækja hrút og setja hjá nokkrum rollum sem hún átti. „Daginn eftir fór ég í aðgerð, mig verkjaði mjög og ældi stöðugt. Nokkrum dögum síðar fannst mér þessi uppköst heldur langdreg- in en þarna kom í ljós að ég var aftur orðin ófrísk. Drengurinn okkar fæddist svo í ágúst 2015 og var tekinn með keisara. Í kjölfarið lét ég taka mig úr sambandi. Haustið, ári síðar, fann ég aftur fyrir slapp- leika sem endaði með jákvæðu þungunar- prófi. Þá var ég ófrísk að fimmta barninu sem var auðvitað gjörsamlega galin til- hugsun í ljósi þess að við áttum alls ekki að geta eignast barn. Hann með dauðar sáð- frumur og ég búin að láta fjarlægja báða eggjaleiðara. Í júní 2017 kom svo annar keisarasonur í heiminn en hann reyndist vera með hjartagalla og vökva í lungum. Við dvöldum því á vökudeild í fimm sólar- hringa, en honum vegnar vel í dag.“ Elsti drengur þeirra hjóna greindist með dæmigerða einhverfu og segir Guðný ferlið hafa gengið erfiðlega. „Við fundum fljótt að hann fylgdi engu „normi“ ef svo má segja. Við fluttum hann til á leikskóla enda sótt- um við stíft að hann fengi betri þjálfun sem ekki var til staðar á þeim fyrri. Það tók allt saman langan tíma, en þetta tók sömuleið- is mikið á taugarnar. Allt svona fellur líka undir að vera mín deild enda er nóg fyrir manninn minn að komast í gegnum sinn dag og sína vinnu, orka hans nær ekki lengra en það. Drengurinn okkar greindist að lokum með dæmigerða einhverfu með miklu þroskamisræmi ásamt því að vera með ADHD. Okkur fór svo að gruna að eitthvað væri að þeim yngsta þegar hann var rétt nokkurra mánaða og því hafði ég undirbúið allt mjög vel þegar hann hóf sína leikskólagöngu síðasta haust. Hann er nú þegar kominn í ferli og skorar mjög hátt um að eitthvað sé að en hann þarf mikla þjálfun og er þegar farinn að fá hana.“ Kveiki á kerti fyrir hana Fimmtán mánuðir eru nú síðan systir Guð- nýjar laut í lægra haldi fyrir krabbameins- púkanum en hún greindist með sortu- æxli ári fyrir dauða sinn. „Við vorum miklu meira en bara systur. Við vissum allt um hvor aðra. Við töluðum til að mynda alltaf saman meðan við sinntum húsverkunum og í dag kveiki ég alltaf á kertinu henn- ar meðan ég brýt saman þvottinn. Hún var einungis 39 ára þegar hún féll frá og var móðir þriggja barna. Það þekkti mig enginn eins vel og hún, enda var hún alltaf til staðar og sú manneskja sem hvatti mig í gegnum erfiðustu unglingsárin. Hún var ein af fáum sem hrósuðu mér og leit mik- ið upp til mín þótt ég væri litla systir henn- ar. Ég hef aldrei kunnað að taka hrósi. Við erum þrjár systurnar, en hin er sjö árum yngri en ég. Við eigum auðvitað gott sam- band, en við tölum ekki eins mikið saman. Hún er mun nánari mömmu meðan við eldri höfðum hvor aðra.“ Hestarnir passa upp á heilsuna Framundan er tími endurhæfingar og segist Guðný taka honum fagnandi. „Mig langar auðvitað bara að komast á ról og vonandi heim sem fyrst, enda verið fjarri heimilinu í rúman mánuð. Endurhæfingin á svo eftir að taka nokkra mánuði en von- andi geng ég óstudd og fín inn í sumarið. Jóni fer líka vonandi að batna og geta mætt í vinnu, þá réttist kúturinn af. Sjálf stefni ég á vinnumarkaðinn með haustinu. Það sem heldur mér réttum megin við geðheilsum- örkin eru auðvitað hestarnir mínir sem ég reyni að lækka kostnaðinn við með því að leigja bása og moka fyrir aðra. Það er það sem hefur haldið mér og minni geðheilsu í lagi undanfarin ár. Einn daginn mun ég svo geta safnað mér fyrir tannlæknakost- aði líka.“ Áhyggjum sínum af COVID-19 lýsti Guðný nýverið á netmiðli sínum en skilj- anlega eru þau hjónin í áhættuhópi vegna veirunnar. „Jón var ekki smitaður af inflú- ensu á sínum tíma en allt svona hefur verið á mínum herðum. Sorgin eftir dauða systur minnar var því yfirsterkari en að huga að svona málum en Jóni hefur sjálfum aldrei fundist hann nógu veikur til að panta sér tíma. Eftir að læknarnir tilkynntu honum að æxlið væri sofandi hefur hann ekki þurft að vita meira, hann veit bara að hann sé ekki að deyja úr krabbameini og það nægir honum. Hann skilur samt ekki alvarleika þess að vera með þindarlömun og aðeins eitt starfandi lunga. Mér er mikið í mun að fólk geri sér grein fyrir þeirri hættu sem steðjar að veikburða fólki í þessu samhengi og virði það að leggjast í sóttkví. Þeir sem eru veikir fyrir eiga líka rétt á að lifa. Börn- in mín eiga rétt á því að mamma þeirra og pabbi séu á lífi. Mér finnst líka mikil- vægt að fólk sýni aðgát, sérstaklega þeir sem koma frá stöðum þar sem mikið hef- ur verið um smit því ef við hægjum ekki á útbreiðslu springur kerfið okkar, og það er nú þegar við það að springa. Miðað við alla tölfræði munu þrjú þúsund manns deyja hér á landi og þetta er allt fólkið okkar sem er veikt fyrir. Aldraðir, sjúklingar og börn með undirliggjandi sjúkdóma ásamt auð- vitað nýfæddu börnunum sem eru alveg varnarlaus gagnvart þessu. Því bið ég fólk einlæglega að sýna aðgát.“ n „Drengurinn okkar fæddist svo í ágúst 2015 og var tekinn með keisara. Í kjölfarið lét ég taka mig úr sam- bandi. Haustið, ári síðar fann ég aftur fyrir slappleika sem endaði með jákvæðu þungunarprófi. Þá var ég ófrísk að fimmta barninu sem var auðvitað gjörsam- lega galin tilhugsun í ljósi þess að við áttum alls ekki að geta eignast barn. Hann með dauðar sáðfrumur og ég búin að láta fjarlægja báða eggjaleiðara.“ Hann fór í fjórar lyfjameðferðir sem gengu nánast frá honum og í þeirri síðustu vorum við hárs- breidd frá því að missa hann

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.