Íþróttablaðið - 01.03.1948, Side 36
26
ÍÞRÓTT ABL AÐIÐ
lllurk:
Sundmót
Hið árlega sundmót Glímufélagsins
Ármanns fór fram i Sundhöll Reykja-
vikur 12. nóv. 1947. Þetta er fyrsta mót-
ið, sem Monte Carlo fararnir tóku þátt
i eftir heimkomuna og settu þeir að
sjálfsögðu sinn svip á mótið, m. a. með
þvi að setja 3 af þeim 4 íslandsmetum,
sem sett voru á mótinu. Helztu úrslit
urðu þessi:
100 m. bringusund karla:
1. Sigurður Jónsson, KR, 1:17,2 mín.
(nýtt met); 2. Ari Guðmundsson, Æ,
1:20,2 mín.; 3. Ingvar Jónass., Æ, 1:24,1
inin. (Ingvar synti í öðrum riðli).
Ari var á undan fyrri helming leið-
arinnar, en eftir það tók Sigurður að
sér forustuna og sigraði örugglega á
nýju íslandsmeti. Fyrra metið var
1:17,7. mín.,. sett af Sigurði Þingeying i
keppni við Per Olof Olsson, fyrr á ár-
inu. Þingeyingurinn tók ekki þátt i
þessu sundi og urðu það mörgum von-
brigði.
50 m. baksund drengja:
1. Theodór Diðriksson, Á, 38,4 sek.;
2. Helgi Jakobsson, ÍR, 42,3 sek. 3.
Haukur Magnússon, KR, 45,8 sek. Tími
Theodórs er mjög góður.
Sigurður Jónsson, K.R.
r
Armanns
50 m. skriðsund kvenna:
1. Kolbrún Ólafsdóttir, Á, 34,8 sek.
(nýtt met); 2. Sólrún Ingadóttir, ÍR
39,6 sek. Fleiri kepptu ekki.
Loks var slegið met í kvennaskriðsundi,
en það hefir ekki gerzt í 9 ár. Fyrra
metið var 35,7 sek. sett af Minnie Ólafs-
dóttur, Æ, 1938. Kolbrún er mjög efni-
leg sundkona og ætti nú að leggja sér-
staka rækt við 50 - 200 m. skriðsund, þó
ekki væri nema til þess að hrifa aðrar
með sér, því þátttakan er alltof lítil.
100 m. baksund karla:
1. Guðm. Ingólfsson, ÍR, 1:18,7 mín.;
2. Ólafur Guðmundsson, ÍR, 1:21,0 mín.;
3. Halldór Bachmann, Æ, 1:25,2 mín.
Þetta er bezti tími, sem Guðm. hefir
náð og skortir liann nú aðeins 2,5 sek.
upp á metið. Vafalaust „hjálpar" Ólaf-
ur honum eitthvað við mettilraunina,
enda hafa þeir verið mjög jafnir á 50
og 100 m. baksundi upp á síðkastið.
50 m. bringusund (mettilraun):
1. Sig. Jónsson, HSÞ, 33,7 sek. (nýtt
met) 2. Sigurður Jónsson, KR, 33,8 sek.
Öllum á óvart var skotið inn í mótið
mettilraun í 50 m. bringusundi, og þótt
keppni nafnanna og met þeirra hafi út
Kolbrún Ólafsdóttir, Á.
af fyrir sig verið ánægjuleg, fæ ég ekki
betur séð en svona keppnisfyrirkomu-
lag samrýmist hvorki isl. né alþjóða-
sundreglum. Þó er eins og þetta sé farið
að komast upp í vana, því fá mót hafa
verið haldin án „mettilraunar“ í 50 m.
bringusundi, en nú er mér spurn:
Hvað er þvi til fyrirstöðu að hægt sé að
auglýsa opinbera keppni í þessu sundi
sem öðrum sundum og prenta það i leik-
skrána? —
Keppni nafnanna var hörð og svo tví-
sýn að vart mátti á milli sjá, enda var
tímamunur aðeins 1/10 sek. Báðir syntu
vel undir fyrra metinu, 34,3 sek., sem
Hörður Jóhannesson, Á, setti 1948.
Sig. KR-ingur var nýbúinn að synda
100 metrana og mun það vafalaust hafa
haft áhrif á snerpu lians.
100 m. bringusund drengja:
1. Kristján Þórisson, Reykd. 1:25,1
mín.; 2. Þorkell Pálsson, Æ, 1:33,3 mín.;
3. Guðjón Þórarinsson, Á, 1:34,8 mín.;
Kristján bar mjög af og náði ágætum
tíma.
100 m. bringusund kvenna:
1. Þórdís Árnadóttir, Á, 1:36,2 mín.;
2. Lilja Auðunsdóttir, Á, 1:38,5 mín; 3.
Kolbrún Ólafsdóttir, Á, 1:45,3 mín.
Þetta er bezti tími, sem Þórdís og
Lilja hafa náð, en allar eru stúlkur þess-
ar í greinilegri framför. Methafinn,
Anna Ólafsdóttir, keppti ekki en met
hennar er 1:32,7 mín.
Sigurður Jónsson, HSÞ.