Íþróttablaðið - 01.12.1969, Qupperneq 13
skautaíþrótta minni en áætlað
var.
Veður mun ráða þar um æf-
ingar, einnig um keppni á sjálfri
hátíðinni. Þá er einnig útilok-
að að hægt sé að koma upp
sýningum og öðrum atriðum
með þátttöku útlendinga í
skautaíþróttum.
Bæjaryfirvöld hafa samþykkt
eftir tillögu íþróttaráðs Akur-
eyrar að fram fari endurbætur
á akveginum upp í Hlíðarfjall
og mun það verða mjög til bóta
og koma að góðum notum um
vetrariþróttahátíðina.
Af ofangreindum ástæðum
hefur undirbúningur hátíðarinn-
ar tafizt ver'ulega, en nefndin
vonar að hér eftir gangi undir-
búningur samkvæmt áætlun
miðað við þær aðstæður, sem
fyrir hendi eru.
Nú eru 30—40 manns í starfi
og verður reynt að hafa Vetrar-
íþróttahátíð Í.S.Í. sem f jölbreytt-
asta. Á sjálfri hátíðina má bú-
ast við, að 150 manns verði við
störf.
Setning hátíðarinnar mun fara
fram 28. febrúar á íþróttaleik-
vangi bæjarins og er þess vænzt
að allir keppendur og hátíðar-
gestir verði þá komnir til Akur-
eyrar. Verður vandað til setn-
ingarhátíðarinnar svo sem unnt
er m. a. mun íþróttafólk, gestir
Jens Sumarliðason, form. undirbúningsnefndar, fyrir framan „Strýtu“, en það
er lítil bygging í Hlíðarf jalli, sem notuð verður fyrir starfsfólk skíðamótsins.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
69