Íþróttablaðið - 01.12.1969, Blaðsíða 14
og starfsfólk fara í skrúðgöngu
inn á leikvanginn, sem verður í
'hátíðarbúningi.
Erlendir skíðamenn
— Þú minntist á það, að eng-
ir erlendir skautamenn yrðu
þátttakendur, en er von á er-
lendum skíðamönnum?
— Skíðaíþróttir, sem fram
fara í Hlíðarfjalli, verða stór
hluti á hátíðinni. Keppt verður
í alpa- og norrænum greinum,
í karla-, kvenna- og unglinga-
flokkum. Þá munu koma 5—6
keppendur í þessum greinum
frá Noregi, Svíþjóð og Finn-
landi. Skíðaráð Akureyrar sér
um þessa hlið hátíðarinnar.
Sögusýning
— Það verður efnt til sögu-
sýningar?
— Sögusýning, þar sem sýnd-
ir verða munír, skíði, skautar
o. fl. frá gömlum tíma verður
opin meðan á hátíðinni stend-
ur, og mun fyrir hátíðina verða
gefið út rit, sem greinir frá í
stórum dráttum sögu vetrar-
íþrótta á íslandi. Utgáfu ritsins
og sögusýningu hefur Haraldur
Sigurðsson, bankagjaldkeri, for-
göngu um.
Ég vil nota tækifærið til að
hvetja alia þá, sem hafa undir
höndum gamla muni, sem til-
heyra skíða- og skautaíþróttinni,
að hafa samband við okkur.
Skrifstofa Vetraríþróttahá-
tíðarnefndar er í Hafnarstræti
100, Akureyri - Sími 12722 -
Pósthólf 128 og 546. Skrifstof-
an verður opin alla virka daga
milli kl. 5 og 7.
Gestir eiga margra kosta völ
— Nú má búast við mörgum
gestum. Verður gert eitthvað
sérstakt fyrir þá?
Hagsýnír vetja Skoda
Shoda er sparneytínn
Skoda eródýr
Benzíneyðsla; 7 l.á 100 km.
Verð: tæpar kr. 212.000.oo
tæpar kr. 142.000.oo til öryrkja
TÉKKNESKA BIFREIÐAU M BOÐIÐ Á ÍSLANDI H.E
70
ÍÞRÓTTABLABIÐ