Íþróttablaðið - 01.12.1969, Page 16
Skéll, sem
utskrifar
dugmikið fólk
Seint um kvöld rennum við í
hlað á Laugarvatni. Það er myrk-
ur úti, kalt, og snjórinn þekur
jörí'na eins og hvít ábreiða. Það
er gott að koma inn í hlýjuna
og Árni Guðmundsson, skóla-
stjóri íþróttakennaraskólans tek-
ur vel á móti okkur. Myndarleg-
ur nemendahópur situr í sam-
komusal skólans og fylgist með
kvikmyndasýningu. Að henni
lokinni ávarpar skólastjóri nem-
endur. Dagurinn hafði verið dá-
lítið sérstakur. Bóndi úr sveit-
inni hafði týnzt fyrr um dag-
inn og nemendur tekið þátt í
leitinni. Þeir fundu hann eftir
nokkra leit, en þá var hann lát-
inn. Og nú þakkar skólastjór-
inn nemendum sínum fyrir vask-
lega framgöngu í leitinni. Það
er ekki heiglum hent að taka
þátt í dauðaleit um hávetur í
uppsveitum landsins, þegar allra
veðra er von. En nemendur
íþróttakennaraskólans verða að
vera við öllu búnir. Síðar í líf-
inu verður það hlutverk þeirra
að ala upn hrausta þjóð.
Þegar horft er heim að íþrótta-
kennaraskólanum, blasa við þrjú
hús. Stærst og veglegast er nýja
heimavistarhúsið. Skólastjórabú-
staðurinn er einnig glæsileg
bygging og sérstæð. Þriðja hús-
ið, ef hús skyldi kalla, er lítill
timburkofi, sem eitt sinn var
nemendabústaður. Ókunnugir
myndu aldrei láta sér detta í
hug, að svo hafi verið, en afar
lengi — og raunar enn í dag —
átti íþróttakennaraskólinn við
skilnings- og áhugaleysi ráða-
manna þjóðarinnar að stríða.
Skólinn var alger hornreka í
skólamálum íslands, en sem bet-
ur fer hefur skilningur aukizt
og var gert stórt átak með heima-
vistarbyggingunni. En betur rná,
ef duga skal. Nú vantar loka-
átakið — ný lög um breytta
kennslutilhögun, sem gera skól-
ann nýtízkulegri og hæfari til
að gegna hlutverki sínu. Árni
skólastjóri er þeirrar skoðunar,
að skólinn eigi erfitt með að
rækja hlutverk sitt við óbreytt-
ar aðstæður, én að því komum
við síðar.
Nemendur skólans eru 21 tals-
ins. Þeir koma úr mörgum átt-
um, Reykjavík, Akureyri, Sel-
fossi, ísafirði og víðar. Við feng-
um tækifæri til að fylgjast með
kennslunni, sem frarn fer í gamla
íþróttahúsinu við Héraðsskólann.
þ. e. a. s. verklega kennslan, en
þar er einnig sundlaug. Eftir á
gafst okkur færi á að rabba við
Árna skólastjóra um skólann.
Hvernig verjið þið deginum í
íþróttakennaraskóla Islands?
Klukkan 8 eru nemendur
mættir í skólastofu og þá hefst
kennsla. Síðan rekur hver
kennslustundin aðra til klukkan
17.00, en þá byrja nemendur að
undirbúa næsta dag. Nokkru
eftir kvöldverð gera þeir hlé á
vinnu sinni, sem það mega, halda
til setustofu og hvílast við tafl,
spil, söng o. þ. h. En klukkan
22.00 fara nemendurnir til her-
bergja sinna og loka heimavist-
unurn.
Kennslustundum er svo skipt
milli hinna ýmsu bóklegu náms-
greina, íþróttanna og æfinga-
kennslunnar. Nemendur fá eina
kennslustund á dag til æfinga-
íþróttakennaraskólinn að
72
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ