Íþróttablaðið - 01.12.1969, Side 26
VITAMIN
— IþRÓTTIR
Vítamínfræði eru ung að ár-
um. En þau hafa skilað svo mik-
ilvægri þekkingu í þágu heil-
brigðismála, að vafalaust má
telja uppgötvun þeirra meðal
hins þýðingarmesta.
VITA = LÍF
Það er engin tilviljun, að víta-
mín eru kennd við líf. Stöðugar
rannsóknir vísindamanna víða
um heim, sanna æ betur, hví-
lik lífefni eru í þeim fólgin.
Hvílíkt heilsu- og orkugildi þau
hafa. Einnig fyrir hina hraust-
ustu meðal hraustra, þótt ekki
teljist þau til orkuefna.
Frá upphafi, — áður en við
lítum dagsins ljós, og til enda,
— þurfum við gnægð vítamína.
En við þurfum fleiri snefilefni.
Steinefni og vítamín vinna sam-
an í búskap líkamans. Skorti á
þau í fæðunni, slaknar smám
saman ,á heilsu okkar, þreki
þoli og mótstöðuafli.
Flestir íslenzkir íþróttamenn,
minnsta kosti knattspyrnumenn,
munu kannast við Knud Lund-
berg.
í greinaflokki um vítamín
bendir hann á nauðsyn vítamína
á vaxtarskeiðinu, og að roskið
fólk líði oft af vítamínskorti.
Hann skrifar um gildi vítamína
fyrir þrek og þol „... topformen“,
og um þýðingu þeirra til að auka
mótstöðuafl líkamans gegn sjúk-
dómum.
Sænskir „topp“-íþróttamenn
telja vítamín og steinefni sér
mjög mikilvæg. Og dr. Cureton
ráðlegur þeim, er stunda íþrótt-
ir, að auka vítamínskammt sinn,
sérstaklega af B1 og 6, og neyta
jafnframt hveitikíms eða hveiti-
kímsolíu. En úr henni fáum við
E-vítamín.
Mike Varah, sem tekið hefur
þátt í fjölda alþjóðamóta, tel-
ur uppbótarefni sér mjög mikil-
væg.
Murray Rose, þrefaldur 01-
ympíu gull-sigurvegari. hinn
yngsti í sögunni, tekur, þegar
um mikla vöðva áreynslu er að
ræða, eins og í sundkeppni,
200—1500 einingar af E-vítamíni
ásamt öðrum vítamínum og
steinefnum.
En engan sérfræðing þarf til
að skilja, að þjálfunin ein og
góður vilji, duga íþróttamannin-
um ekki til afreka. Hann verð-
ur að neyta þeirrar fæðu, er skil-
ar honum sem mestri orku og
þoli, — og óbrotlegum vilja til
sigurs. Og aukaskammt víta-
mína er trúlegt, að hver einasti
íþróttamaður þurfi.
En þetta er ekki nóg. íþrótta-
maðurinn verður einnig að vera
maður til að neita sér um eitur-
efni, sem beinlínis draga úr
þreki og þoli.
Væri óeðlilegt, að íþrótta-
mönnum, sem sýnt er það traust
og .íheiður að vera valdir til
keppni, væri sett það skilyrði,
að þeir neyti hvorki víns né
tóbaks meðan á þjálfun og
keppni stendur? Bæði alkohól
og tóbak ræna neytandann víta-
mínum. Einmitt þeim, sem talin
eru íþróttamönnum, hvað nauð-
synlegust: B og C. Vítamínum.
sem talin eru örva bæði líkam-
lega og andlega orku. Næg
eggjahvítuefni eru einnig rík
nauðsyn.
Ég hef aðeins drepið lauslega
á nokkur atriði, er varða íþrótta-
menn, eigi síður en alla aðra.
Atriði, sem ég hygg að hafi
verið of lítill gaumur gefinn.
Atriði, sem auðvelt er að sann-
reyna. — Atriði. sem gera þarf
margfalt betri skil. — Atriði.
f--------------------------------------h
Ríkisútvarpið
Auglýsingasímar eru:
2 22 74, 222 75
^--------------------------------------1
82
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ