Íþróttablaðið - 01.04.1995, Síða 3
Ritstióraspial 1
Þegar mest á reynir er ávallt hægt að treysta á stuðning íslendinga og
þess vegna leikur enginn vafi á því að hjörtu landsmanna munu slá sem
eitt þegar Heimsmeistarakeppnin í handknattleik hefst á íslandi 7. maí
næstkomandi. Þetta verður mesti íþróttaviðburður íslandssögunnar og
af þeim sökum munu allra augu beinast að þeim leikmönnum sem hafa
verið valdir til að halda merki íslands sem hæst á lofti.
Landsliðsþjálfarinn og ýmsir aðstandendur liðsins hafa látið hafa það
eftir sér að hafni ísland í einu af sjö efstu sætunum sé markmiðinu náð.
Markmið þeirra er því að tryggja íslandi þátttökurétt á Ólympíuleikun-
um í Atlanta á næsta ári. Náist þetta markmið mun landsliðið væntan-
lega leika um 45 landsleiki á næstu leiktíð því næg verkefni eru framund-
an. í raun má segja að gríðarlega mikið sé í húfi fyrir íslenskan hand-
knattleik í Heimsmeistarakeppninni því ef ísland hafnar ekki meðal sjö
efstu þjóða verður næsta stórmót væntanlega ekki fyrr en eftir fjögur ár.
Að sama skapi getur það varla talist fýsilegur kostur að taka við starfi
landsliðsþjálfara þegar fá spennandi verkefni eru framundan. Það hang-
ir því margt á spýtunni varðandi frammistöðu landsliðsins en hið nýja
fyrirkomulag keppninnar getur gert mörgum þjóðum skráveifu. Um
útsláttarfyrirkomulag verður að ræða frá og með 16 liða úrslitum og fá
liðin ekki annað tækifæri eigi þau einn slakan leik.
Það eru viss hyggindi í því að setja markið á eitt af sjö efstu sætunum
en það fer enginn að segja mér að landsliðsþjálfarinn verði fyllilega
sáttur við sjöunda sætið. Fyrir það fyrsta varð Island í 4. sæti á síðustu
Ólympíuleikum, núna leikur landsliðið á heimavelli og mun væntanlega
fá byr undir báða vængi með dyggum stuðningi áhorfenda og síðast en
ekki síst hefur landsliðshópurinn sjaldan eða aldrei verið eins öflugur.
Vissulega eiga nokkrir leikmenn við meiðsli að stríða en þeir munu án
efa harka af sér þegar út í alvöruna er komið. Ekki má gleyma því að
margar þjóðir hafa átt erfitt uppdráttar í handboltanum síðastliðin ár og
ættum við að nýta okkur það til hins ýtrasta.
Að mínu viti verður erfitt að sætta sig við það ef ísland leikur ekki um
verðlaunasæti á Heimsmeistaramótinu. Það er raunhæft markmið og
menn eiga ekkert að fara í felur með það þótt það sé gott að negla
ákveðinn varnagla með því að setja sér lægra markmið.
ísland mun blómstra á margvíslegan hátt meðan á Heimsmeistara-
keppninni stendur og hvet ég landsmenn til að sameinast um að leggja
landsliðinu, og okkur öllum lið, með því að mæta á leiki og láta vel í sér
heyra. Áfram ísland!
Þorgrímur
Þráinsson ritstjóri
Hafsteinn Viðar
auglýsingastjóri
1. tbl. 1995
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þorgrímur Þráinsson
Beinn sími ritstjóra: 678938
Ljósmyndarar: Gunnar
Gunnarsson, Hreinn
Hreinsson og Kristján
Einarsson
Skrifstofa ritstjórnar:
Bíldshöfða 18. Sími 875380.
Fax 879982
Aðalritstjóri:
Steinar J. Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Stjórnarformaður:
Magnús Hreggviðsson
Áskriftargjald kr. 1.293,00
(1/2 ár) ef greitt er með
greiðslukorti en annars kr.
1.437,00.
Hvert eintak í áskrift
kr. 431,00 ef greitt er með
greiðslukorti en annars kr.
479,00.
Hvert eintak í lausasölu
kr. 599,00.
Áskriftarsími: 812300
Útgefandi: Fróði hf.
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18, sími 812300
Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir.
G. Ben. - Edda prentstofa hf.
3