Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 38
Rússinn Vasiliy Kudinov er frábær leikstjórnandi og einn athyglisverðasti
leikmaður heims.
Júlíus, Bjarki og Geir sþila
vel en þar með erþað uþþtalið,
segir Guðjón
Nikolaj Jakobsen landsliðsmaður
Dana á eftir að setja svip sinn á HM
'95.
Þjóðverjinn STEFAN KRETZMAR
var kjörinn handknattleiksmaður árs-
ins í Bundesligunni á síðasta keppn-
istímabiIi en hann er félagi Júlíusar
Jónassonar hjá Gummersbach. Hann
kemur frá Berlín og báðir foreldrar
hans léku með landsliði Austur-
Þýskalands á sínum tíma. VOLKER
ZERBER er örvhentur, tveggja metra
sláni sem leikur með Lemgo. Hann er
arftaki Sigurðar okkar Sveinssonar
hjá félaginu og Siggi segist hafa kennt
honum allt sem hann kann. CHRISTI-
AN ZHVARTSER vartalinn besti leik-
maður Þýskalands í heimsmeistara-
keppninni árið 1993 og hann á eftir
að setja svip sinn á mótið.
Frá Sviss kemur m.a. MARC
BAUMGARTNER, sem er almennt
talinn besti útispilari heims í dag, en
hann leikur með Lemgo í Þýskalandi.
Hanner191 sm á hæð, frábær skytta,
27 ára gamall en hefur aðeins leikið
15 landsleiki. Helsta vörumerki hans
er gúmmmígómurinn og það hversu
opinskár og hrinskilinn hann er.
Með rússneska landsliðinu leika
margir öflugir leikmenn. DMITRIY
KARLOV verður að öllum líkindum
besti miðjumaður HM '95 en hann
leikur með Bad Schwartau í Þýska-
landi. Hann er frábær leikstjórnandi
og varð einmitt heimsmeistari með
Rússum í Svíþjóð. VASILIY KUDI-
VON er sömuleiðisfrábær leikmaður
og tryggði Samveldunum Ólympíu-
gullið árið 1988, nánast upp á sitt
einsdæmi, eftir að hann kom inná í
síðari hálfleik og skoraði sex mörk.
Hann leikur með US Ivry í Frakk-
landi. Þá er markvörður Rússa, AND-
REY LAVROV, einn besti markvörður
heims en hann leikur sömuleiðis
með US Ivry.
Einn af bestu leikmönnum Rússa
er nú kominn með spænskan ríkis-
borgararrétt en hann heitir TALANT
DUJSHEBAEV. Hann er af flestum
talinn flinkasti handknattleiksmaður
sem hefur komið fram á sjónarsviðið.
Hann er frekar smávaxinn en hefur
gríðarlegan stökkkraft. Hann gæti
gert mjög góða hluti með Spáni á HM
svo framarlega sem hann verður í
góðu formi. Spánverjareru með ann-
an strák, BORRAS MASIP, sem menn
hafa verið að bíða eftir að springi út
en hann hefur aldrei náð sér al-
mennilega á strik á stórmótum.
Á heimsmeistaramótinu í Svíþjóð
var MAGNUS ANDERSON, leik-
stjórnandi gestgjafanna, kjörinn besti
leikmaður keppninnar en hann er
sjaldnast mjög áberandi í leik. Hann
skorar ekki mikið en er engu að síður
hjarta liðsins. Hornamaðurinn ERIK
HAJASerfrábær leikmaðursem skor-
ar grimmt. Sænski markvörðurinn,
TOMAS SVENSON, verður án efa
besti markvörðurinn á HM. Það
kemst enginn með tærnar þar sem
hann hefur hælana. MAGNUS WISL-
ANDER hefur leikið mjög vel með
Kiel í Þýskalandi f vetur og átt eitt sitt
besta keppnistímabil. Og ekki má
gleyma STEFAN faxa OLSON.
Svíarnir hafa gríðarlega góðu liði áað
skipa og verða ekki auðunnir.
Það kemur alltaf eitthvað á óvart á
svona stórmóti og má búast við að
nýjar stjörnur komi fram á sjónar-
sviðið. Ég hef haldið því fram að
HÉÐINN GILSSON myndi blómstra í
þessari keppni en hann verður lík-
lega lítið sem ekkert með vegna
meiðsla. Það veikir okkar lið töluvert
en það er spurning hvort nú sé komið
að keppni þar sem JÚLÍUS JÓNAS-
SON blómstri verulega. Ég hef trú á
því að Júlíus eigi eftir að spila vel,
sömuleiðis GEIR SVEINSSON og
BJARKl SIGURÐSSON en þar meðer
það upptalið.
Ég spái því að Daninn Nicolai Ja-
kobsen eigi eftir að verða leikmaður
þessarar heimsmeistararkeppni en
sömuleiðis munu Kudinov, Baum-
gartner og Svensson skara fram úr.
Landslið Kóreu eralgjörtspurning-
armerki en sá þjálfari, sem gerði liðið
að spútnikkliði á árunum 1985-
1988, er tekinn við liðinu að nýju.
Enginn veit hvernig liðið er að leika
um þessar mundir og er nánast um
hernaðarleyndarmál að ræða. Þjálf-
arinn er einn mesti fræðimaðurinn í
boltanum í dag og þekkir flest lands-
lið heims mjög vel.
Svíar hafa verið sigursælastir í
heimsmeistarakeppninni frá upphafi
en það kemur á óvart að Sovétmenn
urðu bara einu sinni heimsmeistarar,
38