Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 75

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Blaðsíða 75
AHEIMAVELLI Hristo Stoichkov. ÁSGEIR VALDIHRISTO! Landsliðsþjálfarar alls staðar að úr heim- inum taka þátt í vali á besta knattspyrnu- manns heims en valið er framkvæmt af Al- þjóða knattspyrnusambandinu. Brasilíski knattspyrnumaðurinn Romario varð fyrir valinu nú og var val hans glæsilegt en hann fékk 346 stig. Annar í valinu varð Hristo Stoichkov með 100 stig og þriðji varð Rober- to Baggio með 80 stig. Alls settu 64 af þeim 84 þjálfurum, sem tóku þátt í valinu, Romar- io í fyrsta sætið en hver og einn valdi þrjá. Ásgeir Elíasson, landsliðsþjálfari fslands, var einn af þeim sem völdu en hann var ekki sammála þessum 64 sem töldu Romario bestan því Ásgeir setti hann í annað sætið og Paolo Maldini setti hann í þriðja sætið. Best- ur, að hans mati, var hins vegar Hristo Stoichkov. Ýmsar umræður hafa verið um það meðal handboltamanna og forystunni hvort rétt sé að breyta fyrirkomulaginu í handboltanum. Menn eru sáttir við úr- slitakeppnina en deitdarkeppnina þurfi eitthvað að endurskoða, jafnvel að fækka liðum aftur í tíu. Ein hugmyndin, sem er þó þessu nokkuð óviðkomandi, er að efsta íiðið í 2. deild taki þátt sem lið numer átta í úrslitakeppni 1. deíldar en : sá hængur er á að það væri hart ef iið ur 2. deild yrði síðan fslandsmeistari. Hver er maðurinn? (Sjá bls. 79) TVÍFARAR? *... að 14 ÁRA GAMALL SON- UR Þorbjörns Jenssonar, þjálfara Vals, hafi verið einn helsti að- stoðarmaður föður síns í úrslita- viðureignunum gegn KA um ís- landsmeistaratitilinn í hand- knattleik. Stráknum leiddist víst í kennaraverkfallinu og ákvað því að fara yfir þá leiki með KA, sem hann komst yfir, og teikna skot- leiðir leikmanna. Sömuleiðis tók hann saman upplýsingar um skotnýtingu Valsmanna. Þetta lagði hann sfðan fyrir föður sinn sem nýttist vel þegar mest á reyndi í baráttunni. *...að RÚMLEGA SJÖTUGUR MAÐUR hafi látist úr hjartaslagi fyrir norðan þegar hann var að horfa á þriðju viðureign Vals og KA um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik. GYLFIGÓÐUR! Gylfi Þór Orrason dæmdi leik Hollands og Möltu í Evrópukeppni landsliða í knatt- spyrnu í lok mars síðastliðins. Leikurinn fór fram á heimavelli Feyenoord í Rotterdam að viðstöddum 32 þúsund áhorfendum. Leikn- um lyktaði með 4-0 sigri Hollendinganna og stóð Gylfi sig vel. Hann fékk 8 í einkunn eftirlitsmanns, sem þýðir samkvæmt stöðl- um „mjög gott“. Bjarni Fel. þurfti nýlega að „lúta í gras" fyrir Orðabók Morgunblaðsins. Bjarni þó! ÍÞRÓTTAFRÉTTAMENN hafa verið duglegir við að tileinka sér ein- hverja frasa sem hafa orðið ansi líf- sseigir. Nægir þar að nefna; „það er næsta víst", „hann er sannarlega betri en enginn", „sjáiði hvað hann gerir þetta vel", „hann fór mikinn í liðinu" og sá næstnýjasti, sem Bjarni Fel- ixson á víst heiðurinn af, er „að lúta í gras" í merkingunni að tapa eða láta í minni pokann. Sá síðastnefndi fras- inn mun líklega ekki heyrast oftar því ORÐABÓK Morgunblaðsins leiðrétti þennan einkennilega frasa á dögun- um ogsagði að íþróttafréttamaðurinn hlyti að hafa ruglað saman tveimur orðtökum. Hið rétta er að „hníga í gras", ekki lúta í gras enda er það í upphafi komið úr bardagamáli og merkir beinlínis að deyja í orustu. Aftur á móti lúta menn í lægra haldi og hver veit nema það verði næsti tískufrasinn. Reyndar er orðabók Morgunblaðsins ekki óskeikul því orðaþók Árna Bö er á því að menn megi enn lúta í gras. 75
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.