Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 4

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 4
Stærsti íþróttaviðburður íslands- sögunnar hefst 7. maí næstkomandi þegar flautað verður til leiks í Heimsmeistarakeppninni í handknattleik. Miklar kröfur eru gerðar til íslenska landsliðsins, sem vonlegt er, enda leikur þetta feiknasterka lið á heimavelli og skartar helstu skrautfjöðrum íslensks handknattleiks. Það verður mikió í húfi þegar þjóðirnar tuttugu og fjórar leiða saman hesta sína því aðeins sjö efstu sætin tryggja öruggt sæti á Ólympíuleikunum í Atlanta á næsta ári. TEITUR TEITUR ÞÓRÐARSON, þjálfari norska liðsins Lilleström, er sá íslenski knattspyrnuþjálfari sem hefur náð hvað lengst á erlendum vettvangi. Um þessar mundir er hann að vinna ákveðið brautryðjendastarf hjá Lilleström og er í raun um mjög vísindalega tilraun aó ræða. Teitur hefur verið óhræddur við að fara ótroðnar slóðir þegar þjálfun er annarsvegar og í skemmtilegu viðtali við Iþróttablaðið leiðir hann lesendur inn í spennandi heim þjálfunar. Þetta er lesefni sem þeir, sem fást við hverskonar þjálfun, ættu ekki að láta fram hjá sér fara. Enn og aftur stendur íþróttablaöið fyrir vali á liði ársins í handbolta og körfubolta karla og kvenna. Það eru þjálfarar liðanna sem velja lið ársins hverju sinni enda fáir betur til þess fallnir því þeir þekkja kosti og galla þeirra leikmanna sem þeir fylgjast svo grannt með. Nú sem og endranær kemur fjölmargt á óvart í valinu en leikmönnum er fullljóst að það er mikil virðing sem felst í því að vera valinn í lið ársins.

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.