Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 33
ýmsu tilefni og heimsmeistarakeppni
á íslandi er stórviðburður sem verður
varla endurtekinn í nánustu framtíð."
Guðmundur tengist landsliðinu í
handknattleik á skemmtilegan hátt
því hann er föðurbróðir landsliðsfyr-
irliðans, Geirs Sveinssonar, en ætli
hann hafi sjálfur verið í íþróttum? „Eg
lék með KR í fótbolta og handbolta
fram í 3. flokk en gerði þá hlé á
íþróttaiðkun minni þar til fyrir 10 ár-
um að ég hóf að stunda golf. í kjölfar
þess var ég formaður GR á árunum
1989-92 og í raun kemst fátt annað
að á sumrin en golf. Forgjöfin er ekk-
ert til að hrópa húrra fyrir en hún er
16 — um þessar mundir."
— Gastu nokkuð spilað golf á
meðan þú varst formaður GR?
„Nei, það var nú heila málið.
Þegar ég var kominn á teiginn var ég
oft meira upptekinn af því hvort búið
væri að losa rusladallinn í stað þess
að einbeita mér að högginu. Þegar
maður er í forystu ífélagsskap eins og
Golfklúbbi Reykjavíkur verður mað-
ur að leyfa huganum að beinast að
öðru en að spila sjálfur. Annars er ég
þeirrar skoðunar að menn megi ekki
vera of lengi í forystu svona félags-
skapar því með nýjum mönnum
koma nýjar hugmyndir."
— Hvað heldur þú um frammi-
stöðu landsliðs okkar á HM?
„Ég heftrúáþvíað þaðnái langtog
mérfinnst ekki mikill metnaðurfelast í
því þegar menn, sem tala fyrir hönd
liðsins, segja að 6. sætið sé góður áran-
gur. Mér finnst það ekki góður áran-
gur. Ásíðustu Ólympíuleikum lentum
við í4. sæti en núna erum við með enn
öflugra lið og leikum á heimavelli.
Handboltinn er í lægð í mörgum lönd-
um og vegna þess vil égfá liðið í verð-
launasæti. Ég er alltaf hræddur þegar
menn fara í mót með ekki meiri metn-
að en að stefna á 6. sætið."
— Er Póstur og sími búinn að
hugsa næsta leik eftir Heimsmeist-
arakeppnina hvað stuðningi viðkem-
ur?
„Það er með þetta eins og ríkis-
stjórnarsamstarfið, þegar kjörtíma-
bilinu lýkur þurfa ýmsir aðilar að
skoða sinn gang. Ég lít svo á að þótt
við höfum valið að styrkja hand-
boltahreyfinguna í þennan árafjölda
sé ekki þar með sagt að svo verði um
aldur og ævi. Vissulega kemur margt
til greina en yfirstjórn fyrirtækisins
tekur ákvörðun um framhaldið."
FJALLAREIÐHJOL
FYRIR GETSPAKAN LESANDA ÍÞRÓTTABLAÐSINS
Fyrir 10. maí næstkomandi gefst
lesendum ÍÞRÓTTABLAÐSINS
kostur á að hringja í FRÓÐA-LÍN-
UNA, í síma 99-1445 og taka þátt í
getraun sem tengist heimsmeistara-
keppninni í handknattleik. Annars
vegar þart' að spá því hverjir verða
heimsmeistarar í handknattleik og
hins vegar hver verður markahæsti
leikmaður íslands í keppninni. Þeir
sem rata á rétt svör við BÁÐUM
spurningunum eiga möguleika á að
vinna sér inn 26 tommu ICEFOX
FJALLAREIÐHJÓL frá Hvelli hf. en
það er með Shimano gírabúnaði
(21 gír - smellugírar) og álgjörðum.
Stórglæsilegt og vandað fjallahjól.
Verði fleiri en einn keppandi með
BÆÐI svörin rétt verður dregið um
hver hreppir hjólið.
Að auki verða þrír ADIDAS
landsliðsbúningar í aukaverðlaun,
en landsliðið í handknattleik leikur
einmitt í slíkum búningum.
Það er skammur tími til stet'nu ef
þú ætlar að taka þátt í HM leik
Iþróttablaðsins. Hringdu í 99-1445
(mínútan kostar 39,90) og taktu þátt í
skemmtilegum leik. Þú gætirdottið í
lukkupottinn!
ehband
ftirtalin landslið í handbolta
ann mnasiio i nanaooira
með hitahlífar frá Rehband:
eppa
íslenska
Austurríska
Danska
Egypska
Franska
Litháenska
Króatíska
Norska
Pólska
Rúmenska
Rússneska
Sænska
Svissneska
Slóvenska
Tékkneska
Ungverska
og
Þýska
Trönuhrauni 8
Pósthólf 409
222 Hafnarfirði s
Sími: 565 2885 |
Bréfsími: 565 1423 |