Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 17
LILLESTRÖM ER ORÐIÐ AÐ
SÉRSAMBANDIINNAN NORSKA
ÍPRÓTTASAMBANDSINS!
á sprettæfingum. Auk þess eru sprett-
æfingar góðar til að rífa upp stemmn-
ingu á æfingu og koma af stað keppni
milli leikmanna og hópa."
— Hvenær á æfingum ertu með
sprettæfingar?
„Um miðbik æfingar þar sem
menn eru orðnir vel heitir. Menn fá
minna út úr sprettæfingum í lok æf-
inga þegar þeir eru þreyttir."
Olympia Toppen í Noregi hefur
tekið nokkrar íþróttagreinar í gegn
undanfarin ár með öflugum stuðn-
ingi á margvíslegan hátten þeir riðu á
vaðið í skíðaíþróttinni með þeim ár-
angri að Norðmenn eignuðust marga
heimsmeistara. Síðan studdu þeir
róðraríþróttina með sama árangri,
skautaíþróttin fékk sömu meðhöndl-
un og stuðningogglæsilegurárangur
einstakra fjálsíþróttamanna er mikið
til Olympia Toppen að þakka. Nægir
þar að nefna árangur Geirs Moen
sem varð heimsmeistari í 200 metra
hlaupi innanhúss á dögunum.
„Yfirmenn Olympia Toppen voru
orðnir þreyttir á að styðja eingöngu
við bakið á íþróttagreinum sem fáir
hafa áhuga á og vildu gera bragarbót
á því," segir Teitur. „Þeir ákváðu að
velja eitt knattspyrnulið til að sjá
hversu langt þeir gætu farið með það
á 3-5 árum. Lilleström varð fyrir val-
inu, m.a. vegna þess að klúbburinn
er mjög vel rekinn, virtur og þekktur
fyrir að þora að brydda upp á nýjung-
um. Sömuleiðis vildi þeir vinna með
lið sem átti ekki of mikið af pening-
um. Einn af háu herrunum á Ólympia
Toppen er róðrarþjálfarinn sem ég
fékk til liðs við mig þegar ég þjálfaði
Brann. Tengsl okkar gerðu það m.a.
að verkum að Lilleström varð fyrir
valinu í þetta verkefni.
Núna er Lilleström því orðið að
sérsambandi innan norska íþrótta-
sambandsins og fær að nota íþrótta-
miðstöð sambandsins að vild. Við
æfum þar fimm sinnum í viku og fá-
um að borða þar, hvíla okkur og njót-
um í raun allrar þjónustu sem er fyrir
hendi. Og ég sem þjálfari fæ reglu-
lega aðsitjafundi með landsliðsþjálf-
urum allra íþróttagreina í Noregi þar
sem menn skiptast á skoðunum um
þjálfunaraðferðir og allt sem lýtur að
starfi þeirra. Þetta er mjög lærdóms-
ríkt og ég nýti mér það hiklaust sem
þjálfarar íöðrum íþróttagreinum hafa
fram að færa.
Olympia Toppen hefur gert sér-
samninga við skólana í Noregi þann-
ig að þeir, sem njóta stuðnings sem
afreksmenn, geta lokið námi á lengri
tíma en ella. Þetta auðveldar þeim
leikmönnum Lilleström sem eru í
skóla að leggja það á sig sem við
óskum eftir. Sömuleiðis hafa sumir
sagt upp góðum störfum til þess að
geta helgað sig þessu verkefni í ein-
hverár. Þaðeru þvíallirafviljagerðir
til að fá sem mest út úr þessu. Lille-
ström fær ekki eina krónu frá Olymp-
ia Toppen en hins vegar fáum við allt
endurgjaldslaust sem við þurfum á
að halda til að búa til topplið. í gegn-
um norska íþróttaráðuneytið getum
við komist í æfingaaðstöðu í öðrum
löndum endurgjaldslaustoger þá um
einhvers konar samkomulag milli
ráðuneyta í nokkrum löndum að
ræða.
Vegna þessa átaks skuldbindum
viðokkurtil að haldafyrirlestra í Nor-
egi þegarOlympiaToppenóskareftir
þvf til að fræða aðra um hvað við
erum að gera.
OlympiaToppen geturekki þving-
að okkur til að gera eitt eða neitt en
þeir koma hins vegar með tillögur
sem við vegum og metum. Þeir eru
með aðila í Lilleström sem fylgist
með því sem við gerum og sérfræð-
ingar í þoli, teygjum, samæfingu,
þreki og svo mætti lengi telja koma
fram með óskir finnist þeim ástæða
til. Færi ég eingöngu að ráðum þess-
ara sérfræðinga gæfist aldrei tími til
að spila fótbolta þannig að maður
þarf að vinsa úr það sem hentar
hverju sinni.
í samvinnu við alla þessa sérfræð-
inga er mikið um allskonar „test" og
út frá því breytum við æfingum
hikstalaust. Það má ekki gleyma því
að þetta hófst ekki fyrr en í haust og
því er kannski ekki mikil reynsla
komin á þetta. Mjólkursýruna testum
við fjórum sinnum á ári — í enda
hvers tímabils eins og ég nefndi áð-
an."
— Á íslandi eru oft gerðar mjólk-
ursýrumælingar á sömu leikmönn-
um við mismunandi aðstæður —
gefur það rétta mynd af ástandi leik-
mannsins?
„Menn verða að mæla mjólkursýr-
una við sömu aðstæður, á hlaupa-
bretti með sama halla og áður, til að
fá marktækar niðurstöður. Það þýðir
ekki að mæla menn í í 10 gráðu frosti
Teitur í marktækifæri gegn Manúsi KR markverði um miðjan áttunda áratug-
inn. Árni Sveinsson fylgist vel með í fjarska!
17