Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 13

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Side 13
 Teitur tók að sér þjálfun hjá Brann árið 1988 sem er án efa einn þekktasti og virtasti klúbbur Noregs. Liðið hafði skort allan stöðugleika, rokkað á milli deilda og varTeitur ráð- inn arftaki Tonys Knapp, fyrr- um landsliðsþjálfara fslands, sem hafði verið rekinn frá Brann. í Brann má kannski segja að þjálfaraferill Teits hafi byrjað fyrir alvöru því þar hóf hann að vinna á vísindalegan og nýstárlegan hátt. í norskum fjölmiðlum var talað um að Brann hefði þurft að fá léttrugl- aðan íslending til að taka við liðinu þvf enginn treysti sér til þess sökum þeirrar pressu sem því fylgdi. „Ég fékk róðrarþjálf- ara til liðs við mig, sem var algjör sérfræðingur í mjólkurs- ýrumælingum, og hóf að gera eitt og annað í Brann sem varð Teitur í upphafi landsliðsferilsins, mig hefði félagið ekki verið búnið að reka Tony Knapp ári áður." Teitur rak strax þrjá leik- menn eftir keppnistímabilið, einn fyrir að upphefja sjálfan sig á kostnað yngri leikmanna og hina tvo sökum leti. Skömmu síðar fengu níu aðrir að fjúka. „Ég hótaði að hætta ef ekki yrði farið að fyrirmælum mínum en ég lét það jafnframt fylgja að stjórnarmenn þyrftu alls ekki að styðja mig í þessum aðgerðum. Ég bauðst til að fara innan árs ef árangur liðsins yrði ekki betri en árið áður." Teitur hafði lítið fjármagn til að kaupa nýja leikmenn og þurfti því að falast eftir nokkr- um leikmönnum í neðri deild- um Noregs auk þess sem hann fékk Ólaf bróður sinn frá Akra- nesi og toppleikmann frá TEITUR ÞÓRÐARSON ÞJÁLFARI LILLESTRÖM * Teitur er mjög umdeildur þjálfari. * Verður Lilleström Evrópumeistari? * Teitur na verulega umdeilt. Norskir knatt- spyrnumenn hafa verið vanir að liggja í leti eftir keppnistímabilið og hvíla algjörlega í nóvember og des- ember. Mér fannst það ótækt og ég hóf því strangar æfingar á þessum tíma sem hafði það í för með sér að nokkrir af þekktustu þjálfurum Nor- egs gerðu nánast grín að mér í blöð- unum. Fyrsta árið, sem ég var með liðið, lentum við ítöluverðu basli þvf ti landsliðsþjálfari? það var ert'itt að tá menn til að leggja sig virkilega fram og við rétt sluppum við fall. Við vorum með ágæta blöndu af reyndum og ungum leikmönnum, bæði aðkeyptum og þeim sem höfðu verið lengi hjá Brann en það urðu töluverðir árekstrar milli leikmanna. Ég krafðist þess að 14 af 20 manna hópi yrði látinn fara og þá varð allt vitlaust. Sennilega hefði Brann rekið Tromsö til Brann. „Norska pressan átti ekki til orð yfir þessar aðgerðir, deildu á mig fyrir að fá Óla og spurðu hvort ég ætti ekki ömmu sem gæti eitthvað í fótbolta. Þrátt fyrir að vera með reynslulaust lið gekk okkur ágæt- lega og við enduðum í 6. sæti í deild- inni. í kjölfar þess fengum við 2-3 leik- menn til viðbótar og þriðja tímabilið mitt hjá Brann vorum við í toppbaráttu þar til tvær umferðir voru eftir." 13

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.