Íþróttablaðið - 01.04.1995, Síða 60

Íþróttablaðið - 01.04.1995, Síða 60
Patrekur Jóhannesson, leikmaður KA, skorar með skemmtilegum „break- dans" sporum í bikarúrslitaleiknum gegn Val. spaug! Velgengni KA í handboltanum í vetur hefur verið dyggustu stuðn- ingsmönnum liðsins æði kostnaðar- söm en þeir hafa ekki látið það á sig fá. KA lék 7 leiki á útivöllum í úrslita- keppninni, gegn Víkingi, Stjörnunni og Val og ætla má að flug frá Akur- eyri ásamt aðgöngumiðum hafi kost- að um 50.000 krónur. Þá er ekki meðtalinn hugsanlegur kostnaður vegna leigubíla, fæðis, vinnutaps og fleira. Gróft reiknað nemur heildar- kostnaður þeirra, sem sóttu alla leik- ina, um 70.000 krónur. KRISTJÁN SKARPHÉÐINSSON, annar eiganda Amaro á Akureyri, var einn af dyggustu stuðningsmönnum KA íveturen hann hófekki aðfylgjast með handbolta af neinu viti fyrren 10 ára gömul dóttir hans byrjaði að æfa með KA í nóvember 1993. „Ég hef fylgst með fótboltanum undanfarin ár en aðeins séð handbolta í sjónvarp- inu. Dóttir mín vildi endilega að ég kíkti á leiki með sér í vetur og í kjölfar byrjaði þessi skemmtilegi „sjúkdóm- ur". Veturinn er búinn að vera ein skemmtun frá upphafi til enda að menn muna vart annað eins. En bar- áttan hefur kostað hæsi, svita, tár og æðislega spennu." Kristján gat ekki séð alla útileiki KA í úrslitakeppninni en þegar bikar- Kristján Skarphéðinsson hefur ekki látið sitt eftir liggja hvað varðar stuðning við KA. úrslitaleikurinn gegn Val fór fram var hann staddur í Bretlandi. „Ég hringdi heim annað slagið á meðan á leikn- um stóð til að hlera stöðuna en þegar framlengingin hófst sá ég mér ekki annað fært en að hlusta á lýsinguna í símanum. Ég sat því einsamall og kófsveittur uppi á hótelherbergi og skemmti mér konunglega." Kristján lét ekki sitt eftir liggja í stuðningi við félagið því hann „keypti" 19 manna rellu fyrir stuðn- ingsmenn KA liðsins þegarein barátt- f'kur^- |#y an fór fram fyrir sunnan. „Nei, það er ekki uppgefið hvað þetta kostaði," segir kappinn. „Það var þess virði." „Jú, ég kalla mikið í leikjum en það heyrist lítið í mér. Ég er ekki eins og Þorsteinn Már Baldvinsson einn af eigendum Samherja. Mér er sagt að það þurfi 3-4 menn í kringum hann þegar hann verður hvað æstastur." En hvert ætli eftirminnilegasta — Velgengni KA í hand- boltanum kostaði dyggustu stuðningsmenn liðsins um 70.000. — Rætt við KRISTJÁN SKAR- PHÉÐINSSON, eldheitan KA mann Texti: Þorgrímur Þráinsson augnablik vetrarins hafi verið. „Þegar Valurjafnaði í síðasta leiknum þegar rúm sekúnda var til leiksloka. Við í stuðningsmannaliðinu vorum reynd- ar búin að ákveða að standa upp og klappa fyrir leikmönnum beggja liða, burtséð frá því hvort liðið yrði ís- landsmeistari. Við erum afskaplega sátt við árangur KA í vetur og ég er ekki frá því að maður sé stundum þreyttari en leikmenn að leik lokn- um. Það var mjög gaman að upplifa það hvernig þjóðin fylgdist með leikjunum og þeir sem voru ekki rauðklæddir héldu með KA. Vegna starfsins átti ég samtöl við fólk víða um land og allir minntust á viður- eignirnar og hversu skemmtilegt þetta væri. Maður er strax farinn að hlakka til næsta tímabils en þá ætlum við að geraenn betur. Mérsýnistalltstefna í að það þurfi eina til tvær breiðþotur undir stuðningsmenn KA þegar liðið tekur þátt í Evrópukeppninni næst- komandi haust. Við höfum þegar rætt við Akureyringinn Arngrím Jóhanns- son eiganda Atlanta, og hann hefur tekið því vel enda verður pílagríma- fluginu lokið um það leyti." 60

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.